blaðið - 08.07.2006, Side 13
blaöiö LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006
VÍSINDI I 13
þessum óþægilegu minningum úr
huga fólks þar sem þær væru oftar
en ekki stór hluti af sjálfsmynd
fólks. Markmiðið sé miklu frekar að
lágmarka þann skaða og þau óþæg-
indi sem þær valda fólki þó það sé
fræðilega mögulegt að eyða minn-
ingunum varanlega úr höfði fólks.
Það tekur sjö ár að melta
tyggjó sem gleypt er
Það kann að taka meltingarfærin
eilítið lengri tíma að brjóta niður
tyggjóklessu en aðra fæðu en það er
langt frá því að það taki okkur sjö ár.
Þessi saga hefur að öllum líkindum
verið búin til til þess að hindra að
börn kyngdu jórturleðrinu.
Maðurinn notar aðeins
10% af heilabúinu
Þessi fullyrðing hefur verið ansi
lífseig en fyrir henni er ekki flugu-
fótur. Rannsóknir hafa sýnt að mað-
urinn notar stærstan hluta heilans
við leik og störf.
Kínamúrinn er eina mannvirkið
sem sýnilegt er utan úr geimnum
Kínamúrinn er alls ekki eina mann-
virkið sem geimfarar hafa getað
merkt á jörðinni á ferðum sínum
um geiminn. Píramídarnir eru
einnig sýnilegir og tína mætti til
fleiri mannanna verk.
Vísindamenn fást við
slæmar minningar
Mýturnar
afsannaðar
Flest eigum við einhverjar hræði-
legar minningar sem við vildum
helst losna við úr lífi okkar hið snar-
asta. Fræg er myndin Entire Suns-
hine Of A Spotless Mind þar sem
Kate Winslet og Jim Carrey fóru
með aðalhlutverkin en þar voru
minningar þurrkaðar út eins og ekk-
ert væri. Líklega þótti flestum áhorf-
endum nokkuð langt seilst í þessum
efnum en þessi hugmynd er þó nær
okkur en við höldum. Vísindamenn
vinna nú um þessar mundir að því
að gera hana að raunveruleika. Rann-
sóknir hafa sýnt að það er mögulegt
að velja þær minningar sem hugur-
inn geymir.
Streituhormón flæða
Roger Pitman, vísindamaður við
Harvad háskóla, hefur þegar sýnt
fram á að þegar fórnarlömbum
árása eða slysa eru gefin ákveðin lyf
þegar þau koma á spítala eftir áfallið,
þá eru minni líkur á að þau þjáist af
andlegum eftirköstum. Pitman telur
einnig að lækna megi eftirköst slíkra
áfalla, jafnvel mörgum árum eftir
að þau áttu sér stað. Rannsóknir
Pitmans hafa leitt í Ijós að stöðugt
flæði streituhormóna orsaki þessi
eftirköst sem oft hafa afdrifaríkar
afleiðingar.
Rottur í aðalhlutverki
Karim Nader frá McGill háskóla
hefur einnig tekið þátt í þessum rann-
sóknum og hefur hann notað rottur
til þess að reyna kenningar sínar.
Hann setti þær nálægt miklum hita
sem þær lærðu að óttast og urðu óró-
legar. Nader vakti svo upp þessar
óþægilegu minningar um hitann
hjá rottunum nokkru síðar.
Dr. Pitman gerði rannsókn á sjúk-
lingum á Ríkisspítalanum í Massac-
husetts. Allt voru þetta sjúklingar
sem orðið höfðu fyrir alvarlegri lík-
amsárás eða nauðgun. Pitman gaf
sjúklingunum lyf sem nefnt er Propr-
anolol, sem lengi hefur verið notað
til þess að lækka blóðþrýsting, en
það virkar einnig á minnisstöðvar
í heilanum. Annar hluti sjúklinga
fékk lyfleysu. Þremur mánuðum
síðar voru sjúklingar látnir hlusta
á upptökur af því þegar þeir lýstu
árásinni. Vísindamennirnir veittu
því athygli að þeir sem fengið hefðu
Propranolol þjáðust af mun minni
streitueinkennum en þeir sem fengu
lyfleysuna.
Minningar hluti af sjálfsmynd
Á síðustu mánuðum hafa Pitman
og Nader ásamt félaga sínum Alain
Brunet, vísindamanns við McGill
háskólann, rannsakað tuttugu ein-
staklinga í Montreal og nágrenni
sem urðu fyrir alvarlegu áfalli fyrir
20-30 árum síðan, oftar en ekki
var um að ræða kynferðislega mis-
notkun. Þessi hræðilegu atvik voru
rifjuð upp með fórnarlömbunum í
viðtalsmeðferð og með því voru ein-
staklingarnir betur búnir undir það
að taka við þeim lyfjum sem áttu
að virka á umræddar stöðvar í heil-
anum og hafa þessar tilraunir þre-
menninganna gefið góða raun
Dr. Nader segir þó að það sé ekki
lokamarkmið að eyða algjörlega
aðtiB
mm 1
4 a
ik': ' ! 1 I 1
jr,w- --
V
Allra veðra von
utakort
■'
Notaðu viðarvörn sem þolir íslenskt veðurfar
Vidarvörn er ekki þaö sama og viðarvörn. Kjörvari er
sérstaklega þróaður fyrir íslenska veðráttu þar sem
mikilvægt er að gæðin séu í lagi.
Náðu þér í nýja Kjörvara litakorti
Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfiröi • Málningarbúðin Akranesi
• Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Harnrar, Grundarfirði Litabúðin Ólafsvík
• Núpur byggingavöruverslun ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki
• Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • Byko Reyðarfirði • Verslunin Vík, Neskaupstað • Byko Selfossi
• Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
málning
- það segir sig sjúlft -