blaðið - 21.06.2006, Side 22
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006 blaðiö
SKYNDIPRÓFIÐ
HM200Ó
1. Hverjir skoruðu mörk Eng-
lendinga á móti Trínidad
og Tóbagó?
2. Hvað heitir hinn fertugi
markvörður Túnis?
3. Hvaða fyrrum landsliðs-
maður Brasilíu er þjálfari
japanska landsliðsins?
4. Hvaða leikmaður Ekvador
fagnaði marki gegn Kosta
Ríka með því að setja upp
gula Spider-Man grímu?
'sspame)! uba| 't' 'osg í 'iafiuuinog
IIV 'Z 'pjPJJOQ U0A91S 6o ipnoj) JOJOd 'l
Angóla - íran
Leikstaður: Leipzig. Kl. 14
Staðreyndir um leikinn:
• íranir eru úr leik í keppninni
eftir að hafa tapað tveimur fyrstu
leikjum sínum. Ef Angólamenn
vinna þennan leik og Mexíkó
tapar gegn Portúgal verða þeir
jafnir Mexíkönum að stigum
í öðru sæti riðilsins. Þá kemst
liðið sem hefur betri markatölu
áfram.
• Angóla hefur spilað leikaðferð-
ina 4-5-1 í fyrstu tveimur leikjum
sínum en búist er við því að Luis
Oliveira Goncalves, þjálfari An-
góla, muni skipta yfir í 4-4-2 og
tefla fram öðrum sóknarmanni.
• Ekki veitir af því Angóla hefur
ekki enn skorað í keppninni og
varla fengið færi. Stigið fengu
þeir eftir markalaust jafntefli við
Mexíkó þar sem þeir síðarnefndu
óðu í færum.
• íranir hafa fengið á sig minnst
tvö mörk í síðustu fimm lands-
leikjum. Angólamenn munu hafa
það í huga þegar þeir freista þess
að skora sitt fyrsta mark á HM.
Portúgal - Mexíkó
Leikstaður: Gelsenkirchen. Kl. 14
Staðreyndir um leikinn:
• Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portú-
gals, mun líklega hvila Cristiano
Ronaldo, Deco, Costinha og Pe-
dro Pauleta þar sem þeir eru á
gulu spjaldi og yrðu því í banni
í 16-liða úrslitunum fengju þeir
spjald í þessum leik.
• Portúgal er komið áfram og
nægir jafntefli til að vinna rið-
ilinn. Mexíkómenn þurfa stig
út úr leiknum til að komast í
16-liða úrslit. Ef þeir tapa þurfa
þeir að treysta á að Angóla vinni
ekki íran og hljóti hagstæðari
markatölu.
• Portúgal og Mexikó hafa mæst
einu sinni áður. Það var í vináttu-
landsleik 1969 sem endaði með
markalausu jafntefli.
• Portúgal hefur ekki komist upp
úr riðlakeppni HM í 40 ár, eða
frá 1966. Liðið hefur unnið alla
fimm leiki sína á þessu ári og
ekki tapað í 14 leikjum í röð, eða
frá því að þeir töpuðu úrslitaleik
EM 2004 gegn Grikklandi.
• Liðin sem komast upp úr þessum
riðli mæta liðunum sem komust
upp úr C-riðli - Argentínu og
Hollandi.
Pedro Pauleta, Cristiano Ronaldo, Luis Figo og Deco á æfingu. Portúgalarnir eru ekki
bara frábærir knattspyrnumenn heldur þykja þeir myndarlegir með afbrigðum.
Skeytin inn
Táningurinn Cesc
Fabregas, leikmaður Ar-
senal, segir að spænska
landsliðið
hafi sýnt
að það
geti unnið
hvern sem
er og sé til
allslíklegt.
Spánverjar
hafa unnið
báða leiki
sína í riðlakeppninni og hafa
skorað sjö mörk en fengið á
sig eitt. „Við höfum unnið tvö
sterk Iið og erum mjög ánægðir
með frammistöðuna. Við
hræðumst ekki neitt,“ sagði
Fabregas. Hann kom inn á sem
varamaður gegn Túnis og gjör-
breytti leik sinna manna með
frábærri frammistöðu en svar-
aði af hógværð þegar hann var
spurður hvort hann ætti ekki
að vera í byrjunarliðinu: „Það
er ekki mín ákvörðun. Ég reyni
alltaf að gera mitt besta þegar
ég fæ tækifæri og vonandi verða
þau fleiri.“
Rafael Benitez segir
að það verði auðveld
ákvörðun fyrir Craig
Bellamy að ganga til liðs við
Liverpool. Rauði herinn hefur
boðið 6,5 milljónir punda í
Bellamy, sem er 26 ára, og
Blackburn hefur samþykkt.
„Bellamy er frábær leikmaður
sem myndi henta okkur vel. Ég
á ekki von á öðru en að hann
vilji koma til okkar því ég veit
að hann er aðdáandi Liverpool,“
sagði Benitez. Sóknarmenn
Liverpool ollu vonbrigðum í
fyrra og var markaskor liðsins
Nápi' Farðu alla leia I í wyí
Srtfjui 1 lífsins með heilbrigðum
■ HM-leikir dagsins: D-riðill
Fílabeinsströndin -
Serbía og Svart^allaland
Leikstaður: Munchen. Kl. 19
Serbía og Svartfjallaland fagnar marki í vináttulandsleik. Þeir hafa ekki haft ástæðu til
að fagna á HM enda búnir að tapa báðum leikjum sfnum og á leiðinni heim.
Argentína -
Leikstaður: Frankfurt. Kl. 19
Staðreyndir um leikinn:
• GiovannivanBronckhorst.Arjen
Robben, Mark van Bommel og Jo-
ris Mathijsen, leikmenn Hollands,
verða líklega hvíldir þar sem þeir
eru á gulu spjaldi. Sömu sögu er
að segja af Argentínumönnunum
Juan Roman Riquelme, Gabriel
Heinze og Hernan Crespo.
• Bæði lið eru komin áfram í 16-
liða úrslit eftir sigra á Fílabeins-
ströndinni og Serbíu og Svart-
fjallalandi. Þar munu þau mæta
Mexíkó, Iran eða Angóla.
• Argentína og Holland hafa mæst
risvar áður i lokakeppni HM.
rið 1974 sigruðu Hollendingar,
en fjórum árum síðar sigruðu
Argentínumenn Hollendinga í
úrslitaleik mótsins. Liðin mætt-
ust síðast í fjórðungsúrslitum
HM 1998. Þá sigruðu Hollend-
ingar 2-1 með glæsilegu sigur-
marki Dennis Bergkamps á
lokamínútunum.
• Ef Argentína sigrar verður það í
þriðja sinn sem þeir vinna alla
leiki sína í riðlakeppninni. Það
gerðist á HM1930 og 1978.
• Hollenska landsliðið hefur
ekki tapað í 14 leikjum í röð og
hafði ekki fengið á sig mark í 10
leikjum þegar Fílabeinsstrend-
Holland
Þessir Niöurlendingar voru í hörkustuði
eftir leikinn gegn Fílabeinsströndinni. og
vöktu mikla kátínu vegfarenda.
ingurinn Didier Zokora skoraði
gegn þeim í síðasta leik.
Staðreyndir um leikinn:
• Bæði lið eru úr leik í keppninni
eftir að hafa tapað gegn Argent-
ínu og Hollandi.
• Didier Drogba, sóknarmaður
Chelsea og Fílabeinsstrandar-
innar, verður í leikbanni eftir að
hafa fengið að líta tvö gul spjöld
í keppninni.
• Hjá Serbum verður Mateja Kez-
man, fyrrum leikmaður Chelsea
og núverandi leikmaður Atlet-
ico Madrid, í banni eftir brott-
rekstur í 6-0 tapleiknum gegn
Argentínu. Ognjen Koroman er
einnig í banni. Þá verða Ivica
Dragutinovic, Dusan Basta, Al-
bert Nadj og Danijel Ljuboja frá
vegna meiðsla.
Fílabeinsströndin og Serbía og
Svartfjallaland hafa aldrei mæst
áður. Fílabeinsstrendingar hafa
aðeins leikið átta landsleiki
gegn Evrópuþjóðum og unnið
þrjá, gert tvo jafntefli og tapað
þremur.
Kewell ekki
í leikbann
með eindæmum lágt á löngum
köflum.
Harry Kewell verður ekki settur
í leikbann þrátt fyrir að Markus
Merk, dóm-
ari í leik
Brasilíu og
Ástralíu, hafi
tilkynnt um
ósæmilega
hegðun hans
í leiknum.
Kewell hellti
sér yfir Merk
eftir leikinn
en Brasilía
fékk 25 aukaspyrnur á móti að-
eins níu hjá Astralíu og vildi
Liverpool-maðurinn meina að
dómgæslan hefði hallað óeðli-
lega á sína menn.„Maður verður
auðvitað pirraður þegar liðið
manns er að tapa og eðlilegt að
maður láti aðeins heyra í sér.
Markus Merk veit að ég meinti
ekkert með þessu - þetta er
bara hluti af leiknum. Þetta var
erfiður leikur að dæma og hann
gerði það vel,“ sagði Kewell við
fjölmiðla eftir að honum var
runnin reiðin. Áströlum nægir
jafntefli gegn Króötum til að
komast upp úr F-riðli. Sigri
Króatar hins vegar verða það þeir
sem komast upp úr riðlinum,
Andfætlingurinn
Harry Kewell.