blaðið - 30.06.2006, Page 15
blaðið FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006
DEIGLAN I 15
Lárus Einarsson uppiýsingafuiltrúi
Færeyskra daga setur upp aðstööu í
Bleika Pardusinum
Fœreyskir
dagar
Nú um helgina verður hin árlega
fjölskylduhátíð Færeyskir dagar
haldin í Ólafsvík og er þetta í
níunda sinn sem bæjarhátíð þessi
er haldin. Lárus Einarsson er upp-
lýsingafulltrúi Færeyskra daga.
„Hátíðin var fyrst haldin árið 1998
og upphafsmenn hennar voru
þrír Færeyingar í Ólafsvík og
makar þeirra. Það er því kannski
engin tilviljun að hátíðin sé til-
einkuð Færeyingum því þeir tóku
mikinn þátt í atvinnulífi Ólafs-
víkur. Árið 1958 voru Færeyingar
um 20% af fjölda bæjarbúa.“
En hvað er það sem gerir Færeyska
daga færeyska fyrir utan nafnið og
upprunann? „Það er skerpikjötið,
súpan og annar færeyskur matur
sem við höfum alltaf verið með.
Færeyskur matur hefur þannig iðu-
lega verið hér á boðstólum, aðallega
svona smá smakk,“ segir Lárus.
Spilað á Bleika pardusinum
Fjölbreytt dagskrá er í boði alla helg-
ina og má nefna að Ronja ræningja-
dóttir kemur í heimsókn svo og Tóti
tannálfur og Sölvar súri. Þá verður
haldin söngkeppni fyrir börn og ung-
linga, kassabílarallý, bekkpressu-,
golf-, og bryggjumót. Einnig verður
dansatriði frá eldri borgurum í Ólafs-
vík. Dansleikir verða haldnir bæði
kvöldin og á föstudagskvöld mun
Hoskiebrothers spila á bryggjuballi
en á laugardagskvöld mun hljóm-
sveitin I svörtum fötum leika fyrir
dansi. „Þetta er fyrir alla aldurs-
hópa og dagskrá báða dagana, frá
morgni til kvölds. Hoskiebrothers
er ný hljómsveit sem var stofnuð
af tveimur bræðrum búsettum á
Ólafsvík. Þeir spila alla músík og
eru frekar léttir. Þeir munu spila í
Bleika pardusinum en það er gamla
salthúsið. Við höfum innréttað það
og lagað en það er eingöngu notað á
Færeyskum dögum," segir Lárus.
Gífurlega vel sótt
Hátíðin hefur frá upphafi verið vel
sótt og virðist fólk koma hvaðanæva
af landinu og sama fólkið aftur og
aftur. „Þetta hefur verið svona á
bilinu 4 þúsund - 9 þúsund manns
sem hafa mætt á hverju ári. Sumir
telja að það hafi farið yfir 10 þúsund
manns árið 2003 þegar allt var talið.
í Ólafsvík búa um 1200 manns en
við höfum hingað til náð að taka við
þessum fjölda. í fyrra mátti nú varla
vera meira og var tjaldað þar sem
hægt var að tjalda, inni í görðum og
hvar sam grasblettur var. Fyrir hátíð-
ina í ár eru nú þegar nokkrir mættir
á svæðið til að fá bestu stæðin.
Mjög öflug gæsla verður á
staðnum í samvinnu við sýslumann
og lögreglu á Snæfellsnesi. „Það
verður mjög öflug gæsla út af ung-
lingadrykkju og við viljum beina
þeim tilmælum til fólks að senda
ekki unglinga undir lögaldri," segir
Lárus. Þá er fólk minnt á að huga vel
að fatnaði og klæða sig eftir veðri.
Dagskrána í heild sinni er hægt
að nálgast á snb.is.
Hvalahátíð á Húsavík
Hin árlega Hvalahátíð á Húsavík
verður haldin í dag, föstudag, og á
morgun. Þá verður byggð 33 metra
löng steypireyður úr svörtum sandi
í suðurfjörunni á Húsavík í dag.
Öllum er velkomið að taka þátt í að
búa til stærsta dýr jarðarinnar.
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu-
maður Hvalasafnsins á Húsavík,
segir að hátíðin hafi farið vaxandi
ár frá ári en þetta er fimmta árið
sem hún fer fram. „Þetta er í og með
gert til að vekja athygli á því að það
er ýmislegt hægt að læra um hvali,
þetta eru ekki bara spikklumpar
úti á sjó sem eru að éta okkur út á
gaddinn eins og sumir halda fram.
Það er markmiðið að gera eitthvað
skemmtilegt úr þessu fyrir krakka
sem og fullorðna. Fá liðið niður í
fjöru og leika sér þar. Maður er nátt-
úrlega sjálfur alinn upp við það að
leika sér i fjörunni en hér er þessi
æðislega fjara fyrir neðan bæinn,
kilómetri á lengd og um 100 metrar
á breidd,“ segir Ásbjörn.
Það verður margt um að vera
á Hvalahátíð og má nefna að Arn-
grímur flugkappi kemur í heimsókn
á listflugvél sinni á meðan bygging
steypireyðarinnar stendur yfir. I
kvöld verður síðan Ómar Ragnars-
son með myndasýningu og fyrir-
lestur í Hvalasafninu sem hann
kallar „Landið sem líður hjá“.
Uppblásinn Keikó
Á laugardeginum verður farið í
skrúðgöngu með uppblásinn hval
frá Hvalasafninu að hafnarvoginni
þar sem hópurinn verður vigtaður
um klukkan 14.00 en svo hefst
sandkastalakeppni í suðurfjörunni
fyrir alla fjölskylduna. „Við förum í
skrúðgöngu með Keikó en við eigum
slíkan uppblásinn í fullri stærð.
Síðan vigtum við hópinn og sjáum
hvaða þyngd við náum að hvalígildi.
Fyrst vorum við bara ígildi hnísu
þegar lítið var um fólk, síðan höfr-
unga en náðum ígildi hrefnu í fyrra.
Hópurinn er þannig að þyngjast en
við náum sennilega seint steypireyð.
Við þyrftum að fá 1.770 manns til að
33 metra steypireyður verður byggð í
fjörunni á Hvalahátíð á Húsavík
jafna þá þyngd,“ segir Ásbjörn.
Allir þátttakendur fá aðgöngu-
miða að Hvalasafninu og veitt verða
verðlaun fyrir skemmtilegustu
listaverkin.
Að lokum mun Árni Finnsson,
formaður Náttúruverndarsam-
taka íslands, flytja fyrirlestur á
Hvalasafninu á laugardag. Fyrir-
lesturinn kallar hann: „Hvalir í
umhverfisumræðunni“.
KB LIFEYRIR
... þú átt það inni!
Þegar þú þarft ekki lengur aö mæta til vinnu eftir langa starfsævi viltu njóta lífsins.
Búöu þig undir spennandi starfslok meö því aö ávaxta skyldu- og viöbótarlífeyrissparnaöinn
þinn hjá KB þanka í KB Lífeyri.
Yfir 70 þúsund einstaklingar eru meö lífeyrissparnaö sinn í KB Lífeyri og þeir sem eru einnig
(viöskiptum viö KB banka njóta enn betri kjara í bankaþjónustu.
Kynntu þér þá kosti sem í boöi eru í næsta útibú KB banka,
hringdu í ráögjafa í síma 444 7000 eöa faröu á kblifeyrir.is
KB BANKI
KB Lífeyrir samanstendur af Frjálsa lífeyrissjóönum, Vista og Lífeyrisauka.