blaðið - 08.07.2006, Side 34
FLAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006 blaöiö
fR.UMSÝNJi\IG \
ÁLFABAKKA
ÆW-iilM
THE BREAK UPKL 12:30-3-5:45-8-10:20
THE BREAK UPVIP KL 1:45-4:15-8
10:20
FAST&THEFU.3 KL. 5:45-8-10:20
BÍLAR ísl. tol KL 12:15-1:30-3-5:30-8
CARSenskttal KL 12:15-3-5:30-10:20
THE LAKE HOUSE KL 1:30-3:30-5:45-8
10:20
SUTHER KL 10:30
SHE'STHE MAN KL.8
KRINGLUNNI
IbLUNNI'w
THE BREAK UP
KL 1:30-3:45-6-
9-10:15-11:30
FAST&THEFUR.3 KL 8:15-10:30
BÍLAR ísl. tal KL. 1:30-2:45-4-6:30
CARSenskttal KL. 8:15
POSEIDON KL 6
KEFLAVÍK
THEBREAK UPKL. 5:45-8-10:10
THECUCK KL 1-3:15-8
FAST&THEFU. 3 KL. 5:45-10:10
AKUREYRI
THEBREAKUP KL. 6-8-10:10
THE LAKE HOUSE KL. 8-10:10
BÍLARísl.tol KL. 1:40-4-6
CARSenskttal KL 1:40
OVER THE HEDGE isl. tal KL 4
THEBREAKUP KL. 6-8:15-10:30
THE LAKE HOUSE KL. 6-8:15-10:30
CARS enskt tol KL 6-8:30-10:50
BÍLAR ísl. tol KL 6-8:30
KEEPING MUM KL. 6-8:20-10:30
POSEIDON KL. 10:50
J
SmtiRR^BfÓ
THE BENCHWARMERS
kl.2,4,6,8og1OB.L10ABA
aiCK
kl. 3,5.30,8 og 10.30 B.l 10 ARA
CUCKlLÚXUS
kl. 3,5.30,8 og 10.30 B.L 10ARA
JUST MYLUCK
kl. 8og 10.20
RV
kl. 3.40 og 5.50
DAVINCICODE
kl.6og9B.L14ARA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl. 2 og 4
ÍSÖLD 2 ÍSLENSKT TAL
kl. 150
REcnBOGÍnn
THE BENCHWARMERS
kl. 3,6,8og10ai. 10ARA
CUCK
kl. 3,5.30,8 og 10.30B.L 10AflA
THEOMENB.L16ARA
kl. 10.30
X-MEN3
kl. 5.30 og 8 B.L12ARA
DAVINCICODE
W. 8 B.l. 14ÁRA
TAKETHELEAD
kl. 5.30B.1.10ARA
RAUÐHETTAISLENSKT TAL
W.3
ÍSÖLD 2 ÍSLENSKT TAL
kl.3
THE FAST AND THE FURIOUS 3 Bi 12
kl. 4,6,8 og 10.15-P0WER
CUCK
kl. 2,4,6,8og 10.15B.L10ARA
STAYALIVE
kl. 10.15 B.1.16 ARA
TAKETHE LEAD
W. 5.45 og8B.L 10ÁRA
SALTKÁRKA 4ISLENSKT TAL
W.4
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl. 2
ÍSÖLD 2 ÍSLENSKT TAL
kl.2
THE BENCHWARMERS
kl. 4,6,8 og 10 B.1.10 ARA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
kl.4og10.10ai 12ARA
CUCKB1.10ARA
ki. 6 og 8
J
34 I AFPREYING
w
Ahugaverður efniviður
missir algerlega marks
Kvikmyndir
Birgitta Jónsdóttir
The Lake House
Leikstjóri: Alejandro Agresti
Aðalhlutverk: Keanu Reeves, Sandra
Bullock, Shohreh Aghdashloo, Christopher
Plummer, Ebon Moss-Bachrach, Willeke van
Ammelrooy
Lengd: 98
Ekkert aldurstakmark skráð
Bandarikin 2006
iri
Óbærilega langdregin og útþynnt
Eftir að hafa séð kynninguna á The
Lake House var ég nokkuð spennt,
fannst efniviðurinn bjóða upp á
áhugaverða sögufléttu. Þegar ég
kom í bíó voru aðeins kvenmenn á
myndinni og einstaka karlmaður í
för með þeim. Upphaf myndarinnar
hélt aðeins í væntingar mínar en svo
varð myndin afleitari uns hún var
orðin óbærilega langdregin og út-
þynnt. The Lake House er lauslega
byggð á suður-kóresku myndinni
,11 Mare“ og er fyrsta tilraunin til að
yfirfæra stelpumynd á milli þessara
tveggja menningarheima ef frá eru
taldar stöku strákamyndir.
Töfrapóstkassi og sendibréf
Söguþráðurinn er í grófum dráttum
svona: tvær einmanna sálir, dr.
Sandra og herra Keanu arkitekt
elska bæði afar sérstakt glerhús
við vatn í nálægð Chicago borgar.
f upphafi myndarinnar er Sandra
að flytja út úr húsinu og Keanu að
flytja inn. Hún skilur eftir bréf til til-
vonandi leigjanda þar sem hún biður
hann um að áframsenda póstinn
sinn. Hún afsakar jafnframt máln-
ingarför eftir hund á landgangi við
húsið. Keanu flytur inn skömmu
síðar og finnur bréfið, hann skilur
ekkert í þessum skilaboðum því það
eru engin spor eftir hund á brúnni,
stuttu seinna er hann að mála brúna,
flækingshundur birtist upp úr þurru
og stígur ofan í málninguna og allt í
einu eru komin hin dularfullu spor
og hundurinn er enginn annar en
Jack, hundur dr. Söndru. Þau byrja
að skrifast á og þá kemur í ljós að
Keanu lifir í heimi sem þó er hluti
af þessum heimi tveimur árum á
undan dr. Söndru. Hjá húsinu við
vatnið er töfrapóstkassi úr fjórðu
víddinni þar sem bréfin þeirra kom-
ast til skila, merkilegt nokk þá sást
aldrei neinn póstburðarmann, það
skýrir kannski vantrú dr. Söndru
á póstþjónustunni. Ég hefði keypt
þetta með póstkassann en þetta
með hundinn var ekki alveg að
ganga upp. Nú þau verða ástfangin
og þrá að hittast en það gengur mjög
illa, því dr. Sandra er með alvarlega
gloppótt minni þrátt fyrir að vera
læknir á bráðamóttöku. 1 ofan á lag
voru svo mörg atriði sem gengu ekki
upp og þess vegna virðist sem hand-
ritshöfundurinn hafi verið haldinn
„alzheimer’s light.“
Glerhúsið örlagaríka
Stórkostlegt sjónarspil
Myndin var falleg fyrir augað, stór-
kostlegt sjónarspil fyrir þá sem hafa
gaman af arkitektúr og fallegu fólki.
Þó að Keanu hafi verið frábær í
Matrix þá á hann ekki að láta sjá sig
í svona myndum vegna þess að hann
veldur því ekki, hann ætti semsagt
ekki að tala of mikið og halda sig við
spennumyndir. Þau voru líka allt í
einu farin að tala saman „telepatískt”
og upplesturinn á bréfunum var
hræðilega tilgerðarlegur. Það voru
nokkrar flottar hugmyndir sem
gengu upp en það bætti ekki upp
hvað myndin var yfirþyrmandi þurr
og langdregin. Vitsmunum mínum
var alvarlega misboðið þegar vitnað
var á svo yfirboðslegan hátt í glæp og
refsingu, þegar myndin endaði á svo
fyrirsjáanlegan hátt og þegar ekkert
gekk upp í tímaflakkinu vegna þess
að troða þurfti hverri klisjunni á
fætur annarri í myndina. En til að
enda þetta á jákvæðum nótum þá
var myndatakan flott og hundurinn
sýndi afburðaleik.
birgitta@bladid.net
Tryllir
Páll Óskar mun þeyta skífum á
styrktarballi sem haldið verður
á Nasa í kvöld. Allur ágóði er
til styrktar Hinsegin daga sem
haldnir verða hátíðlegir dagana
9.-X2. ágúst. „Gay Pride hátíðin,
Hinsegin dagar, er öll unnin
í sjálfboðavinnu. Við leitum
fjármagns meðal annars í formi
dansleikja og er þetta sá stærsti af
þeim öllum, fyrir utan Gay Pride
ballið sjálft. Allur ágóði rennur
óskiptur til styrktar Hinsegin
daga. Hver króna skiptir máli.
Allir eru velkomnir á ballið að
sjálfsögðu, burt séð frá kynferði
eða kynhneigð. Vinir, fjölskyldur
og velunnarar eru sérstaklega vel-
komnir,“ segir Páll Óskar.
Við höfum líka ríka
ástæðu til að kætast
„Frumvarp ríkisstjórnarinnar um rétt-
arstöðu samkynhneigðra er orðið að
lögum. Frumvarpið fór til 3. umræðu
og atkvæðagreiðslu á Alþingi föstu-
dagskvöldið 2. júní og voru lögin
samþykkt með 41 atkvæði. Enginn
greiddi atkvæði á móti og enginn sat
hjá en 22 þingmenn voru fjarverandi.
Slíkur einhugur, þvert á línur stjórn-
málaflokka, má teljast einsdæmi í
heiminum þegar málefni lesbía og
homma eiga í hlut,“ segir Páll Óskar.
„Samkvæmt lögum geta samkyn-
hneigð pör nú fengið sambúð sína
skráða í þjóðskrá eins og gagnkyn-
hneigð pör. Þar með munu samkyn-
hneigðir njóta sömu réttinda og lúta
sömu skyldum og gagnkynhneigðir
hvað varðar almannatryggingar, líf-
lýðinn
eyrismál, skattamál, erfðamál og fjöl-
margt fleira. Að því gefnu að þessi
pör skrái sig í óvígða sam-
búð á Hagstofu.
Þá verða skilyrði
fyrir stofnun stað-
festrar samvistar
rýmkuð og
m.a. er ekki
lengur kraf-
ist fastrar
búsetu á ís-
landi þegar
íslenskir
ríkisborgarar
eiga í hlut,“ segir
Páll Óskar.
Geta ættleitt
„Þá er réttur samkynhneigðra para
í staðfestri samvist til að ættleiða
börn að öllu leyti sá sami og gagn-
kynhneigðra para en í hverju tilviki
er það að sjálfsögðu matsatriði þeirra
sem um slík mál fjalla hvort slík
heimild er veitt, rétt eins og í tilviki
gagnkynhneigðra para. Kona í sam-
búð eða staðfestri samvist með ann-
arri konu er nú jafnframt heimilt að
njóta réttar til tæknifrjóvgunar með
gjafasæði á opinberum sjúkrastofn-
unum líkt og gildir um konur í gagn-
kynhneigðu parasambandi. Þá eru
jafnframt tekin af öll tvímæli gagn-
vart lögum um töku fæðingar- og for-
eldraorlofs sem á að auðvelda báðum
foreldrum að vera í samvistum við
nýfætt barn sitt,“ segir Páll Óskar.
kristin@bladid. net
„Lopapeysan
2006"á
irskum dögum
Todmobile, Paparnir,
Raggi Bjarna og fleiri á
írskum dögum á Akranesi
Um helgina verða svokallaðir írskir
dagar á Akranesi. Um er að ræða alls-
herjar bæjarhátíð sem nær hámarki
á laugardagskvöldinu með risatón-
leikunum - „Lopapeysunni 2006“
sem haldnir verða í mikilli sem-
entsskemmu og í stórum tjöldum
niðri við höfnina. Þar munu koma
fram nokkrir af þekktustu skemmti-
kröftum landsins, en hitann og
þungann af hljóðfæraslættinum
munu bera hljómsveitirnar Todmo-
bile og Paparnir. Einnig stígur á
stokk hinn ástsæli söngvari.Raggi
Bjarna en hann mun sjá um fjölda-
söng ásamt fleirum. Kynnir Lopa-
peysunnar verður konungur Rokk-
lands, Ólafur Páll Gunnarsson, en
hann mun einnig snúa skífum af
stakri snilld.
Þetta verður í þriðja skipti sem
Lopapeysan er haldin í tengslum
við Irska daga. í fyrra heppnuðust
tónleikarnir í alla staði frábærlega,
enda má segja að um sé að ræða ein-
stakan viðburð. Til að tryggja góða
aðstöðu og fjölbreytileika verða
á stóru afgirtu svæði við sements-
skemmuna sett upp tíu myndarleg
veitingatjöld. Þar geta tónleika-
gestir gengið á milli tjaldanna og
upplifað mismunandi stemningu.
Aldurstakmark á Lopapeysuna er
18 ár og miðaverð í forsölu er 2.900
krónur en einnig verða seldir miðar
á staðnum.
Hvað erað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Laugardagur 8.júlí2006
12.00-Tónlist
Guðný Einarsdóttir, nýútskrifuð
frá Konunglegu konservatoríunni
í Kaupmannahöfn, leikur á hádeg-
istónleikum á vegum Alþjóðlegs
orgelsumars í Hallgrímskirkju,
laugardaginn 8. júlí kl. 12. Á efnis-
skránni eru verk eftir Buxtehude,
G. BÖhm og J.S. Bach.
Hamrar, f safirði
17.00-Tónlist
Aðrir tónleikar af sjö í orgeltón-
leikaröð sumarsins sem haldnir
eru á vegum Reykholtskirkju og
FÍO laugardaginn 8. júlí kl. 17.
Lenka Mátéováa leikur á orgel
og Peter Maté á píanó. Á efnis-
skránni eru verk eftir J.S. Bach, F.
Mendelson Bartholdy, Chopin, L.
Janácek, B Martinu og M. Reger.
Reykholtskirkja, Reykholti
21.00-Tónlist
Sumartónleikar við Mývatn,
Reykjahlíðarkirkja, laugardag
kl. 21, Skútustaðakirkja, sunnu-
dag kl. 21. Herdís Anna Jóns-
dóttir, víóla, Sólveig Anna Jóns-
dóttir, píanó og orgel, Steef van
Oosterhout, marimba og steina-
spil, flytja íslenska og rússneska
tónlist í bland við barokktónlist.
Aðgangur ókeypis.
Reykjahlíðarkirkja - Snorra-
braut 71,105 Reykjavík
20.00 - Leiklist
Footloose
Borgarleikhúsið - Stóra
Miðasala á midi.is
21.00-Tónlist
Lopapeysan 2006, Todmobile,
Paparnir spila og Raggi Bjarna
en hann mun sjá um fjöldasöng
ásamt fleirum. Kynnir Lopapeys-
unnar verður konungur Rokk-
lands, Ólafur Páll Gunnarsson.
Tjöldin niður við höfnina,
Akranes
22.00-Tónlist
Hljómsveitin Sixties leikur fyrir
dansi föstudag og laugardag,
húsið opnað kl. 22, frítt inn til
miðnættis.
Vélsmiðjan Akureyri - Strand-
götu 49,600 Akureyri
23.00-Tónlist
Hljómsveitin Bermuda heldur
þrusudansleik á Sæluhelginni á
Suðureyri um helgina.
Félagsheimilið á Suðureyri,
430 Suðureyri
23.00-Tónlist
DJ Páll Óskar verður plötu-
snúður á Gay Pride styrktarballi
laugardaginn 8. júlí kl. 23 og
fram á nótt. Miðaverð er 1000 kr.
og allur ágóði rennur óskiptur
til styrktar Hinsegin daga, sem
verða haldnir hátíðlegir dag-
ana 9.-12. ágúst. Fögnum nýju
lagabreytingunum.
Nasa
23.00-Tónlist
Bjórbandið rokkar í Pakkhúsi
Selfyssinga í kvöid.
Pakkhúsið, Selfossi
Sunnudagur 9. júlí2006
21.30-Tónlist
Ragnheiður Gröndal leikur
íslensk þjóðlög og annað efni
í Fríkirkjunni 9. júlí kl. 21.30.
Ragnheiður Gröndal, söngur og
píanó, Haukur Gröndal, klarí-
nett og bassett horn, og Hugi
Guðmundsson, elektróník. Miða-
verð er 1.000 kr.
Fríkirkjan í Reykjavík,
Tjarnargötu