blaðið - 21.06.2006, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006 blaöiö
ÁLFABAKKA
BÍLAR (sl. tol KL 1:30-3-5:30-8
CARS onskt tal KL 3-5:30-8-10:30
CARS onskt tal VIP KL 4:15-8-10:30
SLITHER KL. 8-10:30
KEEPING MUM KL 3:30-5:45-8-10:20
SHE'STHEMAN KL 3:30-5:45-8-10:20
POSEIDON KL 5:30-10:30
BAMBI 2 ísl. tal KL. 1:30
KRINGLUNNI
smÍðflM
BÍLAR ísl. tal
CARS enskt tal
KL 4-6:30
KL 4-5:30-8-9-
10:30-11:15
KL 10:30
KL 6:10
KL8
KEFLAVÍK
AKUREYRI
lurciri 'ob
SáMMMm
BILAR ísl. tal
CARS enskt tol
SLITHER
KL 6-8
KL 6-8-10
KL10
CARS enskt tai
BÍLAR ísL tol
KEEPING MUM
POSEIDON KL 6:10-8:20-10:30
THE DAVINCI CODE KL6-9
Ml:3 KL11
KL 6-8:30-11
KL 6-8:30
KL 6-8:20-10:30
kl. 5.40,8 og 10.20
DAVINCICODE
kl.5og8B.U4ÁRA
DAVINCICODE ÍLÚXUS
kl. 5og8 B.L 14ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl. 3.40
ISÖLD 2 ÍSLENSKT TAL
kl. 3.40
RECílBOGinn
JUSTMYLUCK
kl. 5.40,8 og 10.20
RV
kl.5.50
TAKETHELEAD
kl. 8og10.30
THE 0MENB.L16ÁRA
kl. 8og 10.30
DAVINCICODE
kl.6 og9 B.I.14ÁRA
RAUOHETTAISLENSKT TAL
TAKETHELEAD
kl. 5.45,8 og 10.20
16-BLOCKS
kl. 6,8og 10.10B.L14ÁRA
THE OMEN B.L16ÁRA
kl.8og10.10
X-MEN 3
kl.6 B.L12ÁRA
HíéSSSSSS
JUSTMYLUCK
akl. 6,8og 10
RV
kl. 6 og 8
THE OMEN B1.16 ÁRA
kl. 10
DG Dolby /DD/ TFTx ^ bío.is
y
34 I AFÞREYING
Disney leiðir áhorfendur
um œvintýralendur
Teiknimyndin Cars verður frumsýnd í kvöld í Sambíóum um land allt
Hver hefur ekki gaman af því að bruna um þjóðvegina í fögrum farkosti?
Hvað erað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
13.00 -Málþing
Málþing um notkun erfðatækni
í landbúnaði. Þingið er haldið á
vegum Bændasamtaka íslands,
landbúnaðarráðuneytisins og
Landbúnaðarháskóla Islands,
með tilvísun til ályktunar bún-
aðarþings 2005. Fjallað verður
um erfðatækni út frá ýmsum
hliðum, en áhersla verður lögð á
að kynna möguleika og tækifæri
plöntuerfðatækni hér heima og
á alþjóðavisu. Fyrirlesarar eru
meðal fremstu vísindamanna
okkar og einnig koma tveir
vísindamenp frá Bretlandi og
Bandaríkjunum, sem eru meðal
virtustu fagmanna og ráðgjafa á
þessu sviði.
Háskóli íslands
13.30 -Fyrirlestur
Sæunn Halldórsdóttir mun
halda meistaraprófsfyrirlestur
sinn í haffræði um áhrif af-
rennslis og tímaupplausnar
vindasviðs á reiknaða yfirborðs-
strauma við Island.
Háskóli íslands, stofa N132 í
Öskju
16.00-Tónlist
Sænski karlakórinn Váxjö Man-
skör heldur tónleika í Norræna
húsinu í dag klukkan 16. Verald-
legir söngvar, kirkjuleg tónlist
og sálmasöngur ásamt klass-
ískum sænskum vísum og sum-
arlögum eru á dagskrá kórsins.
Norræna húsið, Sturlugötu 5
20.30-Leiklist
Frumsýning á verkinu How do
you like Iceland?
Iðnó
Disney-fyrirtækið góðkunna
hefur um árafjöld glatt börn
og fullorðna með ljúfum teikni-
myndum. Það myndi æra óstöð-
ugan að telja upp allan þann
fjölda teiknimynda sem runninn
er undan rifjum samsteypunnar
en öll þekkjum við indiánastúlk-
una fagureygðu Pocahontas og
ljónsungann Simba sem brætt
hafa ótal hjörtu. Síðustu ár hefur
Disney leitt okkur um undraver-
öld skordýra, skrímsla, leikfanga,
fiska og ofurhetja og nýtt sér
nýjustu stafrænu tækni í þeim
tilgangi.
Aðdáendur Disney-teiknimynda
ættu að horfa til kvöldsins í kvöld
með stjörnur í augum því nýjasta
útspil þeirra er væntanlegt á hvíta
tjaldið. Þetta er stafræn mynd sem
hefur svipað yfirbragð og The Indr-
edibles, Finding Nemo og Bug's Life
og ættu aðdáendur þeirra mynda
ekki að verða fyrir vonbrigðum.
Cars fjallar um bílinn Lightning
McQueen sem þráir ekkert heitar en
að spreyta sig í kappaksturskeppni.
Bíll þessi er sannfærður um að hann
sé rjómi bílaflota heimsins og horfir
kokhraustur til þessa verkefnis.
Þegar á hólminn er komið lækkar
þó nokkuð rostinn í söguhetju okkar
og ýmis ævintýri verða á vegi hans á
hinu langa ferðalagi sem kappakst-
urinn er. Sagan hefur göngu sína í
rólyndisbænum Vatnskassavin þar
sem heimurinn snýst um bíla og ekk-
ert annað. Það er þó fremur kyrrt og
hljótt í bænum eftir að ný hraðbraut
var lögð í nágrenninu. Bílar litla bæj-
arins verða því furðu lostnir þegar
Lightning McQueen rambar inn í
bæinn með tilheyrandi látum þess
sem er fullviss um eigið ágæti.
Söguhetja okkar kynnist ótal
öðrum bílum og þeir bruna saman
út um borgir og eyðilendur. Eins og
oft áður ganga ýmsar stórstjörnur
til liðs við Disney og ljá persón-
unum marglitu rödd sína. Þar má
nefna þau Bonnie Hunt, Owen Wil-
son, Cheech Marin og Paul Newman.
Óhætt er að mæla með þessari heill-
andi teiknimynd fyrir unga sem
aldna.
★★★★★★★★★★★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
★
Opið: *
Mán-Fös: 10-18 J
Lau: 11-16 *
TARINN
Fjóðfæraverslun
Da Capp
Pokl, Stillitæki, Gítameglur
Verð Kr.
15.900,-
Verð áður: 20.590 *
í Stórhöfða 27 • Slmi: 552-2125 • www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
Líf þeirra Ashley Albright og Jake breytist á svipstundu þegar þau kyssast.
Ungfrú fullkomin
og herra óheppni
Gamanmyndin JustMyLuckmeðLindseyLohan íað-
alhlutverki verður frumsýnd á miðvikudag 21. júní í
Smárabtói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri.
Hér er á ferðinni unglingamynd um
það hvernig lukkan getur elt mann
á röndum en á einu andartaki getur
allt snúist við og þó að maður hitti
draumaprinsinn getur allt hitt verið
í klessu. Myndinni var leikstýrt af
Donald Petrie og hefur fengið góða
dóma í Bandaríkjunum. Lindsey Lo-
han, sem þekktust er fyrir leik sinn
í Mean Girl, fer með eitt af aðalhlut-
verkunum og er hún upprennandi
stjarna, aðeins 19 ára gömul.
Ashley Albright, sem leikin er af
Lohan, er heppnasta stelpan í heim-
inum, fær allt upp í hendurnar og
lífið brosir við henni. Hún nær sér
í lottómiða og dettur í lukkupott-
inn. I New York, erilsömustu borg í
heimi, þarf hún aldrei að bíða eftir
leigubíl, hún er í frábæru starfi og
allt gengur eins og í lygasögu.
Á hinn bóginn er það svo Jake sem
leikinn er af Chris Pine. Lífið er ekki
eins frábært hjá honum, hann er
eins og segull á ógæfu. Hann vinnur
við það að þrífa klósett í keilusal og
er það lýsandi dæmi um það hvernig
líf hans er. Hann spilar i rokkhljóm-
sveit sem er frekar misheppnuð en
er að reyna að öðlast frægð. Þeir fá
eitt tækifæri til að spila fyrir fræga
tónlistargúrúinn Damon Phillips.
Þetta eina kvöld sem þeir spila fyrir
Phillips verður mjög afdrifaríkt og
það má með sanni segja að heppnin
sem hefur fylgt Ashley og ólukka
Jakes víxlist með skemmtilegum
afleiðingum.