blaðið - 21.06.2006, Page 27
blaðið MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006
AFÞREYING I 35
Palli Óskar stígur vals
Það er mikið um að vera hjá Páli Óskari þessa dagana. Hann valsar úr einni tónlistarteg-
und í aðra og er ánœgður með lífið og samstarfið við Moniku.
„Ég syng swing og latin með Millj-
ónamæringunum, hoppa svo yfir
í danstónlist, syng ljúfa tóna með
Moniku og þeyti svo skífum eins
og brjálæðingur með allt mitt
diskó- og Eurovision-efni sem
ég fíla alveg í tætlur,“ segir Páll
Óskar. „Það er algjör lúxus að fá
að valsa svona á milli og það er
alveg akkúrat fyrir mig,“ heldur
Palli áfram.
Vinnur að plötu til styrktar
MNDsjúklingum
Páll Óskar hefur margt og mikið
verið að bralla að undanförnu og
í kvöld eru tónleikar hjá honum
og Moniku í Grasagarðinum. Þar
munu þau meðal annars flytja lagið
Lilja við ljóð eftir Gunnar Dal sem
hann samdi til konu sinnar. „Þetta
lag kemur einnig út von bráðar á
plötu sem er til styrktar MND sjúk-
Páll Óskar syngur ásamt Mónlku inn á plötu til styrktar NMD sjúklingum.
lingum," segir Palli. „Mér hefur liðið
mjög vel í þessu tónlistarumhverfi
með Moniku síðan við byrjuðum að
vinna saman og það er frábært að fá
að vinna með henni og að geta lagt
MND sjúklingum lið,“ bætir hann
við.
Nóg að gera hjá
Milljónamæringunum
„Ég er alltaf að spila með Millunum
öðru hvoru; við spilum alltaf, en
mest á lokuðum samkomum eins
og árshátíðum ogþess háttar. 2. sept-
ember munum við hinsvegar spila
einhvers staðar þar sem allir geta
komið og hlustað á okkur, svo takið
daginn frá,“ segir Páll Óskar.
Fjögurra mánaða fóstur
„Ég er að vinna að dansplötu en það
er allt of snemmt að tala um hana
núna, það væri hreinlega eins og
að tala um hvort fjögurra mánaða
fóstur væri með augun hans pabba
síns eða ekki. Ég bara veit ekki
hvernig hún þróast eða hvað ég geri,“
segir Palli. „Platan kemur bara út
þegar hún er tilbúin,“ heldur hann
áfram. Eitt er þó víst að það verður
örugglega skemmtilegt að fylgjast
með því sem kemur frá Páli.
kristin@bladid.net
Uppselt á tónleikana
Páll Óskar og Monika halda sína árlegu sólstöðutónleika á
Café Flóru í Grasagarðinum Laugardal í kvöld
Það eru einungis
þeir sem nú þegar
hafa tryggt sér
miða á tónleika
þeirra Páls Ósk-
ars og Moniku
sem fá að njóta
ljúfra tóna þeirra
í Grasagarðinum
í kvöld. Þetta eru
ekki stórir tón-
leikar og einungis
er pláss fyrir um
130 manns á Café
Flóru þar sem
tónleikarnir eru
haldnir.
„Það er svo skemmtilegt að
spila í Grasagarðinum og við
Monika spiluðum fyrst saman
árið 2001, nákvæmlega á þessum
stað og á þessum degi. Við höfum
haldið tryggð við staðinn síðan.
Það er hreinlega eins og að spila
úti í guðsgrænni náttúrunni að
vera á Café Flóru og það er alveg
yndislegt," segir
Páll Óskar.
Á efnisskránni
verður bæði nýtt
og gamalt efni
eftir íslenska og
erlenda höfunda,
þar á meðal
Hreiðar Inga
Þorsteinsson,
Magnús Þór og
Burt Bacharach.
Þar sem þetta
er lengsti dagur
ársins munu svo
tónleikagestir
ganga út í sumar-
nóttina eftir ljúfa tóna Páls Óskars
og Moniku.
Þeir sem ekki fengu rniða geta
hins vegar glaðst yfir því að þau
Páll og Monika munu spila saman
á Menningarnótt í Reykjavík, og
þótt dagurinn sé tekinn að stytt-
ast í ágúst lofa þau engu síðri
tónleikum.
Bassleikari Arctic
Monkeys hœttir
Enn hefur ekki komiö fram af hverju Andy Nicholson hefur sagt skilið við Arctic Monkeys.
Andy Nicholson, bassaleikari
spútniksveitarinnar Arctic
Monkeys, hefur yfirgefið sveitina.
Þetta kom fram í yfirlýsingu á
heimasíðu hcnnar í gær.
Með sorg í hjarta kveðjum við Andy,
hann er ekki lengur hluti af hljóm-
sveitinni,“ segir í yfirlýsingunni.
„Nick O’Malley, sem leysti Andy af
í fjarveru hans á tónleikaferðalagi
sveitarinnar um Norður-Ameríku,
mun hlaupa í skarðið fyrir hann á
tónleikum í sumar.“
Ennfremur segir í yfirlýsingunni
að Andy hafi verið góður vinur
hinna þriggja meðlima sveitarinnar
í langan tíma. Við höfum gengið í
gegnum magnaða hluti saman sem
við gleymum aldrei. Við óskum
Andy alls hins besta.“
Ástæða brotthvarfs Andy hefur
enn ekki verið gefin upp opinber-
lega. Hinsvegar spruttu upp sögur
um ósætti rnilli meðlima sveitar-
innar þegar hún spilaði á tónleika-
ferðalagi um Norður-Ameríku án
Andy en þá var „meiðslum" kennt
um fjarveru hans.
The Arctic Monkeys eru nú á tón-
leikaferðalagi um Evrópu og koma
rneðal annars fram á Hróarskeldu-
hátíðinni í Danmörku sem hefst 29.
júní.
Justin Timberlake verður á kynferðislegu nótunum á sinni næstu breiðskífu.
Framtíðinr kynlíf
og ástarhljómur
Hjartaknúsarinn Justin Tiniber-
lake hefur staðfest að 11. september
næstkomandi sé útgáfudagur vænt-
anlegrar breiðskífu hans; „Future-
Sex/LoveSound“. Þá hefur fyrsta
smáskífa plötunnar, sem kemur út í
ágúst, hlotið nafnið SexyBack.
Breiðskífan fylgir eftir fyrstu
plötu Timberlake, Justified, sem
kom út árið 2003 og sló eftirminni-
lega í gegn. Platan gerði Timberlake
að stórstjörnu en margir héldu að
ferli hans væri lokið þegar hann yf-
irgaf strákasveitina Five.
Timberlake vinnur rneðal annars
með upptökustjórunum Timber-
land og Rick Rubin á plötunni. Nafn
þess síðarnefnda kemur mörgum á
óvart en hann er þekktastur fyrir
að vinna með Johnny Cash, Red Hot
Chilipeppers og þungarokkurunum
í Slayer. Athygli vekur að upptöku-
teymið The Neptunes kemur ekki
að neinu lagi á plötunni en þeir tóku
upp og sömdu stóran hluta síðustu
plötu Timberlake.
.T..a,wi, « S •
www.bilamarkadurinn.is
Smiðjuvegur 46-e
s; 567-1800 @[U)[L
FORD F250 HARLEY DAVIDSON.
Árg.04Ek.13þ.mSkiptiÓ/D
Tilboð Lán. Kr 3,6,- + kr. 300,-
FIAT DUCATO HÚS8ÍLL DÍSEL
04/95 ek.lOS þ.kSnyrtilegur
VOLVO S 70 2,5 20V sjátfsk.
03/97 ek.117 Toppbíll.
PEU6E0T 2061400 XTSJÁLFSK.
09/99 Ek.80 þ.k V.690,- Lán 240,-
MMC LANCER OZ RALLY 2,0
Árg.02 Ek.74þ.km V.1350,-
T0Y0TARAV4Árg.99
Ek.78þ.kmV.990,-
M.BENZ ML 500 EINN MEÐ ÖLLUH!!!
Árg.03 Ek.69þ.km SJÁLFSKIPTUR!!!
BMW 320 DfSEL SI.SK.Árg.03
Ek.155þ.km Hátt lán getur fylgt'!
Opnunartími: Mánudaga -
Föstudaga 10:00-19:00.
Laugard. 10:00 -17:00
Sunnud. 13:00-17:00
TOYOTA RAV 4 NEW SJÁLFSK.
12/01 EK.84Þ. V.1590,-