blaðið - 21.06.2006, Page 19
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006
HEIMILI I 27
eldhús nútimans
Piparinn er ómissandi i eldamennskunni
og ekki er verra þegar hann kemur í svona
fallegum umbúðum. Commercy piparkvörn
er til í þremur stærðum. Kokka, 6.800 krónur.
Falleg kanna sem heldur
heitu og köldu og er því eink-
ar handhæg að nota. Lif og
list, 6.590 krónur.
Þetta fallega 4 lítra smákökubox þarf svo sannar-
lega ekki að geyma inn í skáp. Kokka, 1.950 krónur.
Glæsileg skál sem hægt er að nota sem eldfast mót.
Líf og list, 2.430 krónur.
Pískur er það áhald í eldhúsinu sem er sennilega
einna mest notaður og því skemmtilegra að hann
líti vel út. Líf og list, 1.670 krónur.
Þrátt fyrir alls kyns tæknilegar kaffivélar eru gamli góði ketillinn ómissandi. Þessi ketill er þó
langt frá því að vera gamall en góður er hann. Kokka, 6.800 krónur.
Kraninn verður hreinn og fallegur ef
hann er þrifinn með hveiti
Þrifið með
brauði og hveiti
• Kámugir fingur upp um alla
veggi skilja eftir fingraför á ann-
ars fallega hvítum veggjunum.
Hægt er að losna við fingraförin
á einfaldan og þægilegan, en
eilítið furðulegan hátt. Nuddið
yfir fingrafarið með votu, gömlu
franskbrauði og förin hverfa
einsog döggfyrirsólu.
• Kranar á baðherbergi og í
eldhúsi verða fljótt Ijótir og
leiðinlegir en því má bjarga eins
og svo mörgu öðru. Nuddið kran-
ana vel og vandlega með hveiti.
Hreinsið hveitið af krananum og
fægið með mjúkum klút.
• Stálvaskarerualltafitískuen
það er ekki eins vinsælt að halda
þeim hreinum og fallegum. Með
því að nudda yfirborð vasksins
varlega með lyftidufti eða með
dagblaði skín vaskurinn sem
aldrei fyrr.
• Það getur verið lýjandi að þrífa
rúður oggler en fáir vita að
edik er algert töfraefni þegar
kemur að þrifum. Hægt er að
nota það til að þrífa rúður og
ekki er verra að nudda glerið
með dagblaði svo það skíni
sem mest.
Sturtuhurðir verða auðveld-
lega drullugar enda er sturtuklef-
inn jafnan mikið notaður. Rétt
eins og rúður má nota edik til að
þrífa sturtuhurðina. Blandið sam-
an ediki og vatni.til helminga.
Nuddið hurðina og notið jafnvel
gamlan tannbursta til að þrífa
rammann og horn. Að endingu
er tilvalið að nota bílabón til að
fullkomna verkið og koma í veg
fyrir fleiri bletti í náinni framtíð.
Kertaljós eru rómantísk og
hugguleg en því miður er ekki
hægt að segja það sama um
sót af kertum sem vill gjarnan
myndast. Sem betur fer er hægt
að losna við það á auðveldan
hátt. Ryksugið vegginn þar sem
sótið er. Setjið nokkra dropa af
mildri sápu (vatnsbala og notið
svamp til að þrífa vegginn. Sót
á það til að dreifast þegar það
er þrifið og því er best að þrífa
hvern hluta veggsins vel áður
en haldið er áfram.
ALVORU HUMAR
TILVALIÐ f ÚTILEGUNA
EÐA BÚSTAÐINN
Ferskur humar alla föstudaga og laugardaga
OPNUNARTÍMI
MANUDAGA - FIMMTUDAGA..11:00 - 18:30
FÖSTUDAGA...............11:00 -19:30
LAUGARDAGA...........12:00 -16:00
FLOKKS
ANNAÐ FISKMETI A GRILLIÐ
- ■ '■' " ■ ■■■■■'■
Áttu leið um Hveragerði?
Humar á verksmiðjuverði!
Við bjóðum gæðahumar sérstaklega flokkaðan fyrir þig.
Einnig svigna borðin undan öðru fersku sjávarfangi og
tilbúnum fiskréttum.
Þegar rennt er austur fyrir fjall, í bústaðinn eða útileguna,
er tilvalið að koma við hjá okkur í Sunnumörkinni.
HUMARBÚÐIN -
HLAÐBORÐ HAFSINS
SUNNUMÖRK 2,
810 HVERAGERÐI
SÍMI 483 3206
'---HlaðborcTFiafsihs-----'