blaðið - 30.06.2006, Blaðsíða 34
34 I AFÞREYING
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2006 blaöiö
ÁLFABAKKA
FAST & THE FUR. 3 KL 3-5:30-8-10:20
FAST & THE FUR. 3 VIP KL 4:15-8-10:20
BÍLAR ísl. tal KL 3-5:30-8
aRSenskftd KL 3-5:30-8-10:30
THE LAKE HOUSE KL 3:30-5:45-8-10:20
SLITHER KL 10:30
SHE'STHEMAN KL 3-5:45-8
POSEIDON
KL 10:30
KRINGLUNNI
MÉll
THE LAKE HOUSE KL. 6-8:15-10:30
CARS enskt tal KL 6-8:30-11
BÍLAR ísl. tal KL 6-8:30
KEEPING MUM KL 6-8:20-10:30
POSEIDON KL 6:10-8:20
SUTHER KLll
Ml:3 KL 10:30
FAST&THEFUR.3 KL 3:30-6-
8:15-10:30
BÍLAR ísl. tal KL 3:30-5:30
*CARS enskt tal KL 3:30-6-8-10:30
‘POSEIDON KL 8:30
Ml:3
KL 10:30
KEFLAVfK
BILAR ísl. tal
KL 5:45
THECLICK KL. 8-10:10
FAST&FUR.3KL 5:45-8-10:10
AKUREYRI
smMm
THE LAKE HOUSE KL8-10
BÍLARísl.tal KL. 5:40
CARS enskt tol KL 5:40-8
KEEPING MUM KL 10:20
CUCK
kl. 3,5.30,8 og 10.30 Bi 10ÁRA
CUCKÍLÚXUS
W. 5.30,8 og 10.30B110ÁRA
JUSTMYLUCK
W. 5.40,8 og 10.20
RV
kl.3.40,5.50 og 8
X-MEN 3 Bl 12ÁRA
kl. 10.10
DAVINCICODE
kl. 6 og 9 B.L 14ÁRA
RAUDHETTA ÍSLENSKT TAL
W.4
ÍSÖLD 2 (SLENSKT TAL
W.3.40
REcnBOGinn
CUCK
W. 5.30,8 og 10.30 B.L 10ÁRA
JUSTMYLUCK
W. 5.40,8 og 10.20
RV
W. 5.50
THE0MENB116ÁRA
W. 10.30
TAKETHELEAD
W. 8
DAVINCICODE
W. 6og9 B.L 14ÁRA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
W. 4,6,8 og 10.15-P0WER B112ÁRA
CUCK
kl. 4,6,8 og 10.15 B110ÁRA
STAYAUVE
W. 8 og 10 B116ÁRA
16-BLOCKS
kl. 4 og 6 B.L 14 ÁRA
hujrtj7íri!/(i\
THE FAST AND THE FURIOUS 3
W. 8,10 og 12-POWER B112ÁRA
CLICK B.L 10ÁRA
W. 8,10og 12
JUSTMYLUCK
W. 6
RV
W. 6
TfcE Ðio.is
Stuðmenn á röltinu á
íslenskum kjötmarkaði
Það er allt í gangi hjá Stuðmönnum um þessar mundir. Birgitta
Haukdal og Stefán Karl eru gengin til liðs við bandið, nýtt lag er
komið útfrá þeim ogþau eru að leggja afstað í tónleikaferð.
„Þetta er sólríkt og ylhýrt sumar-
lag. Mér var sól í hug og hjarta
þegar ég samdi lagið. Textinn,
sem saminn er af Valgeiri
Guðjónssyni, hinum alkunna
stuðmanni, fjallar um nætur-
lífið og þreifingar sem eiga sér
stað á íslenskum kjötmarkaði
og einkenna íslenskt næturlíf að
sumarlagi," sagði Jakob Frímann
Magnússon þar sem hann sat í
sólríkri og ylhýrri Lundúnaborg
þegar blaðamaður Blaðsins náði
tali afhonum.
Hvernig gengur ykkur að starfa með
söngkonunni Birgittu Haukdal og
hinum nýju og ný-endursnúnu með-
limum hljómsveitarinnar?
„Það gengur ákaflega vel og Birgitta
er einstaklega góður félagi, skemmti-
leg og til fyrirmyndar í öllu sem hún
tekur að sér. Það var happafengur
og vítamínsprauta að fá hana til liðs
við sveitina,“ segir Jakob Frímann.
Með Birgittu Haukdal í hlutverki
söngkonunnar, stórleikarann Stefán
Karl í ýmsum hlutverkum og frum-
stuðmanninn Valgeir Guðjónsson í
hlutverki Lars Himmelbjergs rytma-
kóngs munu Stuðmenn fara víðs-
vegar um landið í sumar. Á morgun,
laugardag, verður tónleikaferðinni
formlega hrundið af stað á Nasa við
Austurvöll þar sem Reykvíkingum
gefst í fyrsta sinn kostur á að sjá
hljómsveitina opinberlega í þessari
mynd. Auk Birgittu, Stefáns Karls og
Valgeirs eru máttarstólparnir Egill Ól-
afsson, Jakob Frímann Magnússon,
Þórður Árnason, Tómas Tómasson
og Ásgeir Óskarsson á sínum stað.
Nýtt lag og tónleikaferð
Opinber frumflutningur nýja stuð-
mannalagsins „Á röltinu” mun eiga
sér stað á Nasa, en fyrsti flutningur
lagsins á öldum ljósvakans var í Kast-
ljósinu á miðvikudagskvöld. Auk
nýja lagsins munu mörg ný og eldri
lög verða flutt í nýjum eða breyttum
útsetningum á tónleikaferð hljóm-
sveitarinnar sem hún er nú þegar
lögð upp í. Ferð þessarar nýju útgáfu
sveitarinnar lýkur zö.ágúst með
hinni árlegu stórhátíð í íþróttahúsi
Gróttu á Seltjarnarnesi.
Völdu Birgittu frekar en
brúnkumeðferð
,Það þarf ekki að finna upp hjólið
aftur en það er gott að endurskil-
greina reglulega fyrirbrigði eins og
Stuðmenn sem hefur verið til lengi
og að mörgum finnst nánast allt frá
dögum landnáms. Það er ákaflega
hollt, ekld síst fyrir okkur gömlu
ræðarana. En bæði brytar og ræð-
arar fagna þessari endurnýjun og vít-
amíngjöf sem við höfum fengið. Við
stóðum andspænis því að við vildum
gera eitthvað til þess að hressa upp
á hljómsveitina, stundum höfum
við bara gallað okkur upp í nýja bún-
inga eða endurnýjað söngskrána. Nú
vildum við gera eitthvað meira og það
kom til dæmis til greina að senda alla
meðlimi hljómsveitarinnar í þriggja
mánaða líkamsræktarmeðferð, sól-
brúnkumeðferðir, tannhvítingar, hár-
ígræðslur, andlitslyftingar og testóst-
eronsprautur en þegar okkur bauðst
hinn valkosturinn var fallið frá öllu
hinu hafaríinu allsnarlega,“ sagði
Jakob Frímann í lokin.
kristin@bladid.net
Húsið við vatnið
Kvikmyndin The Lakehouse er sýnd í Sambtóunum Reykjavík, Ak-
ureyri og í Háskólabíói.
Kate og Alex eiga það eitt sameiginlegt að þau deila ást á sama
húsinu.
Dr. Kate Forester,
sem leikin er af
hinni þokkafullu
Söndru Bullock,
er aðalhlutverkið
í myndinni The
Lakehouse sem
sýningar eru nú
þegar hafnar á.
Myndin fjallar
um þau Alex
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemur á óvart
Nícorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuö þegar reykingum er hætt eöa þegar dregiö er úr
reykingum. Til aö ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiöbeiningum i fylgiseöli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir þvl hve mikiö er reykt, hvort hælta á reykingum eöa draga úr þeim. Því ber aö
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauösynlegt er aö lesa áöur en lyfin eru notuö, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitiö tíl laeknis eða lyfjafræðings ef þorf er á frekari upplýsingum um
lyfin. I>eir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öörum inmhaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heílablóöfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur meö barn á brjósti eiga ekki aö nota Nicorette
nikótínlyf nema aö ráði læknis. Lesiö allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er aö nota lyfið.
Geymíð fylgiseöilinn. Nauósynlegt getur verið aö lesa hann síöar.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboö á íslandi: Vistor hf., Hórgatúni 2, Garóabæ. www.nicorette.is
*Meðan birgöir endast
Wyler, leikinn af Keanu Reeves, og
Kate sem þekkjast ekki en deila ást
á sama húsinu. Kate, sem býr í hús-
inu, finnst eins og tími sé kominn
til að gera róttækar breytingar á lífi
sínu. Hún flyst úr fallega læknisbú-
staðnum sínum sem staðsettur er í
úthverfi Illinois í Bandaríkjunum
og til hinnar erilsömu Chicago-
borgar þar sem hún hefur störf á
stóru sjúkrahúsi. Það sem henni
þykir erfiðast er að yfirgefa húsið
sem hún hefur eytt ófáum klukku-
stundum í að endurbæta. Hún gerir
það þó með söknuð í hjarta og inn í
húsið flytur Alex. Tilfinningar Alex
eru einnig ákaflega sterkar til húss-
ins en það stafar mest af því að faðir
hans byggði það á sínum tíma. Kate
og Alex taka upp á því að skrifast á
og út frá því fara undarlegir hlutir
að gerast.
„Það sem mér fannst verst var að
húsið var ekki fullfrágengið svo að
ég gæti flutt inn í það. Þetta væri
frábær sumarbústaður og mér þykir
ákaflega vænt um húsið,“ segir
Sandra Bullock um húsið sem hún
tók ástfóstri við á meðan tökur á
myndinni fóru fram. Framleiðsla
myndarinnar gekk vel og hún hefur
fengið góðar viðtökur í Bandaríkj-
unum. The Lakehouse er leikstýrt
af Alejandro Agresti og segja gagn-
rýnendur vestanhafs að honum hafi
tekist vel upp.
Hvaðerað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
llðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
09.00 - Ráðstefna
Föstudaginn 30. júní og laugar-
daginn 1. júlí verður haldin ráð-
stefna um ensím í matvælum.
Háskólabíó
14.00-Fyrirlestur
Olivier Moschetta heldur meist-
araprófsfyrirlestur. Olivier er
meistaranemi við Háskólann í
Paris XI en hefur tekið verkefni
við HÍ sem ERASMUS-nemi.
Háskóli íslands - stofa 158
í VRII, húsi verkfræði- og
raunvísindadeildar
19.00 -Leiklist
Litla hryllingsbúðin
íslenska óperan
20.00 - Leiklist
Footloose
Borgarleikhúsið - Stóra sviðið
Miðasala á midi.is
20.30-Leiklist
How do you like Iceland? 2.
Sýning
Iðnó
21.00-Tónlist
Blúsband KK og reggíhljóm-
sveitin Hjálmar halda stórtón-
leika á NASA við Austurvöll.
KK kynnir nýja plötu um þessar
mundir og ber gripurinn heitið
„KK Blús“. Platan lítur svo dags-
ins ljós í byrjun júlí. Húsið
verður opnað kl. 21 og hefjast
tónleikarnir stundvíslega kl. 23
með blúsbandi KK.
Nasa, við Austurvöll
21.00-Tónlist
SouthRiverBandleikurfyrirgesti.
Á efnisskrá eru lög frá ýmsum
heimshornum auk laga og texta
eftir meðlimi SRB. Tónleikarnir
hefjast kl. 21:00 og standa í u.þ.b.
tvær klukkustundir. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.500. -
Kántrýbær, Skagaströnd
21.00 -Tónlist
Tónleikar með þjóðlagasveitinni
Narodna Musika verða í kvöld.
Haukur Gröndal á klarínett,
Nicholas Kingo á harmóníku,
Enis Ahmed á tambúra, Rasmus
Möldrup á kontrabassa og Yasar
Tas á slagverk og saz.
Hótel Búðir
22.00-Tónlist
Hljómsveitin Von leikur fyrir
dansi um helgina, föstudag og
laugardag, húsið opnað kl. 22,
frítt inn til miðnættis.
Vélsmiðjan Akureyri - Strand-
götu 49,600 Akureyri
22.00-Tónlist
Snilldarhljómsveitin Menn
Ársins spilar á Hressó i kvöld.
Sváfnir, Halli, Tóti og Diddi eru
allir atvinnutónlistarmenn sem
hafa gert þetta í fleiri ár en þeir
vilja viðurkenna!
Hressó, Austurstræti 20
23.00-Tónlist
Hljómsveitin Dans á Rósum
frá Vestmannaeyjum verður
með dúndurdansleik á Kringlu-
kránni helgina 30. júní og 1. júlí
næstkomandi. Dansleikurinn
hefst kl. 23.
Kringlukráin
24.00-Tónlist
Substance leikur fyrir dansi.
Frítt inn allt kvöldið, opið til
klukkan 04:00.
Dátinn, Akureyri
24.00-Tónlist
Dj Palli í Maus þeytir skífum frá
klukkan 24.00 - 06.00
Barn
03 Oolby /DD/
kristin@bladid.net