blaðið - 21.06.2006, Blaðsíða 24
32 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006 blaöiö
Ný skáldsaga frá Peter Carey
Ástralski rithöfundurinn Peter
Carey er bókmenntaunnendum
að góðu kunnur. Hann hefur
tvisvar hlotið Booker-verðlaunin
fyrir bækur sínar en um verð-
launin keppa rithöfundar innan
Breska samveldisins. Verðlaunin
þykja ein virtustu bókmennta-
verðlaun Vesturlanda og meðal
verðlaunahafa síðustu ár eru
Margaret Atwood, J.M. Coetzee,
Ian McEwan, Arundathi Roy og
Pat Barker. Nú hefur ný skáldsaga
frá Peter Carey litið dagsins ljós.
Það myndi æra óstöðugan að telja
upp allar þær viðurkenningar sem
Peter Carey hefur fengið fyrir verk
sín en hann hefur notið mikillar hylli
jafnt gagrýnenda sem almennings.
Hann er fæddur árið 1943 og fljót-
lega hneigðist hugur hans til vísinda.
Hann hóf háskólagöngu sína í þeim
geira en fljótlega kynntist hann rit-
höfundunum Barry Oakley og Mor-
ris Lurie sem höfðu töluverð áhrif á
PeterCarey
hann og í kjölfarið ákvað hann að
snúa sér alfarið að skáldskap. Til að
byrja með sá hann sér farborða með
því að skrifa auglýsingatexta, en
margur rithöfundurinn hefur haft
lifibrauð sitt af því starfi, t.d. Sal-
man Rushdie.
Fyrsta skáldsaga Careys kom
út árið 1981 en áður höfðu tvö smá-
sagnasöfn litið dagsins ljós. Skáld-
sagan bar titilinn Bliss og þar fá
lesendur að fylgjast með hinum
tilvistarkreppta Harry Joe sem lifir
af hjartaáfall til þess eins að komast
að því að líf hans sé hreint helvíti.
Sagan þótti hnyttin og skörp ádeila á
samfélag samtímans sem sinnti lítið
um umhverfismál og gleymdi sér í
bullandi neyslu og sjálfsvorkunn.
Margir gátu speglað sig í hinum
eymdarlega Harry Joe sem
þurfti marga fjöruna
að súpa og lesendur
tóku Peter Carey strax
opnum örmum.
Oscar og Lucinda
Þekktasta skáld
saga Careys er án
efa Oscar and Luc-
inda. Hún kom
út árið 1988. Þar
segir frá pari um
miðja nítjándu
öld sem kynnist
fyrir tilviljun
og með þeim
takast heitar
ástir. Þau eiga
í undarlegu
og harm-
rænu sam-
bandi sem
einkennist nokkuð
af sameiginlegri fýsn þeirra í fjár-
hættuspil. í sögunni þótti Carey tak-
ast einstaklega vel að kryfja harðan
raunveruleika hinnar nýju Ástralíu
við upphaf níunda áratugar tuttug-
ustu aldar sem var fullur af flækjum
sem oftar en ekki tengdust árekstri
kynþátta og félagslegu misrétti. Árið
1997 var gerð kvikmynd eftir bók-
inni sem mörgum er líklega í fersku
minni. Gillian Armstrong leikstýrði
og fóru þau Ralph Fiennes og Cate
Blanchett með hlutverk parsins.
Peter Carey hefur oft lýst því yfir
að markmið skáldskapar hans sé að
uppgötva land sitt og þjóð á nýjan
hátt og enginn vafi er á því að í sög-
unni Oscar og Lucindia tekst honum
það ætlunarverk sitt prýðilega.
Ný skáldsaga
Hinir fjölmörgu aðdáendur Peter
Careys ættu að kætast þessa dagana
því nú nýlega kom út ný skáldsaga
eftir hann. Hún ber titilinn Theft: A
Love Story.
„Ég veit eldd
l hvort saga
mín sé nógu
stórbrotin til
þess að geta
talist harm-
saga, þó svo að
sannarlega hafi
margt ömurlegt
hent mig. Hún
er svo sannarlega
ástarsaga, þó að
ástin hafi ekki
mætt mér fyrr en
ég var kominn vel
á legg, en þá hafði
ég ekki aðeins misst
átta ára son minn
heldur líka glatað húsi
mínu og vinnustofu í
Sydney...“ Svo mælir
listamaðurinn Butcher
Bones í upphafi nýju
skáld- sögunnar. Þar segir frá
honum og akfeitum bróður hans,
Hugh. Saman hafa þeir flúið harm-
How Do You Like
Iceland í Iðnó
Kolbrún Anna Björnsdóttir og Darren Foreman
Við könnumst öll við aulahroll-
inn sem hríslast niður eftir bak-
inu alla leið niður í tær þegar við
sjáum glaðhlakkalegan frétta-
mann á skjánum rjúka á granda-
lausan túrista á förnum vegi og
skella á hann spurningunni:
„How do you like Iceland?"
Fréttamaðurinn bíður svo spenntur
með áleitið blik í auga eftir því að
útlendingurinn láti falleg orð falla
um land og þjóð. Oftast stynur
ferðalangurinn upp einhverju sem
hvorki er fugl né fiskur og segir
lítið um raunverulegt álit hans á
landi og þjóð. Hann segir bara eitt-
hvað til að sleppa í burtu.
Það hefur lengi verið vinsælt
að spyrja poppstjörnur og önnur
fyrirmenni sem rekur hingað á
land hvernig þeim lítist nú á land
og þjóð og verða svörin gjarnan
fréttamatur. Eins og oftast þá
segir spurningin mun meira um
þann sem ber hana upp en þann
sem verður fyrir svörum. Það er
kunnara en frá þurfi að segja að
við íslendingar erum ákaflega upp-
teknir af því hvað öðrum finnst
um okkur. Við viljum vita hvað
erlendum þjóðum finnst um útrás-
ina ógurlegu, fegurðardrottning-
una blíðu og álfabörnin í Sigurrós.
Skemmst er að minnast heimilda-
myndar Kristínar Ólafs sem sýnd
var í Ríkissjónvarpinu í fyrra. Þar
tókst Kristín á við ímynd íslensku
þjóðarinnar í vitund útlendinga
og blandaði saman viðtölum, stað-
reyndum og ýmsu myndefni til að
spegla íslensku þjóðina.
f Iðnó við tjarnarbakkann eru
nú að hefjast á ný sýningar á leik-
riti Benónýs Ægissonar sem ber
þennan skemmtilega titil „How
Do You Like Iceland?" Fyrsta sýn-
ingin er í kvöld og er leikritið flutt
á ensku. Sýningargestir fá að slást
í för með leikurnum, þeim Darren
Foreman og Kolbrúnu Önnu Björns-
dóttur, um ævintýraveröld fslands-
sögunnar. Verkið er stútfullt af
spaugi og kátínu og Benóný kann
þá list að gera góðlátlegt grín að
landanum.
Þau Darren og Kolbrún bregða
sér í gervi ýmissa persóna úr sög-
unni og ná að endurspegla flest
það sem við íslendingar teljum að
geri okkur einstök. Gestir fá m.a.
að horfast í augu við kappann Ing-
ólf Arnarsson og óskabarnið Leif
heppna. Björk kemur einnig við
sögu auk fleiri geðþekkra persóna
úr samtíð okkar.
Fastar sýningar verða einu sinni
í viku i Iðnó, á miðvikudögum kl.
20:30, og mun gestum standa til
boða sérstakur íslenskur matseðill
á veitingastaðnum Tjarnarbakk-
anum fyrir sýningu.
Cate Blanchett í hlutverki Lucindu í kvikmyndinni Oscar og Lucinda árið 1997.
ræna fortíð sína og hafið nýtt líf
sem gengur stórtíðindalaust þar til
hin þokkafulla og dulúðlega Mar-
lene birtist á tröppunum hjá þeim
eina vindasama nótt á rándýrum
Malono Blahnik skóm. Heimsókn
hennar hrindir af stað ófyrirsjáan-
legri atburðarás sem á eftir að hafa
mikil og afdrifarík áhrif á líf allra
sem við sögu koma. Carey þykir tak-
ast vel upp í nýju bókinni og leifrar
hún af húmor. Sagan er skemmtileg
háðsádeila á hinn úrkynjaða lista-
heim og er hætt við því að einhverjir
kveinki sér undan beittri gagnrýni
Careys. Þeir sem láta heillast af ást-
inni í titli bókarinnar munu þó sann-
arlega ekki verða fyrir vonbrigðum
því segja má að bókin sé öllu öðru
fremur falleg og frumleg ástarsaga
sem mun láta fáa ósnortna.
SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
3 6 8 5 7 9 4 2 1
7 4 5 1 2 3 9 8 6
9 1 2 4 6 8 5 7 3
6 9 3 7 1 2 8 5 4
8 2 4 9 3 5 6 1 7
5 7 1 8 4 6 2 3 9
1 8 6 2 9 7 3 4 5
2 3 7 6 5 4 1 9 8
4 5 9 3 8 1 7 6 2
Su Doku þrautln snýst um
að raöa tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aöeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
2 8 7
3 6 2 5 9
9 5 1
1 3 9
4 9 5 8
3 6
9 3 5 6
4 9 7 1 3
4 9 5