blaðið - 08.07.2006, Side 10
10 I DEIGLAN
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðið
W\ vv ^
Safnið á Ysta-
felli stœkkar
Það verður mikið um dýrðir í Sam-
gönguminjasafninu á Ystafelli í Þing-
eyjarsveit í dag þegar þar verður
formlega tekinn í notkun nýr sýn-
ingarsalur. Nýja byggingin er 720
fermetrar að flatarmáli og með til-
komu hennar rúmlega tvöfaldast
sýningarrými safnsins. „Það komast
á milli 30 og 40 bílar fyrir í nýja hús-
inu. Það fer eftir hvað maður raðar
þeim þétt,“ segir Sverrir Ingólfsson,
forstöðumaður safnsins. Nýja bygg-
ingin bætir úr brýnni þörf en eldri
byggingin sem tekin var í notkun
fyrir sex árum er 640 fermetrar að
flatarmáli og var fyrir löngu orðin
of lítil. Engu að síður telur Sverrir
að þess sé ekki langt að bíða að nýja
byggingin fyllist enda fjölgi stöðugt
í safninu. „Það hefur ekkert verið
ákveðið með frekari uppbyggingu
en við vonum að þetta þróist áfram.
Stöðnun er frekar afturför,“ segir
Sverrir.
Bílar með sögu
Faðir Sverris, Ingólfur Lars Krist-
jánsson, lagði grunninn að Sam-
gönguminjasafninu á Ystafelli en
hann safnaði árum saman gömlum
bílum og öðrum samgöngutækjum.
Á undanförnum árum hefur safnið
stækkað mjög að vöxtum og segir
Sverrir að megináherslan sé lögð á að
safna bílum sem hafi verið í notkun
hér á landi og eigi sér einhverja
sögu. „Við erum alltaf með augun
opin og eyrun fyrir einhverju nýju.
Svo er líka mikið af fólki sem hefur
samband við okkur og býður okkur
gripi á safnið,“ segir Sverrir. „Það er
stór hópur sem stendur við bakið á
okkur og styrkir. Viðhorf fólks til
gamalla bíla hafa líka breyst mikið á
undanförnum árum og menn sýna
þessu meiri skilning en áður.“
Skriðdreki og snjóbílar
Á Samgönguminjasafninu er að
finna alls kyns farartæki frá ýmsum
tímum, allt frá venjulegum fólks-
bílum til hertrukka, skriðdreka og
snjóbíla. Samhliða Samgöngusafn-
inu er rekið lítið safn með dúkku-
húsamunum sem Ingólfur Krist-
jánsson kom upp. „Það er til þess að
konurnar geti líka kíkt á eitthvað,“
segir Sverrir en bætir við að reyndar
hafi margar konur ekki síður gaman
af bílunum en karlanir.
Samgönguminjasafnið á Ystafelli
er opið frá maí til loka september
milli kl. 10 og 20. Frekari upplýs-
ingar má nálgast á www.ystafell.is.
20% afsláttur
af trúlofunar-
hringjum í dag!
í tilefni franskra daga.
Húsakostur Samgönguminjasafnsins á Ystafelli rúmlega tvöfaldast með tilkomu nýju byggingarinnar sem bætir úr brýnni Mynd/ystafell.is
þörf.
Töfrar Spánar
í Vetrargarðinum
Spænsk ferðakynning verður haldin
í Vetrargarðinum í Smáralind í dag
frá kl. 12-18. Þar verður gestum
boðið að smakka á spænskum
krásum, leikin spænsk tónlist, gol-
furum boðið að pútta, Minerva Ig-
lesias Garcia sýnir flamenco-dans
og sýndar verða skemmtilegar
myndir frá Spáni.
Markmiðið með kynningunni er
að sýna þá fjölbreytni sem Spánn
hefur upp á að bjóða en Spánn
hefur um árabil verið einn af vinsæl-
ustu áfangastöðum íslenskra ferða-
manna erlendis. Spánn hefur verið
vinsæll vegna veðurblíðu, skemmti-
legra stranda, menningar, sögu,
góðs andrúmslofts og spennandi
vín- og matarmenningar. Síðustu
ár hafa glæsilegir golfvellir og góð
aðstaða til golfiðkunar laðað Islend-
inga að, svo og spænskunámskeið.
Einnig hafa borgarferðir notið vin-
sælda enda hefur menning og mann-
líf Spánar upp á svo margt að bjóða.
Á kynningunni í Vetrargarðinum
verður hægt að nálgast upplýsingar
um þá áfangastaði sem í boði eru
fyrir ferðamenn á Spáni.
Lautarguðs-
þjónusta
Á morgun, sunnudag, verður lautar-
guðsþjónusta í kvenfélagslundinum
við hliðina á íþróttahúsinu á Álfta-
nesi. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir sókn-
arprestur lofar léttri sveiflu í helgri
alvöru. Bjartur Logi Guðnason, org-
anisti í Bessastaðakirkju, mun leiða
tónlistarflutning. Forsöngvarar
verða félagar úr Álftaneskórnum,
Bára Sigurjónsdóttir leikur undir
á saxafón en sjálfur mun Bjartur
Logi bregða út af vananum og spila
á gítar í stað orgelsins. Jóna Hrönn
mun flytja stutta hugleiðingu úti
í guðsgrænni náttúrunni og síðan
munu gestir biðja saman. Að því
loknu mun hún og Laufey Brá Jóns-
dóttir, leikari og æskulýðsfulltrúi
í Bessastaðasókn, leggja fyrir fólk
þrautir og sameina það í leikjum.
Að lokum ber Halldóra Pálsdóttir
kirkjuvörður fram rjúkandi kaffi og
nýbakaðar kleinur.
Á morgun verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Arbæjarsafni eins og í fleiri söfnum
víða um land í tilefni af fslenska safnadeginum.
Islensk söfn
opna dyr sínar
íslenski safnadagurinn er á morgun,
sunnudaginn 9. júli, og er yfirskrift
hans að þessu sinni: „Fyrir fjöl-
skylduna“. Markmið með íslenska
safnadeginum er að vekja fólk til
vitundar um mikilvægi faglegrar
varðveislu og miðlunar hinna sam-
eiginlegu verðmæta þjóðarinnar. í
tilefni dagsins verður boðið upp á
sérstaka dagskrá í mörgum söfnum
auk þess sem flest þeirra bjóða upp
á ókeypis aðgang.
Diskó, pönk og harmonikkutónlist
f Árbæjarsafni verður ókeypis að-
gangur og fjölbrey tt dagskrá í tilefni
dagsins. Götuleikhúsið verður með
leikþátt í tengslum við sýninguna
Diskó & Pönk. Kaffihlaðborð verður
í Dillonshúsi þar sem leikið verður
á harmonikku. Messað verður í
gömlu torfkirkjunni kl. 14, gestum
býðst að sitja í hestvagni og dúett-
inn Mimosa leikur klukkan 15.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar
verður ókeypis aðgangur á íslenska
safnadaginn. f Sívertsens-húsinu
er heimili yfirstéttafjölskyldu frá
upphafi 19. aldar sýnt. Siggubær er
sýnishorn af alþýðuheimili frá fyrri
hluta 20. aldar auk sýningarinnar
„Álfar og álfatrú". Pakkhúsið hýsir
þrjár sýningar: Leikfangasýningu,
„Þannig var“ og „Jæja, eru þeir þá
komnir“ um hernám Breta hér á
landi.
Tónleikar á Gljúfrasteini
Á Gljúfrasteini verður blásið til tón-
leika á morgun kl. 16. Systurnar Sig-
rún og Eva Björg Harðardætur leika
á fiðlu og víólu lög eftir Jón Ásgeirs-
son, Atla Heimi Sveinsson, Jón Nor-
dal og Sigvalda Kaldalóns, samin
við Ijóð Halldórs Laxness.
í tilefni af íslenska safnadeginum
mun Ingunn J. Óskarsdóttir, garð-
yrkjufræðingur, vera með fræðslu
um eina af níu safndeildum Grasa-
garðs Reykjavíkur. Fyrir valinu
þetta árið er safndeildin „Fjölærar
jurtir“ en Ingunn er umsjónar-
maður þeirrar deildar. Hún mun
fræða gesti nánar um þrjár ætt-
kvíslir, liljur, lykla og lauka.
Fjölmargt annað er íboði í söfnum
landsins á morgun í tilefni fslenska
safnadagsins og er hægt að nálgast
nánari upplýsingar á síðunni www.
safnarad.is.