blaðið - 08.07.2006, Page 15
blaðið LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006
VIKAN I 15
Vikan í máli og myndum
[þróttir setja svip sinn á myndir vikunnar að þessu sinni. Frakkar og Italir leika til úrslita í heimsmeistaramótinu í fót-
bolta nú um helgina eftir æsispennandi undanúrslitaleiki þar sem Þjóðverjar og Portúgalar máttu lúta í gras. Þó að
augu flestra íþróttaunnenda hafi beinst að heimsmeistaramótinu gerðist ýmislegt annað í heimi íþróttanna í vikunni.
Bestu tennisleikarar heims komu saman í London til að taka þátt í hinu árlega Wimbeldon-móti sem er eitt af stærstu
og mikilvægustu tennismótum ársins. Hinu megin við Ermasundið beinast hins vegar allra augu að litríkum hjóla-
köppum um þessar mundir enda Frakklandshjólreiðarnar nýhafnar og spenna í lofti þar sem sigurvegari undanfar-
inna ára, Lance Armstrong, er ekki í hópi þátttakenda.
Frakkar fagna við Eiffel-turninn Franska landsliðið í fótbolta vann frækinn sigur á því portúgalska á miðvikudag og tryggði sér þar með
rétt til að taka þátt í úrslitum mótsins þar sem það mætir (tölum. Franskir fótboltaáhugamenn þustu út á götur og torg þegar úrslitin lágu
fyrir og fögnuðu að hætti hússins.
Hinsegin litadýrð Nú er runninn upp sá árstími þegar hommarog lesbíur koma saman
úti á götu til að gera sér glaðan dag og vekja athygli á réttindabaráttu sinni. Þessi litríka
dragdrottning tók þátt í samkomu samkynhneigðra í Bogota í Kólumbíu á dögunum.
Frakklandshjólreiðarnar hafnar Frakk-
landshjólreiðarnar eru nýhafnar en þessi
árleigi stórviðburður í íþróttalífinu hefur að
nokkru leyti fallið í skuggann af heims-
meistaramótinu í fótbolta. Hér sést banda-
, ríski hjólagarpurinn George Hincapie bíða
eftir að geta lagt af stað í annan áfanga
keppninnar á mánudag.
Ungur munkur Barnungur munkur heldur
á mynd af Dalai Lama á hátíðarhöldum
í tilefni af 71 árs afmæli trúarleiðtogans í
Kathmandu, höfuðborg Nepals.
Ungur kúreki Hann er ekki hár (loftinu þessi ungi.kúreki" sem hér sést ríða kind einni á
ródeói í Morley í Alberta-fylki í Kanada.
Tennis með frjálsri aðferð? Ekki fylgir sögunni af hverju tékkneski tennisleikarinn Radek
Stepanek stakk spaðanum í munninn á sér í viðureign hans við Spánverjann Fernando
Verdasco á Wimbledon-mótinu í London. Ekki er þó óhugsandi að hér sé um að ræða
nýja aðferð til að leika þessa göfugu íþrótt.
Á bænTíbeskur pílagrími á bæn við Potala-höllina í Lhasa ÍTíbet. Höllin sem er meira en 1300 ára gömul er á heimsminjaskrá UNESCO.