blaðið - 08.07.2006, Side 33
blaöiö LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006
ÝMISLEGT I 33
RAGGA OmARS /V MATREIÐSLUMEISTARA
Bakaður Camenbert
Eftir að ég kom heim frá Króatíu
fyrir nokkru frétti ég að það var
stanslaus rigning hér heima. En
tvær síðustu vikur hafði ég einmitt
sent uppskriftir um hvernig mat er
gott að borða í hitanum þar úti með
ísköldum bjórnum. Það hefur því
kannski ekki verið eins góð stemn-
ing hér heima og var hjá mér í Króa-
tíu. Menn þurfa nú samt að lyfta sér
upp og við íslendingar erum ekki í
vandræðum með það. Þá er það mat-
urinn sem fylgir yfirleitt með og hér
kemur hugmynd af einum ótrúlega
góðum og skemmtilegum snarlrétti,
sem er tilvalinn fyrir okkur karlana
að græja með úrslitaleiknum á HM
á sunnudaginn. Þá hafa konurnar
eitthvað til að japla á meðan þær
stara á sætu fótboltastrákana með
flottu lappirnar. Þetta er Camenbert
sem er bakaður heill inni í ofni og
þegar hann hitnar þá bráðnar hann
að innan og skorpan ætti að halda
honum heilum. Síðan er um að gera
að hafa nýtt brauð, dorritosflögur,
ólífur, sólþurrkaða tómata, kletta-
salat og sultu. Ostinum er smurt á
brauðsnitturnar og hver og einn
raðar sinni snittu saman eftir eigin
höfði. Þegar osturinn er bakaður
er hann hafður í botninum á pakk-
anum sem hann er í og í bréfinu
sem hann kemur í úr búðinni. Þegar
hann er opnaður þá er hægt að setja
smá ólífuolíu á hann og einnig
krydda hann með hvítlauk eða
ferskum kryddjurtum. Síðan er best
að loka honum aftur og baka hann.
Camenbert þarf ca. 125-30 mínútur í
i8o°C heitum ofni, opna hann og allt
er tilbúið.
Kveðja, Raggi
SU DOKU - LEIÐBEININGAR
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
8 5 1
4 3 8 2 9 3 7
3 4 1 9 3 4 8
9 3 6 2 3
6 8 9 4 3 5 6 1 4
5 2 9 4 6
2 5 9 7 1 3 4
2 6 8 3 4 6 1
8 7 5
3 2 5 8 6 3
5 8 2 8 2 9
4 2 8 5 3 6
9 1 5 2 7 6 1
7 9 6 7
7 8 1 3 2 4 5
7 2 3 6 4 9
3 6 1 2 8 9
9 4 6 9 2 1