blaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 26
26 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðið
Einhleypir og aumingjar
I kjölfar sambandsslita stúlku í
mínu nánasta umhverfi fór ég að
velta fyrir mér hvað við látum bjóða
okkur í sambandi. Ég er viss um að
flestir kannast við einhvern sem
leyfir maka sínum að koma illa fram
við sig. Margir hafa jafnvel sjálfir
verið í þess háttar sambandi. Ég segi
leyfir því þegar á botninn er hvolft
stjórnum við því hvernig fólk kemur
fram við okkur. Við setjum fólki
mörk og látum það vita hvort við
sættum okkur við tiltekna hegðun.
Af hverju sætta margir sig við virð-
ingarleysi og dónaskap maka? Erum
við svona örvæntingarfull að vera í
sambandi að við látum bjóða okkur
hvað sem er? Er krafan í þjóðfélag-
inu kannski sú að allir verða að vera
hluti af pari til þess að vera gjaldgeng
og þess vegna sættum við okkur við
maka sem á okkur ekki skilið? Ég
veit það satt að segja ekki.
Sem betur fer virðist þetta oft
eldast af fólki. Þegar við erum ung
göngum við oft í gegnum skeið þar
sem við eltumst við fólk sem kann
ekki að meta okkur. Sorglegast er
þegar fólk eyðir öllu lífinu með maka
sem metur það ekki að verðleikum
og kemur jafnvel fram við það af
virðingarleysi. Ég þekki eina ágæta
konu sem er einmitt í sambandi sem
hún hefur sjaldan verið sátt í. Þótt
hún sé á sextugsaldri býr hún ennþá
með manninum sem hefur sært
hana ítrekað. Hún kynntist honum
ung að aldri og varð vitanlega ást-
fangin upp fyrir haus. Kannski var
ástin endurgoldin, ég veit það hrein-
lega ekki. Sambandið gekk aldrei
fullkomlega, hann drakk of mikið
og átti það til að láta reiði sína bitna
á henni. Þrátt fyrir að hafa stuðning
fjölskyldu sinnar vísan ákvað hún
að halda sambandinu áfram. Hana
hafði alltaf langað að eignast börn
en maðurinn átti þegar eitt barn og
fannst það nóg. Hún þurfti ekki að
hugsa sig lengi um til að ákveða að
hann væri meira virði en einhver
ófædd börn. I dag, þrjátíu árum
síðar, eru þau enn saman, ef saman
má kalla. Fyrir mörgum árum hófu
þau að sofa í sitthvoru svefnherberg-
inu enda höfðu þau hvort sem er
ekki snert hvort annað í enn fleiri
ár. Hann drekkur upp á hvern dag
og veltir sér lítið upp úr því hvað
hún gerir, svo framarlega sem mat-
urinn er á borðinu á réttum tíma
Hún heldur framhjá honum
með manni sem er, rétt eins og
manninum hennar, alveg sama
um hana.
Ég held, og vona, að fáir séu í
svipaðri stöðu og þessi blessaða
kona. En þetta vekur mann svo
sannarlega til umhugsunar. Það
verður að viðurkennast að það
eru frekar konur sem lenda í svona
aðstæðum. Sennilega vegna þess að
konur virðast vera með lægra
sjálfsmat auk þess sem
þær eru meðvirkari
og því ólíklegri til að yfirgefa aum-
ingjana. Ég velti því fyrir mér hvort
þetta geti tengst því hvernig litið
er á einhleypa í samfélaginu. Það
er æskilegt og skemmtilegt að vera
einhleypur fram til þrítugs. Eftir
það _ eruflestirvin-
komnir í samband og það virðist
vera kominn tími á hina einhleypu.
Það vill náttúrlega enginn vera
piparjónka en aftur á móti er pipar-
sveinn hlaðið jákvæðri merkingu.
Piparjónkur eru bitrar, einmana,
jafnvel eilítið grimmar og eiga venju-
lega nokkra ketti. Það er kannski
ekki nema von að konur velji frekar
drykkfelldan og leiðinlegan eigin-
mann frekar heldur en það dapra
líf sem blessaðar jónkurnar lifa.
Reyndar líkjast þær „jónkur“ og
„sveinar“ sem ég þekki ekki goðsögn-
inni um piparjónkur, þau lifa hins
vegar afar ljúfu lífi enda er frelsið
skiljanlega meira. Samt sem áður
finnst flestum sú hugmynd að vera
einir í ellinni ömurleg og því enda
þeir kannski frekar í sambandi við
maka sem er ekki samboðinn þeim
svanhvít@bladid. net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ertu með skipulagsáráttu?
Skipulag hefur löngum verið talið góður eigin-
leiki í fari manna. Það er talað um að góðir
starfsmenn séu skipulagðir, falleg íbúð er vel
skipulögð og skipulag er álitið vera hinn mesti
kostur. Að sama skapi er skipulagsleysi frekar
neikvœtt orð og er talið tengjast óreiðu og öng-
þveiti. Hins vegar er mögulegt að vera ofskipu-
lagður ogþað getur í raun haft neikvœð áhrifá
lifsgœði einstaklings. Hvað með þig, ertþú með
skipulagsáráttu? Taktu prófið ogþá kemstu að
því - efþú þorir.
IHvernig raðarðu bókum í
bókahillur?
a) Ég raða þeim nú yfirleitt eftir stærð.
b) Eftir innihaldi bóka, lit á kápu og hæð.
Svo er ég með uppfærðan bókalista þar
sem ég get fundið hverja bók samstundis.
c) Mér finnst samræmið mikilvægt þannig
að ég raða þeim eftir hæð og lit á kápu.
d) Þær eru nú yfirleitt í einhvers konar
stafla þar.
2Hvað einkennir líf þitt?
a)Líf mitt er hálfgerð óreiða.
b)Ég kem í veg fyrir óvænta atburði
með góðu skipulagi.
b) Vel en stundum finnst mér þau ekki
standa síg alveg í stykkinu.
c) Eins vel og mér er fært.
d) Vel en ég á það til að reyna að stjórna
þeim sem getur skapað leiðindi.
Þegar þú leitar þér að hús-
gögnum hvað ræður vali
þínu?
a) Þau þurfa að henta öðrum húsgögnum
og rýminu fullkomlega.
b) Ég kaupi það sem mér finnst flottast í
það skiptið.
c) Helst eitthvað sem er algjörlega í ósam-
ræmi við allt annað heima hjá mér.
c)Skemmtun og hvatvísi.
dJReglum, skipulagi og rólegheitum.
d)Ég reyni að kaupa það sem mér finnst
fallegt en það þarf lika að passa við annað
heima hjá mér.
3Hvernig lítur skrifborðið
þitt út?
a)Þar er allt á sínum stað og í raun-
inni er fátt annað þar utan síma og tölvu.
b)Ég mætti vera duglegri að taka til á því,
draslið hleðst fljótt upp.
c)Ég hef mitt skipulag, þó það sjáist ekki
fyrir óreiðu.
d)Ég reyni að halda því hreinu og það tekst
oftast hjá mér.
4Hvað væri það versta sem
gæti gerst?
a)Mér er illa við allt óvænt og breyt-
ingar eru ekki af hinu góða.
b)Að heimurinn myndi farast eða eitthvað
(þá áttina.
c)Að ég missti stjórn á hlutunum.
d)Að ég myndi missa ástvin.
5Hvernig kemurðu fram við
ástvini þína?
a)Af ástúð og umhyggju en ég
mætti vera duglegri að heyra í þeim.
7Hvernig skipuleggurðu
fataskápinn?
a)Buxur í einni hillu og peysur í ann-
arri. Einfalt og þægilegt.
bJSkipti út fötunum eftir árstíðum en
annars eru þau röðuð eftir lit, gæðum og
til hvers þau eru nýtt. Ég á mjög stóran
fataskáp með mörgum hirslum.
c)Eftir litum því þá er auðvelt að finna hvað
hentar hverju.
d)Skápurinn er yfirleitt tómur og fötin eru í
hrúgu á gólfinu. Frábært skipulag, ég þarf
aldrei að leitaaðflík.
8Hvað finnst þér um skipu-
lagið í lífi þínu?
a)Skipulag hentar mér því ég óttast
hið óvænta í lífinu.
b)Hvaða skipulag?
c)Mér finnst skipulag nauðsynlegt en
það hefur stundum neikvæð áhrif á fólk í
kringum mig.
d)Það mætti vera meira skipulag i Iffi mínu.
Teldu stigin:
1.
a)2 2. b)4 c)3 d) 1
a) 1 3. þ) 3 c)2 d) 4
a)4 4. b) 2 c)1 d) 3
a) 3 5. b) 1 04 d)2
a) 1 6. b) 3 02 d)4
a)4 7. b)2 01 d)3
a)2 8. b)4 03 d) 1
a) 3 b) 1 04 d) 2
0-9 stig:
Skipulag spilar ekki stórt hlutverk f þínu
lífi og þú ert langt frá þvi að vera skipu-
lagður einstaklingur. Sennilega er meira
um óreiðu, öngþveiti og rugling f lífi
þfnu en það hentar sumum. Það mundi
sennilega ekki skaða þig ef þú reyndir
að skipuleggja þig örlítið betur. Líklegt
er að þú hefðir meiri tima til að lifa lífinu.
Hver veit, það sakar ekki að prófal
10-18stig:
Þú hefur náð hæfilegu jafnvægi í skipu-
lagi þínu og ef eitthvað er mættirðu vera
aðeins skipulagðari. Þú virðist ekki hafa
miklar áhyggjur af tilverunni og gerir
það sem þér hentar. Þú þráir ákveðna
reglu í lífinu en vilt hins vegar ekki láta
binda þig niður. Þetta er jákvætt og gott
viðhorf.
19-25 stig:
Það skiptir þig miklu máli að hafa skipu-
lag í lifinu. Þú óttast óvænta atburði og
þvf hentar skipulagið þér vel. Hins vegar
má ekki lita fram hjá góðu hlutunum I
lífinu þótt hræðsla sé til staðar. Með því
að skipuleggja líf þitt út í ystu æsar skil-
urðu ekki eftir rúm fyrir hið óvænta sem
gæti allt eins verið gleði, hamingja og
skemmtun. Prófaðu að slaka á einstaka
sinnum, hver veit nema þú hafir gott
af því!
26-32 stig:
Það er ekkert launungamál að þú ert
með skipulagsáráttu. Þetta er eitthvað
sem hefur vart farið fram hjá þér eða
ástvinum þinum. Ef skipulaginu er
ábótavant þá finnurðu fyrir lamandi ótta.
Þess vegna finnurðu fyrir ákveðinni þörf
fyrir að stjórna aðstæðum og fólkinu i
kringum þig. Þetta getur hins vegar ver-
ið þreytandi til lengdar og því ættirðu
að skoða gjörðir þinar. Eina leiðin tii
að vinna á ótta er að takast á við hann.
Leyfðu þér að rusla til á skrifborðinu, að
gleyma afmæli einhvers og að henda föt-
unum á gólfið eftir sturtu. Síðast en ekki
síst skaltu njóta þess að vera til.