blaðið - 21.06.2006, Side 30
38 IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 21.JÖNÍ 2006 blaðið
BRÁTT KEMUR
EKKI BETRI TÍÐ
Smáborgarinn er mikill íþróttaáhuga-
maður og því hafa síðustu dagar verið
mikil gósentíð. Stærsta knattspyrnumót
heims, úrslit NBA og síðast en ekki sist
umspilsleikir fyrir HM í handbolta. Meira
en næg ástæða til að gera sér upp ban-
vænan sjúkdóm og loka sig inni heima
fyrirframan sjónvarpið.
Gula grýlan
Sigur íslenska handboltalandsllðsins í
einvíginu við Svfa var svo sannarlega kær-
kominn. Hin margumrædda „Svíagrýla"
hefði ekki getað verið kveðin niður á
betri tíma. Nú eru fslendingar á leiðinni
á HM í Þýskalandi en Svíar sitja heima og
það í fyrsta sinn í sögunni. Stórkostleg
frammistaða hjá strákunum okkar og
það var löngu orðið tímabært að lækka
rostann í þeim gulu. Þeir eru góðir með
sig og halda að þeirséu betri en við í öllu.
Smáborgarinn blæs á allar fullyrðingar
um að Svíarséu frændur okkar fslendinga.
Svíþjóð er þá a.m.k. frændinn sem maður
vill ekki bjóða f afmælið sitt því hann er
hrekkjusvfn og tekur allt dótið manns.
Hið yndislega HM
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu á hug
Smáborgarans allan og hefur verið mikil
skemmtun það sem af er. Mótið hefur
farið vel af stað og margir frábærir leikir
litið dagsins Ijós. Smáborgarinn er dygg-
ur stuðningsmaður Englendinga en hefur
ekki þótt þeir nægilega sannfærandi og á
ekki von á að þeir geti farið alla leið eins
og fyrir 40 árum. Brasilía hefur heldur
ekki sýnt sitt rétta andlit og miðað við
spilamennskuna það sem af er eru góðar
líkur á að Smáborgaranum verði að ósk
sinni og þeir muni ekki verja heimsmeist-
aratitil sinn.
Hins vegar virðast Argentínumenn
hafa alla burði til að ná mjög langt og
eins hafa Spánverjar og Hollendingar
heillað augað. Smáborgarinn er ánægður
þegar stórþjóðirnar spila vel. Hann vill
ekki sjá annað „Grikklands-fíaskó" eins
og á Evrópumótinu 2004 og spútniklið-
in frá Afríku mega halda áfram að vera
spútniklið svo lengi sem þau eru stöðvuð
í 8-liða úrslitum.
Að lokum má Smáborgarinn til með að
þakka Loga Ólafssyni fyrir frammistöðu
sína við lýsingar á leikjum. Logi er stór-
skemmtilegur og kemur með fjölmargar
kostulegar athugasemdir í hverjum leik.
Þó að brandararnir flokkist vissulega und-
ir aulahúmor, þá er þetta aulahúmor af
allra bestu gerð.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan á tslandi
Var unnið við kertaliós í fyrri-
nótt?
Nei, reyndar var það ekki gert. Það var þvi miður ekki kósí stemning hér
hjá okkur því menn voru á fullu að bjarga því sem bjargað varð. Þó að
rafmagnið hafi farið af kerjunum þá var nægt rafmagn fyrir ljósin í skál-
anum.
Bilun í rafbúnaði varð til þess að öll 160 ker í kerskála þrjú í álveri Alcan í Straumsvík eru nú óvirk. Starfsmenn reyndu að
bjarga einhverjum af kerjunum aðfaranótt mánudagsins, en án árangurs.
Frumsýning á myndinni Mission Impossible III
Tom Cruise veifar til aðdáenda þegar hann mætir með stæl á sýningu myndarinnar Mission Impossible III
Tom Cruise veifar til aðdáenda er hann
mætir til frumsýningar á myndinni Missi-
on Impossible III
Tom Cruise spilar á japanskar trommur sem nefnast„Wadaiko" íTókíó
Britney, Kevin og Sean, sonur þeirra
hjóna, virðast sæl og glöð í sjónum á
ströndinni í Miami.
Allt i góðu hjá Britney
og Kevin Federline?
Allt virðist leika í lyndi þessa dagana hjá þeim hjónakorn-
um Britney Spears og Kevin Federline. Fyrir aðeins nokkr-
um vikum sagði Blaðið frá því að Britney Spears hefði
ráðfært sig við lögfræðinga sína um skilnað við rapparann
sem hefur verið henni erfiður. Nú eru þau stödd í sumar-
fríi íMiami ogsvo virðist ekki vera sem þau séu skötuhjúin
séu á þeim buxunum að skilja. Sástu hvar kúlan lenti?
Britney er ófrisk að öðru barni sfnu og er
augljóslega farið að sjá á henni.
eftir Jim Unger
8-28
w
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Steingrimur J. Sigfússon,
þingmaður og formaður
Vinstri grænna hefur ávallt
verið þekktur fyrir að vera
mikill úti-
vistarmað-
ur. Hann
tók sig til
s í ð a s t a
sumar og
gekk þvert
yfir ísland
einn síns
liðs. Um
daginn sást
hinsvegar til
hans skokkandi á stuttbuxum
á Sprengisandi. Ekki er vitað
hvort hann hafi verið að æfa
sig fyrir Reykjvíkurmaraþon-
ið sem verður í ágúst eða hafi
ákveðið að skokka þvert yfir
landið í þetta sinn.
Menn eru ekki vanir mót-
mælum á 17. júní, en gár-
ungarnir velta fyrir sér tilefni
hinna þöglu mótmæla Samfylk-
ingarinnar að morgni 17. júní.
Þá var að
venju hald-
in minning-
arathöfn
við grafreit
Jóns Sig-
urðssonar
forseta, þar
sem Hanna
Birna Krist-
jánsdóttir, forseti borgarstjórn-
ar, lagði blómsveig að leiði
forsetans og frú Ingibjargar.
Borgarfulltrúar Samfylkingar-
innar mættu hins vegar ekki,
sem er afar óvenjulegt. Varla
sváfu Dagur B. Eggertsson,
Steinunn V. Óskarsdóttir, Stef-
án Jón Hafstein og Björk Vil-
helmsdóttir öll yfir sig?
Wýr liðsmaður hefur bæst
í hóp NFS-manna. Það er
Símon Örn Birgisson sem áður
vann á DV. Fyrsta frétt Símon-
ar vakti nokkra athygli en þar
sagðihann
frábónda
sem gaf
hundum
s í n u m
hauslaus
hestahræ
að éta.
Fréttin
þ ó t t i
nokkuð
spaugileg
eins og margt sem Símon kem-
ur nálægt en margir rifjuðu
upp gamla og umdeildari frétt
sem Símon skrifaði eitt sinn í
DV um hestanauðgarann víð-
fræga. Það má orða það þannig
að Símon sé ekki af baki dott-
inn.
Mýhilistinn og vestfjarða-
skáldið Eiríkur Örn
Norðdahl hefur látið mikið
fyrir sér
fara und-
anfarin
ár. Hann
h e f u r
gefið út
allnokkr-
ar ljóða-
b æ k u r
og skáld-
sögu í
f u 11 r i
lengd. Hann hefur einnig ver-
ið mikill fánaberi ungskálda
á íslandi. Hróður Eiríks hef-
ur greinilega borist víða því
á heimasíðu hans stendur að
hugsanlega muni hann lesa
upp ljóð á rokkhátíðinni G-
Festival sem haldin er árlega í
Færeyjum.
valur@bladid.net