blaðið - 08.07.2006, Page 8
8IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðið
George Psaradakis, sem ók strætisvagninum sem gerfi var sprengjuárás á, leggur blóm-
iilmnr **!K Tvsiliff Arl/ InrfivrSXJtiM'*
Starfsfólk neðanjarðarlesta Lundúna vottar þeim sem létust virðingu sfna með tveggja
mfnútna þögn við lestarstöðina Russell Square
Bretar minnast
hryðjuverkaárásanna
Ár er liðið frá því að fjórar sprengjuárásir voru gerðar í Lundúnum
þar sem 52 létu lífið. Ian Blair, lögreglustjóri Lundúnalögreglunnar,
segir að búast megi við að reynt verði að gera fleiri slíkar árásir.
Lögreglumenn bera blómsveiga við athöfn við lestarstöðina King's Cross.
tennismótinu sem nú stendur yfir.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði að atburðurinn gæfi
tilefni til þess að Bretar sýndu hver
öðrum samhug og stuðning og þá
sérstaklega þeim sem misst hefðu
ástvini í árásunum hörmulegu.
Gjörbreytti lífinu
Minningarathöfnin í gær hófst á
því að borgarstjórinn Ken Living-
stone og Tessa Jowell, menningar-
málaráðherra, lögðu blómsveig að
lestarstöðinni King’s Cross á sama
tíma og sprengingarnar þrjár áttu
sér stað fyrir ári. Livingstone tók í
sama streng og forsætisráðherrann
og sagði að þetta væri tilefni til að
sýna aðstandendum þeirra sem lét-
ust samúð.
Richard Innishannon var á meðal
þeirra fyrstu sem komu á vettvang
eftir tilræðið við Travistock-torg og
sagði hann líf sitt gjörbreytt eftir
)á lífsreynslu. Hann var á meðal
seirra sem voru viðstaddir athöfn-
ina við King’s Cross og kvaðst hann
aðeins einu sinni hafa getað stigið
inn í lest eftir að hann varð vitni að
hörmungunum.
Þúsundir Lundúnabúa lögðu leið
sína í Queen Mary’s-almennings-
garðinn og margir lögðu blóm við
steinfellumynd sem reist var til
minningar um þá sem létust. Búist
er við því að borgarbúar muni halda
því áfram yfir helgina.
Von á fleiri árásum
Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna-
lögreglunnar, sagði í ræðu sinni að
borgarbúar þyrftu að vera áfram á
tánum og vera viðbúnir því að árásir
verði gerðar á borgina að nýju. „Ég
veit að hryðjuverkamenn munu
halda áfram að reyna að gera árásir.
Það er í okkar höndum að reyna að
koma í veg fyrir það og frá því fyrir
ári síðan höfum við náð að koma í
veg fyrir þrjár,“ sagði Blair.
Hann stappaði stálinu í samborg-
ara sína og sagði að þrátt fyrir að
hryðjuverkamenn væru mikil ógn
ættu þeir ekki roð í styrk Lundúna-
búa. „í dag get ég ekki annað en
verið stoltur. Borgarbúar brugðust
við árásunum í fyrra af mikilli hetju-
dáð. Við ákváðum að við myndum
ekki leyfa hryðjuverkamönnum að
buga okkur. Þá var lítil aukning á
kynþáttatengdum ofbeldisverkum
sem sýnir að Lundúnir eru borg sem
hefur trú á sjálfri sér,“ sagði Blair.
...og allur ferbabúnaöur
kemst á toppinn
430 lítra
nr. 731846
!/&]A '■ 1J1 ~ - ^ i-f f
380 lítra
nr. 731446
380 lítra
nr. 731816
naúsh
535 9000
Akureyrí • Egilsitöium • Hafnarfirði • Höfn • Keffavík • Kópavogi • Reykjavík • Selfossi
Reuters
Bretar minntust þess í gær að ár
er liðið frá hryðjuverkaárásunum
sem gerðar voru í Lundúnum 7. júlí
í fyrra þar sem 52 létu lífið og rúm-
lega 700 særðust. Minningarathöfn
fór fram við Regent’s Park og á
hádegi var tveggja mínútna þögn í
landinu, þar á meðal á Wimbledon-