blaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 blaöið
veiði
veidi@bladid.net
FISHER'S Motion, Gore-Tex
6 laga Gore-Tex vöölur
og vöðlujakkar.
Drcífing: Veiðihúsið • Hólmaslóð 4*101 Reykjavík • Sími: 562 0095 - 898 4047
Reynisvatn er mjög vinsælt hjá veiðimönnum enda nóg af fiski
í vatninu og sjaldgæft að fólk fari tómhent heim. í vatninu er
aðallega regnbogasilungur en einnig bleikja. Hægt er að leigja
stangir og báta og er aðstaðan tilvalin fyrir starfsmannahópa
sem og veislur af ýmsu tagi. Á staðnum er veitingasala, fjöldi
grilla, innisalur og útipallar. 561 0752 og 093 7101
d, vatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Nú ber vel í veiði!
Fallin hreindyr
Þaö er búiö að veiöa 121 hreindýr þaö sem af er af veiðitímabilinu eins
og siá má á www.hreindyr.is. Þar af er búiö aö veiða 94 tarfa og þá 27
kyr. Það er því Ijóst aö nog er eftir af kvótanum en veiðarnar aukast oft
þegar líöur aö lokum tímabilsins.
Fegurð og kyrrð í íslenskri náttúru. Þessi mynd er tekin við
Stekkjarskerjapoii á urriðasvæðinu við Laxá í Mývatnssveit.
Veiöimaðurinn heitir Dagur Eyfjörð en ásamt honum á myndinni eru
faðir hans, Jón Eyfjörð og Sigrún Soffía Halldórsdóttir. Þetta var fyrsti
urriðinn sem Dagur veiðir i Laxá. Myndina tók Jóhanna Hinriksdóttir.
Nú ættu veiðimenn að gæta sína
á því að gleyma ekki myndavélinni
heima næst þegar haldið er í veiði-
ferð því fyrir fallegar myndir er
nú hægt að vinna vegleg verðlaun.
Hans Petersen og veiðivefurinn
www.votnogveidi.is standa í sam-
vinnu að keppninni.
Guðmundur Guðjónsson ritstjóri
vefsins segir viðtökurnar hafa farið
fram úr björtustu vonum. „Það
rignir yfir okkur myndum og flestar
þeirra eru ákaflega glæsilegar. Við
erum með tvo keppnisflokka, ann-
ars vegar stemmingsmyndir og
hins vegar fjölskyldumyndir. Með
því reynum við að höfða til breiðari
hóps en bara þeirra sem stunda ein-
göngu harða laxveiði" Guðmundur
segir að eftir rúma viku verði hægt
að skoða allar myndir sem borist
hafa í keppnina inn á www.votnog-
veidi.is. „Við höfum hingað til verið
að birta myndir á vefnum eftir því
sem þær berast og hægt er að skoða
margar mjög fallegar og fjölbreyttar
myndir hjá okkur. Það er líka
sérstaklega gaman að því hversu
breiður aldurshópur hefur verið að
senda okkur efni“ segir Guðmundur
að vonum kátur með þessar góðu við-
tökur. Það eina sem þátttakendur
þurfa að gera er að senda myndir
sínar á stafrænu formi í netfangið
ritstjorn@votnogveidi.is og láta
fylgja einhverjar upplýsingar um
myndina, stað, stund og nöfn. Auk
þess er nauðsynlegt að fullt nafn,
netfang og símanúmer ljósmyndara
komi fram. Keppnin mun standa út
október og eru glæsileg verðlaun í
boði fyrir bestu myndirnar.
Veiðisagan mín:
Veiddi náhval með handskutlu
Árni Johnsen, stjórnmála- og blaða-
maður, er mikill veiðimaður og hefur
til að mynda veitt seli, rostunga og
ísbirni. Ein af eftirminnilegustu veiði-
sögunum segir hann vera þegar
hann veiddi náhval en náhvalur er
sjö metra hvítur hvalur sem er með
um tveggja metra langa önn. „Ég
var á veiðum með grænlenskum
veiðimönnum í nyrstu byggð í
heimi, Thule, og var á hafísnum um
margra vikna skeið. Við þurftum
að standa þolinmóðir á ísröndinni
tímunum saman og hreyfa okkur
ekki,“ segir Árni og bætir við að þó
ísinn hafi verið einn og hálfur metri
á þykkt mátti ekki ganga á honum
því hvalirnir myndu heyra það.
Borðaður hrár
Náhvalurinn var veiddur með hand-
skutlu eins og hefur verið gert í þús-
undir ára á Grænlandi. „Við biðum
þangað til náhvalirnir komu í færi
og þá var skutlað í þá með pínulítilli
ör sem er á litlu skafti. Örin stingst
inn undir húðina og hvalurinn fer í
kaf en hann kemst ekki í burtu þar
sem bönd eru tengd skutlinum.
Eins eru flotdufl tengd böndunum
og það togar í hvalinn. Hvalurinn
kemur því upp á yfirborðið en kafar
aftur niður þar til hann er orðinn
þreyttur. Þá er hvalurinn skotinn
með riffli og dreginn upp á ísinn af
mönnum og hundum. Það er byrjað
á því að skera bita af hvalnum undir
kviðnum, hvítt skinn sem nefnist
Maddack. Bitinn er rúmlega sen-
tímeter á þykkt en þetta er talinn
veislumatur og er borðað hrátt
á staðnum. Það er lítið bragð að
þessu en það er eins með þetta og
harðfisk, maður getur ekki hætt.“
Funheitt þrátt fyrir 40 stiga frost
Árni hefur farið nokkrum sinnum
á náhvalaveiðar þrátt fyrir mikið
frost enda segist hann vera það
vel klæddur að hann finni ekki fyrir
því. „Ég er í selskinnskaníkur, sem
eru selskinnsstígvél með ullargæru-
sokk inn ( og hárin vísa inn. Ég er
líka í ísbjarnarskinnsbuxum þar
sem hárin vísa út og hreindýrsanor-
akk þar sem hárin vísa út. Manni
er því funheitt þótt það sé um 40
gráðu frost,“ segir Árni sem geymdi
tönnina úr náhvalnum sem minjaa-
grip og hún prýðir nú heimili hans.
svanhvit@bladid.net
’emington
Skotveiðivörur
fást í næstu sportvöruverslun.
Innflutningur og dreifing: Veiðiland ehf.