blaðið - 08.07.2006, Blaðsíða 38
38 IFÓLK
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðið
í PJÓWUSTU
ROKKARA
Undanfarna daga hefur þátturinn Rockst-
ar: Supernova verið sýndur þar sem
Magni í hljómsveitinni Á móti sól tekur
þátt í. Magni er að sjálfsögðu landskunn-
ur fyrir tónlist sína og á möguleika á að
komast í hóp þeirra ríku og frægu.
Ef Magni myndi vinna keppnina fengi
hann að vera með í hljómsveit Tommy
Lee, fyrrum trommuleikara Mötley Crue,
Jason Newsted, fyrrum bassaleikara Met-
allica, og Gilhy Clarke, fyrrum gítarleik-
ara Guns&Roses. Allt eru þetta útjaskaðir
rokkarar sem þurfa einhvern veginn að
reisa við útbrunninn feril og það er varla
hægt að hugsa sér betri leið en að gera
það í beinni, fyrir sjónum alheimsins.
Hugmyndaflugið er þó hvorki mikið né
fjölbreytt íþessari uppákomu.
Landsmenn margir hafa verið mjög upp-
teknir yfir þessu öllu saman enda er það
ekki á hverjum degi sem Islendingur fer
til útlanda og reynir að ganga í augun á
miðaldra rokkurum, eiginlega verða al-
veg eins og þeir. Áður fyrr fóru víkingar
til höfðingja víðs vegar um heiminn og
buðu fram þjónustu sína, hjuggu mann
og annan og voru leiddir til öndvegis
við hirðina. Þegar heim var komið barst
hróður þeirra víða. Að vera kóngsins mað-
ur þótti betra en hlutabréfa eign í Marel
eða Landsbankanum; vísitala orðstírsins
hækkaði við hvern haus sem fauk.
I dag er Magni mál málanna og allir
styðja hann til dáða - hann á að flytja
út. í Fréttablaðinu voru þrír aðilar
spurðir álits á því hvort þeir ætluðu að
horfa á Rockstar: Supernova. Sigurður
Kári alþingismaður svaraði því til að
hann myndi nú gera það því honum bæri
skylda til þess að styðja landa sína hvar
sem í heimi væru, í hvaða keppni sem er.
Það hvarflaði alls ekki að Smáborgaran-
um að svar Sigurðar Kára tengdist þeirri
staðreynd að hann væri í pólitík, nei,
þetta svar kom frá hjartanu. Sigurður
Kári vill styðja landið, þjóðina og fólkið
til góðra verka - hann er sannur stjórn-
málamaður sem vill gera öðrum gott.
Halla Vilhjálmsdóttir, leikkona, sagðist
pottþétt ætla að horfa því Magni væri
svo mikill töffari; hún þurfti ekki neina
afsökun. Garðar Thor Cortes, óperusöng-
vari, sagði að hann myndi væntanlega
horfa fyrst íslendingur væri að keppa;
hann hafðienga afsökun!
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Jón Eggert Guðmundsson
Ertu ekki orðinn þreyttur?
Nei, nei ég er alveg eldhress. Maður styrkist bara á þessu þannig að ég er
kominn í toppform núna. Ég er kannski svolítið dasaður eftir daginn en
það er bara eðlilegt. Besta ráðið við því er að skella sér í heita pottinn og
fara svo að sofa.
Jón Eggert Guðmundsson þreytir Strandvegagöngu hringinn í kringum fsland til styrktar Krabbameinsfélagi fslands um þess
ar mundir. I gær hafði Jón Eggert lagt að baki meira en 1417 km leið og sló þar með met Reynis Péturs Ing varssonar.
Leikarinn Johnny Depp situr fyrir Ijósmyndurum er Pirates of the Caribean var sýnd í Frakklandi
Leikkonan Brittany Daniel á frumsýn-
ingu myndarinnar Little Man í Los
Angeles
Leikarinn Keenan Ivory Wayans heldur á leikaranum Porco á frumsýningu myndarinnar
Little Man í Los Angeles
HEYRST HEFUR...
Skjár einn tók sig til og
sýndi fyrsta þáttinn í
Rockstar: Supernova í beinni
útsendingu á mið
nætti síðastlið | I j
inn miðvikudag VIJ
Virtist vera svo SKJARE,NN
að utsendingin
hafi gengið algjörlega snuðru-
laust fyrir sig enda urðu engar
truflanir sem er meira en sagt
verður um útsendingarnar frá
heimsmeistaramótinu í fót-
bolta. Samkvæmt heimildum
mun það þó ekki hafa verið hin-
um færu sjónvarpsmönnum að
þakka að þátturinn gekk svo
vel, en nóg er af hæfileikafólki
þar, heldur var þátturinn hrein-
lega ekki sýndur beint. Og þá
byrjar maður að efast hvort
HM-mótið sé enn í gangi og að
við séum hreinlega að horfa á
endursýningar.
Jón Óskar Hafsteinsson, lista-
maður, hefur sýnt sig og
sannað í listaheiminum und-
anfarin ár og oftar HHHDRj
en ekki hafa verk 1
hans hreinlega p -,3j
selst upp á sýning- f
um. Færri vita þó
að hann hannaði
útlitið þegar DV var endurreist
og þykir mönnum að honum
hafi tekist .yel til. Samkvæmt
heimildum mun Mikael Torfa-
son, aðalritsjóri Fróða, ekki
einungis að vera að fá til sín
fyrrum blaðamenn af DV held-
ur hefur hann fengið Jón Óskar
til þess að endurhanna öll tíma-
ritin á Fróða og verður áhuga-
vert að sjá afraksturinn.
Margir ráku upp stór augu
þegar Björk Jakobsdóttir,
leikkona, og Heiða Ólafsdóttir,
Idol-stjarna, mættu galvaskar
á tónleika á Kaffi
Viktor á fimmtu-
dagskvöldið. Léku
þær á alls oddi
allt kvöldið og
sýndist mönnum
þær skemmta sér manna best.
Athygli vakti þó að þær voru
saman og heyrðist hvískrað að
þær ætli hugsanlega að stofna
eigin rokkhljómsveit í sárabót
fyrir Heiðu sem ekki komst í
Rockstar: Supernova raunveru-
leikaþáttinn.
valur@bladid.net
Pavarotti jafnar
sig eftir aögerð
,Hann er á góðum batavegi,11 segir um-
boðsmaður Luciano Pavarotti sem
gekkst undir skurðaðgerð vegna krabba-
meins í brisi fyrir stuttu. Hinn 70 ára
ítalski óperusöngvari var að undirbúa
sig undir að fara til New York í síðustu
vikur þegar læknar uppgötvuðu að
hann var með illkynja æxli í brisinu.
„Sem betur fer náðu þeir æxlinu öllu,“
segir Terri Robson, talskona óperusöng-
varans. „Hann mun dvelja á sjúkrahúsi
á meðan hann er að jafna sig en vonandi
verður hann orðinn góður innan tíðar.“
Pavarotti er einn af þekktustu óp-
erusöngvurum í heimí og hefur mjög
svo rómaða tenórrödd. Hann fæddist í
Modena í norður Ítalíu og fyrr á árinu
söng hann við vetrarólympíuleikana
í heimalandi sínu við mikinn fögnuð
viðstaddra.
Láræ &■ Llrus
eftir Jim Unger
9-14
© Jim Unger/disl. by United Media, 2001
Súpa dagsins erbúin. Má ekki bjóða ykkur
súpu morgundagsins í staðinn?