blaðið - 08.07.2006, Side 12
12 I SAGA
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaöið
Óvœttur úr undirdjúpum
Hunley í Charleston í Suður-Karólínu í desember 1863, rúmum tveimur mánuðum áður en báturinn lagði i sína hinstu för.
Mynd eftir Conrad Chapman.
Árið 1995 fann hinn kunni ævin-
týramaður og sjávarkönnuður Clive
Cussler flak kafbátsins H.L. Hunley
undan strönd Charleston í Suður Kar-
ólínu-ríki eftir að hafa leitað hans í
nærri 15 ár. Fundurinn vakti mikla
athygli enda markaði Hunley sem
byggður var á tima borgarastyrjald-
arinnar í Bandaríkjunum tímamót í
sögunni. Fimm árum síðar tókst að
hífa hann upp af hafsbotni og koma
á þurrt land þar sem unnið hefur
verið að rannsóknum á honum og
varðveislu.
H.L. Hunley var kafbátur hers
Suðurríkjanna sem komst á spjöld
sögunnar í febrýar árið 1863 þegar
hann sökkti USS Housatonic, her-
skipi Norðanmanna, undan strönd
Charleston í Suður Karólínu-ríki.
Þetta var í fyrsta skipti í sögunni
sem kafbátur réðst á herskip og
sökkti því. Sigurinn varð þó dýru
verði keyptur þar sem kafbáturinn
sneri aldrei aftur til heimahafnar.
Hann sökk á leiðinni til baka og fór-
ust allir i áhöfn hans.
Horace Lawson Hunley, James Mc-
Clintock og Baxter Watson áttu heið-
urinn að hönnun og smíði Hunley.
Þremenningarnir höfðu áður gert
tvær misheppnaðar tilraunir til að
smíða nothæfan kafbát.
Smíðaður úr gamalli eimreið
Búkur Hunley var smíðaður úr
gömlum gufukatli úr eimreið og
gekk báturinn fyrir handafli. Sjö
manns þurfti til að knýja hann áfram
og einn til að stýra honum rétta leið.
Kafbáturinn var lítill og afar þröngt
um áhöfnina innanborðs.
Hunley var búinn nokkurra metra
langri stöng með oddhvassri sprengi-
hleðslu á endanum sem reka mátti
inn í hlið óvinaskipa og sprengja
þau í loft upp.
Fyrstu prófanir á Hunley voru
gerðar í Mobile-flóa undan strönd
Alabama-ríkis sumarið 1863 og
var hann síðan fluttur með lest til
Charleston í Suður-Karólínu þar
sem her Suðurríkjanna gerði bátinn
upptækan. Horace Hunley og félagar
hans tóku engu að síður áfram þátt í
þróun bátsins og prófunum.
Mannskæðar prófanir
Prófanirnar undan strönd Suður-
Karólínu gengu ekki áfallalaust
fyrir sig. I lok ágúst leiddu mannleg
mistök til þess að báturinn fór undir
yfirborð sjávar með opnar lúgur og
sökk til botns. Fimm úr áhöfninni
drukknuðu en þrír komust lífs af.
Menn létu þó ekki deigann síga
heldur var báturinn hífður upp á yf-
irborðið og prófunum haldið áfram.
Um miðjan október fór eitthvað úr-
skeiðis þegar báturinn var í kafi og
fórust allir í áhöfninni þar á meðal
Horace Hunley.
I ársbyrjun 1864 var farið að
þrengja að íbúum i Charleston
vegna hafnbanns Norðanmanna.
USS Housatonic herskip Norðan-
manna lá nokkra kílómetra fyrir
utan höfn borgarinnar og sá til þess
að bannið væri virt. Sunnanmenn
sáu sér þann kost vænstan að reyna
að rjúfa hafnabannið með öllum
mögulegum ráðum. Aðfararnótt 17.
febrúar lagði Hunley úr höfn í Charle-
ston með átta manns innanborðs og
stefndi í átt að Housatonic. Kalt var
í veðri en stillt og tungl óð í skýjum.
Skipverjar á herskipinu urðu bátsins
varir þegar hann nálgaðist skipið og
skutu í átt að honum með rifflum.
Það dugði þó ekki til því að Hunley
rak sprengihleðslu sína inn í hlið Ho-
usatonic með þeim afleiðingum að
skipið sprakk í loft upp og sökk til
botns ásamt fimm úr áhöfninni.
Dýrkeyptur sigur
SigurinnvarðþóSunnanmönnum
dýrkeyptur því skömmu eftir að
skipverjar á Hunley höfðu sent fé-
lögum sínum í landi ljósmerki um
að árásin hefði heppnast sökk kaf-
báturinn af óþekktri ástæðu og allir
um borð fórust.
Hunley sökk aðeins fáeina kíló-
metra undan strönd Suður-Karól-
ínu og höfðu ýmsir reynt að hafa
uppi á flakinu í gegnum tiðina. Það
var ekki fyrr en árið 1995 að Clive
Cussler sjávarkönnuðurinn kunni
fann flakið eftir að hafa leitað þess
í 14 ár og reyndist það óvenjuheil-
legt. I ágúst árið 2000 var Hunley
siðan hífður upp á yfirborð sjávar
og komst loks í heimahöfn eftir 137
ár í votri gröf.
Forverðir vinna f flaki H.L. Hunley í rannsóknarstofu sjóhersins í Charleston í fyrra. Unniö hefur verið að fornleifarannsóknum og við-
haldi kafbátsins sögufræga frá því að hann var hífður upp af hafsbotni og færður til hafnar sumarið 2000. Eins og sjá má er kafbátur-
inn ekki stór og Ijóst að í honum hefur verið þröngt um menn.
Þverskurðarmynd af Hunley. Þarna sést hvernig skipverjar knúðu bátinn áfram með
handafli.
Eftirlíking af kafbátnum H.L. Hunley fyrir utan minjasafn í Charleston. Hunley var kaf-
bátur Suðurríkjasambandsins í borgarastríðinu i Bandarfkjunum og fyrsti kafbáturinn
í sögunni sem tókst að sökkva herskipi. Áhöfninni gafst þó ekki mikill tími til að fagna
sigrinum því að báturinn sökk skömmu síðar af ókunnri ástæðu.
Gullpeningurinn frægi sem fannst á liki George E. Dixon foringja Hunley. I meira en
130 ár höfðu menn velt fyrir sér hvort sagan af peningnum væri sönn eða uppspuni.
Gullpeningur Dixons
Skipstjóri í hinstu för H.L. Hunley
var ungur foringi (liutenant) í her
Suðurríkjanna, George E. Dixon
að nafni. Eftir dauða Dixons barst
sú saga manna á milli að hann
hefði verið ástfanginn af stúlku
í Mobile í Alabama sem hét Que-
enie Bennett. Sagan segir að Ben-
nett hafi gefið Dixon gullpening
sem verndargrip til að koma í veg
fyrir að nokkuð illt henti hann.
Dixon gekk ætíð með peninginn í
vasanum og í hvert sinn sem hann
handlék hann lét hann sig dreyma
um daginn er hann og Bennett
næðu aftur saman.
1 orrustunni um Shiloh í Tenn-
essee í apríl árið 1862 varð Dixon
fyrir skoti en það varð honum til
happs að kúlan lenti í peningnum
sem lét lítillega á sjá en sjálfur
slapp Dixon með skrekkinn. Vernd-
argripurinn góði hafði bjargað lífi
hans.
Fleiri slíkar sögur fóru á kreik í
stríðinu og erfitt er að segja til um
sannleiksgildi þeirra. 1137 ár vissi
enginn hvort þessi saga væri sönn
eða aðeins rómantísk flökkusaga.
Þegar unnið var að fornleifarann-
sókn á Hunley fannst gullpening-
urinn frægi við hlið líkamsleifa
George Dixon. Á honum var greini-
legt far eftir byssukúluna og leifar
blýs.
Peningurinn er 20 dala gullpen-
ingur sem sleginn var árið 1860. Á
bakhlið peningsins eru letruð eft-
irfarandi orð: Shiloh, 6. apríl 1862,
verndari lífs míns. G. E. D.