blaðið - 08.07.2006, Síða 35
blaðið LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2006
UNGA FÓLKIÐ I 35
Huldufólk, álfar og hollenskir skátar
Dróttskátasveitin Wyxus í skátafélag-
inu Mosverjum í Mosfellsbæ tekur
um helgina á móti hópi hollenskra
skáta. Á næstu tveimur vikum
munu hóparnir fara saman í ferða-
lög og taka þátt í ýmsum krefjandi
og skemmtilegum verkefnum. Skát-
arnir sem eru á aldrinum 14-18 ára
munu meðal annars ganga Laugaveg-
inn þar sem gist verður í tjöldum og
skálum. Ennfremur munu þeir fara í
nokkrar styttri ferðir um Reykjanes
og Suðurland. Hollensku skátarnir
munu (síðari hluta ferðarinnar gista
hjá þeim íslensku í því skyni að efla
enn frekar kynni þeirra á milli.
Undirbúningur að verkefninu
hefur staðið frá áramótum en það
hlaut styrk frá ESB-áætluninni Ungu
fólki í Evrópu. Um langtímaverkefni
er að ræða því að eftir eitt til tvö ár
er gert ráð fyrir að íslensku skátarnir
sæki þá hollensku heim.
Menningarleg útivist
Ævar Aðalsteinsson, félagsforingi
Mosverja sem hefur haft veg og vanda
af skipulagningu verkefnisins, segir
að þó að Mosverjar hafi áður tekið á
móti hópum frá útlöndum hafi þeir
ekki tekið þátt í jafnmetnaðarfullu
og umfangsmiklu verkefni áður.
Yfirskrift verkefnisins er „menn-
ingarleg útivisf ‘ og hyggjast skátarnir
blanda þessu tvennu saman á næstu
dögum. „Við ákváðum að vinna með
þjóðsögur, ævintýri, huldufólk og
annað slíkt. Við munum heimsækja
staði sem tengjast þess háttar verum
auk þess sem það verður farið svo-
lítið í jarðfræði líka. Við vildum ekki
bjóða hollensku krökkunum upp á
fótboltamót eða eitthvað sem þeir
hafa heima hjá sér,“ segir Ævar og
bætir við að Hollendingunum finnist
mjög spennandi að takast á við þetta
verkefni.
Spenna og tilhlökkun
í báðumhópum
,fslensku krakkarnir eru líka orðnir
mjög spenntir fyrir þessu og eru
allir búnir að tryggja sér sumarfrí
til að geta tekið þátt í þessu þannig
að þetta verður vonandi allt mjög vel
lukkað og skemmtilegt. Það hefur
verið mjög gaman fyrir skátana hér
í Mosfeílsbæ að taka þátt í svona al-
þjóðlegu samstarfi," segir Ævar og
bætir við að það hafi mikið gildi fyrir
þá.
Auk þess að kynnast viðhorfum
jafnaldra sinna í Hollandi læra skát-
arnir margt af undirbúningi verkefn-
isins og skipulagningu. „Þeir þurfa
að halda dagbók og skila skýrslu
tveimur mánuðum eftir að verkefn-
inu lýkur. Þeir læra að vinna skipu-
lega og þau átta sig á þeirri ábyrgð
sem fylgir þvi að taka þátt í svona
verkefni. Þeir þurfa að taka á móti
krökkum sem eru hingað komnir
til að taka þátt í ákveðnu verkefni og
að þýðir ekkert að hlaupa frá því.
g held að það skipti heilmiklu máli
líka,“ segir Ævar að lokum.
Dróttskátasveitin Wyxus í Mosfellsbæ tekur um þessar mundir þátt í sameiginlegu verkefni með hollenskum skátum. Meðal annars
munu íslensku skátarnir fara með þá hollensku í fjallaferðir og leiða þá í sannleikann um íslenska álfa og tröll.
Flippað á föstudegi
Ungir og upprennandi listamenn settu svip sinn á miðbæ Reykjavíkur í blíðviðrinu í gær og brugðu á leik með leik
og söng og öðrum uppátækjum. Þar voru á ferð krakkar sem tekið hafa þátt í skapandi sumarhópum Hins hússins
í sumar og hafa unnið að margs konar menningarverkefnum á vegum þess. Atriðin voru jafnfjölbreytt og þau voru
mörg. Tónlistarmenn léku tónlist af ýmsum toga á götuhornum og í verslunum, götuleikhúsið framdi gjörninga
og Rannsóknarsvið íslenskrar þjóðmenningar bauð upp á „flip á la carte“. Þá bauð Tríóið taumlausa gestum og
gangandi upp á ókeypis portretteikningar og góðar ferskeytlur og Islenska hreyfiþróunarsamsteypan hyllti veðrið
í Kvosinni enda full ástæða til.
Engin ástæða er til að örvænta þó að menn hafi farið á mis við gleðina í gær því að á fimmtudag kl. 20 verður
haldin uppskeruhátíð sumarhópanna í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem boðið verður upp á metnaðarfulla og fjöl-
breytta dagskrá.
A Austurvelli frömdu ungir listamenn kynlegan gjörning vegfarendum til ánægju og eins og sjá má vantaði ekki heldur Blaöit/Frikki
krásirnar.
T \ 1 * \ / i'Á ^HI.
I Gaileríi Sævars Karls gátu gestir tekið sér hvfld frá innkaupum og notið Blatiö/Frikki
klassískrar tónlistar í flutningi Þremenningarsambandsins.
Ritstjórn feminíska vefritsins Lötu stelpunnar gekk um götur og torg og Blaöiö/Frikki
spurði vegfarendur kynlegra spurninga.
og ferskeytlur í tilefni dagsins.