blaðið - 08.07.2006, Side 27
blaðið LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006
TÍSKA I 27
GULRÓTARBUXUR
Eins og landsmenn hafa tekið eftir
þá hafa svokallaðar gulrótarbuxur
tekið landann heljargreipum og
það virðist hver sem er hoppa í
þessar buxur eins og ekkert sé .
Ég er mjög hrifinn af þessari
tísku og finnst hún rosalega töff
(en bara fyrir þá sem þetta er
hannað fyrir).
Ég er til dæmis þannig vaxinn
að ég er frekar lítill og samanrek-
inn, svona eins og kartöflubóndi.
Þegar ég er kominn í þessar buxur
verð ég eins og miðaldra fíll í span-
dexbuxum eða Disney-persónan
sem er flóðhestur í balletbúningi.
Hvað um okkur sem erum ekki
185 cm og fædd með folaldafætur,
eigum við að fara í þessar buxur
bara af því að það er í tísku þó svo
að þetta fari okkur ekkert vel. Eða
eigum við að taka „fótum saman“
og sniðganga þessa tískusveiflu?
Ég fjárfesti meira að segja í
svona buxum og nú sé ég svo eftir
því að það hálfa væri nóg því ég
hef ekki notað þær og ég hefði ör-
ugglega getað notað þennan pen-
ing í eitthvað annað. Ég veit ekki
hvernig mér datt í hug að kaupa
TÍSKA
Skjöldur Eyfjörð
þær því ég á næstum því engin
mistök í skápnum mínum. Ég hef
nefnilega alltaf hlustað á hjartað
þegar ég er að máta föt.
Það virðist einhvern veginn
alltaf koma rétt svar frá hjartanu
þegar maður er að máta föt, bara
ef maður stoppar í smá stund í
mátunarklefanum og lætur ekki
tísku og strauma ráða því hvort
að þetta fari manni vel heldur
spyr sjálfan sig í einlægni: „Fer
þessi flík mér vel og á ég eftir að
nota hana eitthvað að ráði?“ Ef þú
ert heiðarlegur við sjálfan þig þá
færðu alltaf rétt svar, til dæmis
eins og „þær eru nú smá stuttar og
m
þröngar, of víðar, ekki alveg nógu
gott snið fyrir mig“ og þar fram
eftir götunum. Bara ef maður
hugsar aðeins og gefur sér tíma
til að versla getur maður komið
í veg fyrir svona mistök. En við
sem erum ekki dádýr í aðra ætt-
ina getum alveg tekið gleði okkar
á ný því tískan fer alltaf í hringi
og fyrst að það eru niðurþröngar
buxur í tísku núna þá er ekki svo
langt í að útvíðar buxur verði að-
almálið. Það mun henta okkur ro-
salega vel en ekki þessum sem eru
háir og limalangir, þannig að ég
verð bara að bíða.
Barnsleg augu og
himinháir leggir
Flestir sem komnir eru til ára sinna
þekkja barnslega ásjónu hinnar
grannvöxnu Twiggy sem oft er talin
vera fyrsta ofurfyrirsætan. Hún
sprangaði keik eftir tískupöllunum
frá sextán ára aldri og varð holdger-
vingur tíðarandans á einni nóttu.
Það má með sanni segja að
hún hafi verið andlit sjöunda
áratugarins.
Heil kynslóð lét heillast af risa-
stóru augum Twiggy sem umlukin
voru ótrúlega löngum, dökkum
augnhárum. Hún var ljós á brún
og brá, hafði nokkrar freknur á
nefinu og varirnar voru fagurlega
lagaðar. Það var eitthvað alveg nýtt
og ómótsæðilegt við grannvöxnu dö-
muna með augun og stúlkur jafnt
sem piltar mændu agndofa upp eftir
leggjunum löngu. Búsældarlegar
íslenskar sveitastúlkur hættu unn-
vörpum að neyta rjóma og smjörs
til þess að freista þess að ná ótrú-
lega grönnum líkamsvexti Twiggy.
Ávalar línur Marlyn Monroe höfðu
kvatt sviðsljósið og það var ekki
lengur eftirsóknarvert að vera
vaxin eins og stundarglas. Hin tæ-
landi, syndum hlaðna kona sem
kvað Kennedy afmælissönginn há-
sum rómi varð að víkja fyrir barns-
lega englinum Twiggy. Allar stúlkur
vildu verða eins og hún. Þó langt
sé um liðið síðan stjarna Twiggy
skein sem skærast þá hefur hún enn
ótvíræð áhrif á strauma og stefnur
í tískuheiminum. Tískan gengur í
þúsund hringi og Twiggy sprangar
reglulega inn á sjónvarsviðið, alltaf
jafn tágrönn og saklaus. Twiggy er
í dag einn af dómurum Tyru Banks
í sjónvarpsþáttunum America’s
Next Top Model og líklega sá
viðkunnanlegasti.
SMÁAUGLÝSINGAR
KAURA
/SELIA
blaöiöB
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Árangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
29 vítamín og steinefni ■ 1 8 aminósýrur • Blaðgræna ■ Omega
• GLA fitusýrur ■ SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
www.celsus.is
Súrefnistæmdar umbúöir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir,
ræktaðir I ferskvatni eftir ströngum
gæðastaðli. IS09001 ■ IS014001
Fæst í öllum apótekum. ^^naður lifandi
m
BÚÐIN
ÞAR SE/Vl FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN
www. budin.is
%
Þegar kemur að því að velja tölvubúnað skipta
gæði og þjónusta höfuðmáli!
AMDTurion 64ML-32
1,8MHz15.4" WXGA
1024DDR/mest 2GB * 80GB Diskur
DVD Skrifari • ATl Radeon 128mb skjákort
Hljóðkort • Netkort • Þráðlaust • Módem
Stýrikerfi: Windows XP Home
129.900 kr.
HP3940 Prentari
16bls svörtu/min • 12bls lit/min
4800 x 1200 dpi • USB tengi
PC&MAC
8.900 kr.
Þráðlaus útprentun!
Með linksys prentþjón
Styður flest allar gerðir
laser og bleksprautuprentara
Kynntu þérmáiið!
12.900 kr.
*aprm
HPBÚÐIN EHF • business partnerá isiandi
Brautarholti10-14 • Sími 568 5400