blaðið - 30.06.2006, Page 1
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
■ HEILSA: ■ DEIGLAN:
Pilla gegn offitu Búa til stærsta dýr
~r - JP jarðar á Húsavík
| SlÐA 24
146. tölublað 2. árgangur
föstudagur
30. júní 2006
Lata stelpan
óttast ekkert
Þrír ungirfemínistar hafa hreiðr-
að um sig í hjarta borgarinnar
með það að markmiði að draga
úr ótta samfélagsins gagnvart
því sem það þekkir ekki. „Sum-
ir strákar halda því fram að
femínistarséu ógnvekjandi
og stórhættuleg kvendi sem
séu að taka störf af körlum. Við
þekkjum samt nokkuð marga
karlkyns femínista og flestir vin-
ir okkar eru mjög jafnréttissinn-
aðir," segir Elín Björk Jóhann-
esdóttir sem ásamt
Uglu Egilsdótturog
Rakel Adolphsdóttur
vinnur skapandi
sun
um
%
■ ÍPRÓTTIR
HM í máli og
myndum
Heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu hefur verið sérlega glæsi-
legt til þessa. Blaðið tók saman
myndasyrpu af mótinu.
HM-stemning
föl í Kína
Kínverskur athafnamaður, Li Jie,
býður kínverskum knattspyrnu-
áhugamönnum upp á að anda að
sér stemningunni á vellinum á HM
í Þýskalandi gegn vægu verði. Li
Jie selur loft sem er pakkað í þar
til gerðar umbúðir rétt eftir að vell-
irnir eru slegnir fyrir leikina. Þeir
Kínverjar sem hafa ekki tök á því
að ferðast til Þýskalands geta því
keypt sér HM-stemninguna í poka
fyrir litlar fjögur hundruð krónur
og andað henni að sér eftir þörfum
meðan þeir horfa á leikina í sjón-
varpi. Li Jiu býður upp á loft frá vel-
flestum leikvöllum keppninnar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Li Jiu kemst í fréttirnar fyrir nýstár-
legar viðskiptahugmyndir. í fyrra
lokuðu stjórnvöld fyrirtæki Jians
sem seldi lóðir á tunglinu. Yfirvöld
eru nú að skoða hvort sala á HM-
lofti standist lög.
BMií/Frikki
FJÖRUFERÐ Þau Egill, Garðar og Ásta skelltu sér í fjöruferð í góða veðrinu á höfuðborgarsvæðinu í gær. Haldið var út á Seltjarnarnes þar sem krakkarnir spreyttu sig í þeirri þjóðlegu iðju ai
fleyta kerlingar.
Stefnt að stofnun sérstakrar
Þjóðaröryggisdeildar lögreglu
Ráðgert að leggja fram frumvarp á komandi þingi um stofnun 25-30 manna deildar sem
sinni forvirkum rannsóknarúrræðum. Verður undir ströngu eftirliti dómstóla og Alþingis.
Eftir Andrés Magnússon
Björn Bjarnason, dómsmálaráð-
herra, vill setja á laggirnar Þjóðar-
öryggisdeild undir embætti ríkis-
lögreglustjóra, sem muni hafa það
hlutverk helst að koma í veg fyrir
hryðjuverk og skipulagða glæpa-
starfssemi með forvirkum rann-
sóknarúrræðum. Líklegt er talið
að lagt verði fram frumvarp þessa
efnis á næsta þingi og telur ráðherra
að það muni njóta pólitísks hljóm-
grunns langt út fyrir stjórnarliðið.
25-30 manna deild
Dómsmálaráðherra kynnti í gær
matsskýrslu sérfræðinga Evrópu-
sambandsins um hryðjuverkavarnir
þar sem stofnun slíks embættis var
lögð til. Voru hann og hollenski
sérfræðingurinn dr. Niels Bracke
fyrir svörum á fundinum. Fram
kom í máli þeirra að hætta á hryðju-
verkum og röskun allsherjarreglu
væri talin lítil hér á landi, en Björn
ítrekaði að hann teldi skynsamlegra
að fara þessa leið heldur en að hafa
ekkert aðhafst ef einhver voðaverk
væru framin hér á landi.
í máli dr. Bracke kom fram að
slík Þjóðaröryggisdeild þyrfti að
hafa um 25-30 manns á að skipa til
þess að geta sinnt hlutverki sínu.
Þar horfa menn fyrst og fremst
til hryðjuverkastarfsemi og skipu-
lagðri glæpastarfsemi, en einnig var
bent á að margt fleira væri í verka-
hring hennar og var til dæmis tekið
eftirlit með fótboltabullum, líkt
og rækt hefur verið með góðum ár-
angri á HM í fótbolta þessa dagana.
Nokkuð er vikið að svonefndum
„forvirkum rannsóknarúrræðum" í
skýrslunni, enda verður hlutverk
deildarinnar einkum að afla og
greina upplýsingar með það fyrir
augum að koma í veg fyrir að
glæpir séu framdir. Gert er ráð fyrir
að meðal úrræðanna séu hleranir
og eftirlit með einstaklingum, en
fyrst og fremst mun deildin fara
yfir gögn og ábendingar frá öðrum
deildum lögreglu, ríkisstofnana og
embætta.
Fram kom í máli þeirra Björns
og dr. Brackes að nauðsynlegt væri
að Þjóðaröryggisdeild starfaði með
leynd, verkefni hennar væru þess
eðlis. Þrátt fyrir að ýmis rök gætu
hnigið að algeru sjálfstæði slíkra
stofnana taldi dr. Bracke að smæð
íslenska stjórnkerfisins gerði slíkt
ómögulegt, á landinu öllu starfaði
671 lögregluþjónn.
Á verði gagnvart
varðmönnunum
Frá Norðurlöndum hefðu menn
enda ágæta reynslu af því að slíkar
deildir störfuðu innan lögreglunnar.
Þær hefðu þó eðli máls samkvæmt
meira sjálfstæði en gengi og gerðist.
Ráðherra lagði áherslu á að þó
lagt væri til að deildin starfaði með
leynd, gæti hún þó engan veginn
farið sínu fram. Hún myndi líkt og
önnur lögregluembætti lúta aðhaldi
dómstóla og vegna viðkvæms eðlis
hennar væri ástæða til sérstaks
eftirlitshlutverks Alþingis með
Þjóðaröryggisdeild.
Þurfum að taka mark á
mati sérfræðinga
Aðspurður um þörfina fyrir eftir-
litsstofnun af þessu tagi kvað Björn
mat sérfræðinganna liggja fyrir og
að mark bæri að taka á því. Þörfin
hefði komið æ betur á daginn að
undanförnu eftir því sem samstarfi
við aðrar þjóðir í öryggismálum
hefði orðið nánara, þó ekki væri
nema til þess að njóta viðurkenn-
ingar, sem jafngildur aðili að samfé-
lagi öryggis- og löggæslustofnana á
Vesturlöndum.
Til þess að vinna að framgangi
málsins hefur dómsmálaráðherra
stofnað starfshóp til að vinna úr til-
lögum í matsskýrslunni og að þeim
ákvæðum nýsettra laga um lögreglu-
mál, sem fjalla um greiningu og
áhættumat. í hópnum eru Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri og
formaður hans, Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir, sýslumaður á ísafirði, Jó-
hann R. Benediktsson, sýslumaður
á Keflavíkurflugvelli, Arnar Jens-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn og
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
en Hólmsteinn Gauti Sigurðsson,
lögfræðingur í dóms- ogkirkjumála-
ráðuneyti, er ritari hópsins.
andres.magnusson@bladid.net