blaðið - 08.07.2006, Síða 30
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaðiö
30 I IPRÓTTIR_______________________________________
Zidane hefur verið bestur
Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs KR, Emil Hallfreðsson, leikmaður Malmö, og Grétar Sigfinnur Sigurðarson,
leikmaður Víkings, rœddu við blaðamann um HM íknattspyrnu sem lýkur á morgun. Þau eru sammála um að Zin-
edine Zidane hafi verið besti leikmaður mótsins og eru á því að Frakkar muni standa uppi sem heimsmeistarar.
Eftir Björn Braga Arnarsson
Hvaða lið olli mestum vonbrigðum?
Helena: „Ég hugsa að það hafi verið
Brasilía. England gerði það að vissu
leyti líka og manni fannst liðið þeirra
aldrei vera að smella saman. Það eru
kannski gerðar óraunhæfar kröfur til
Englendinga en þeir eiga frábæra leik-
menn og áttu að gera betur. Svo missa
þeir hvern sóknarmanninn á fætur
öðrum og voru greinilega ekki til-
búnir í það. Þá kom best í ljós hversu
undarlegt það var að Sven-Göran
Eriksson skyldi velja þennan ungling,
Theo Walcott, í hópinn."
Emil: „Ég myndi segja Brasilíu-
menn. Það voru ágætis vonbrigði að
fá ekki að sjá neina takta hjá Ronald-
inho. Síðan hélt ég nú að Trínidad og
Tóbagó yrðu sterkari eftir að hafa rétt
marið okkur íslendinga í æfingleik í
London fyrr á árinu.“
Grétar: „England var vafalaust
mestu vonbrigði mótsins. Það býr
miklu meira í þessu liði, með allar
þessar stjörnur innanborðs."
Hvað þótti þérvera
spútniklið mótsins?
Helena: „Mér finnst Portúgalar koma
vel til greina sem mesta spútnikliðið
og kannski Frakkar líka því að maður
átti nú ekkert sérstaklega von á miklu
frá þeim. Það var alltaf verið að tala
um gömlu mennina hjá franska lið-
inu en það eru einmitt þeir sem hafa
reynsluna og þess vegna finnst mér
líklegt að þeir taki titilinn úr þvi sem
komið er.“
BÍLHÚSIÐ
www.bilhusid.is
Véla- og hjólastíllingar.
Tímareimaskipti, bremsuviðgerðir,
smurþjónusta og aliar almennar viðgerðir.
Smlðjuvegl 60 (Rauð gata) • Kópavogl • Síml 557 2540 - 554 6350
CHKVSI.KK • li:i;i> • DOIHiK • SKODA
Zinedine Zidane hefur farið mikinn á slnu síðasta HM og vilja margir meina að hann hafi verið besti leikmaður mótsins.
Podolski besti unqi leikmaðurinn
Hvaða leikmenn ollu
mestum vonbrigðum?
Helena: „Ég sá lítið af Ronaldinho
sem ég held nú mjög mikið upp á
og samherji hans Ronaldo var ekki
nema skugginn af sjálfum sér. Þá
fannst mér David Beckham ekki eins
afgerandi og hann á að vera.“
Emil: „Ronaldinho, Luis Figo
og Eddie Pope ollu mér mestum
vonbrigðum.“
Grétar: „Frank Lampard og Wayne
Rooney. Það má í raun segja bara allt
enska landsliðið í heild.“
Hvernig fer úrslitaleikurinn?
Helena: „Ég ætla að tippa á að
Frakkar taki þetta 2-1.“
Emil: „í-i eftir venjulegan leik-
tíma þar sem Zidane og Totti setja
hann. Frakkland vinnur þetta svo í
vítaspyrnukeppni."
Grétar: „Frakkar vinna 2-0.“
bjorn@bladid.net
Emil Hallfreðsson.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson.
Þýski sóknarmaðurinn Lukas Pod-
olski var í gær kjörinn besti ungi
leikmaður HM. Podolski, sem er
20 ára gamall, skoraði þrjú mörk
í sex leikjum og var einn af lykil-
mönnum þýska liðsins. Podolski
sagði að verðlaunin væru kær-
komin sárabót fyrir heimsmeistara-
titilinn sem Þjóðverjar urðu af.
„Ég hefði auðvitað viljað vinna
mótið en þetta er stórkostlegur
heiður og mikil hvatning fyrir mig
til þess að gera ennþá betur,“ sagði
Podolski sem skaut leikmönnum
á borð við Cesc Fabregas, Lionel
Messi, Cristiano Ronaldo og Luis
Valencia ref fyrir rass. Engir
enskir leikmenn voru tilnefndir til
verðlaunanna.
Áróðri beitt gegn Ronaldo?
Undanfarnar vikur hefur verið skoð-
anakönnun á heimasíðu FIFA þar
sem lesendur voru látnir velja þann
unga leikmann sem hefði staðið sig
best að þeirra mati. Ronaldo hafði
yfirburðaforystu allt þar til leikur
Englendinga og Portúgala fór fram
en þar þótti hann sýna ódrengilega
framkomu við brottrekstur Wayne
Rooney.
1 kjölfarið fóru netpóstsendingar
að ganga manna á milli, eins og
eldur í sinu, þar sem hvatt var til að
þess að hunsa Portúgalann í valinu.
FIFA hafði úrslitavald við kjörið
en margir telja að háværar kröfur
almennings um að Ronaldo fengi
ekki verðlaunin hafi haft áhrif.
Emil: „Mér fannst ekkert lið koma
eitthvað sérstaklega á óvart með
góðri frammistöðu. Þetta var voða-
lega mikið eftir bókinni bara.“
Grétar: „Ætli það hafi ekki verið lið
Ghana. Þeir voru mjög skemmtilegir."
Hver var besti leikmaður mótsins?
Helena: „Maður getur ekki sagt
annað en Zidane og það má líka
nefna Cristiano Ronaldo. Þó að hann
hafi nú ekki verið vinsæll þá spilaði
hann óneitanlega mjög vel og það var
frábært hvernig hann stóð af sér að
það væri púað á hann allan síðasta
leik.“
Emil: „Zinedine Zidane var rosal-
egur á móti Brasilíu og ég gef honum
mitt atkvæði í bili, en við þurfum að
sjá hvernig hann stendur sig í úrslita-
leiknum. Lukas Podolsky var svo
bestur af ungu leikmönnunum og
Francesco Totti var fallegasti besti
leikmaðurinn.“
Grétar: „Hingað til er Zinedine
Zidane búinn að vera virkilega góður.
Það hafa samt fáir verið að skara
sérstaklega fram úr finnst mér, en
nokkrir búnir að vera fínir.“
Helena Ólafsdóttir.
FERÐALÖG