blaðið - 11.08.2006, Side 35
blaðið FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006
35
kolbrun@bladid.net
Bovary Jennifer Jones sést hér í hlut-
hennar í samnefndri kvikmynd. I skáldsögur
Flauberts eraö finna bestu lýsingu á framhjá-
haldi að mati sérfræöinga Penguin.
Pexigui
Hj1.
MS Ul
tjf
Hugmyndin er sú að auðvelda al-
menningi að velja sér gott lesefni.
Flokkunin er nokkuð sérstök en
þar má meðal annars finna lista
yfir bestu geðsjúklingana í skáld-
verkum, bestu skúrkana, bestu
hetjurnar, bestu elskendurna og
svo framvegis.
Vitfirringar og elskendur
Penguin telur að besta vitfirring-
inn sé að finna í hinni mögnuðu
bók Ken Kesey, One Flew Over The
Cuckoo’s Nest og í öðru sæti er vit-
firringurinn í Dagbók vitfirrings
eftir Gogol. Best heppnuðu skúrk-
arnir eru hins vegar í Karamazov
bræðrunum eftir Dostójevskí en
þar glíma persónur við ýmiss kon-
ar siðferðislegan vanda og ekkert
lát er á dramatískum atburðum.
í öðru sæti er Innstu myrkur eft-
ir Joseph Conrad og James Bond
bókin Diamonds Are Forever er í
þriðja sæti.
Bestu elskendurnir eru í A Ro-
om With A View eftir E M Forster.
Cathy og Heathcliffe í Fýkur yfir
hæðir eftir Emily Bronte verða
að sætta sig við annað sætið og
Don Juan Byrons hafnar í því
þriðja. Besta kynlífið er í bók eft-
ir Georges Bataille sem nefnist á
ensku Story of The Eye. A Spy in
The House of Love eftir Anais Nin
er í öðru sæti og í þriðja sæti er
hin margfræga bók Elskhugi lafði
Chatterleys eftir D H Lawrance.
Sérfræðingar Penguin völdu einn-
ig bestu lýsingu á framhjáhaldi
en það er að þeirra sögn að finna í
meistaraverkinu Madame Bovary
eftir Flaubert. I öðru sæti er Ther-
ese Raquin eftir Emile Zola og Les
Liasons Dangereuses eftir Pierre
Choderlos De Laclos er í því þriðja.
Hetjurog glæpir
Bestu hetjurnar eru í David Cop-
perfield eftir Charles Dickens sem
er þvílíkt persónugallerí að leitun
er að öðru eins. Bestu grátbækurn-
ar eru svo í þessari röð: Mýs og
menn eftir Steinbeck, The Age of
Innocence eftir Edith Wharton og
Hringjarinn frá Notre Dame eftir
Victor Hugo. Besta hortuga stelp-
an er Becky Sharp í hinni stórgóðu
Vanityu Fair eftir Thackeray og Lo-
lita Nabokovs er í öðru sæti
Dr. Jekyll and Mr Hyde eftir Ro-
bert Louis Stevenson er besta hroll-
vekjan. I öðru sæti er Dracula eftir
Bram Stoker og Frankenstein eftir
Mary Shelley er í þriðja sæti. Besta
lýsing á hnignun er í The Great
Gatsby eftir F S. Fitzgerald. í öðru
sæti er Vile Bodies eftir Evelyn Wa-
ugh og Myndin af Dorian Grey eft-
ir Oscar Wilde er í þriðja sæti.
Besta glæpinn er að finna í Mai-
gret og vofunni eftir George Simen-
on, Hvítklædda konan eftir Wilkie
Collins er í öðru sæti og Svefninn
langi eftir Raymond Chandler í
því þriðja. Og besta vísindaskáld-
skapurinn er í Tímavélinni eftir
HG Wells.
A
Itilefni 6o ára afmæli útgáfu
sinnar á klassískum verkum
hefur breska Penguin útgáfan
gert lista yfir bestu klassísku
bækurnar og persónur þeirra.
Drakúla Þessi fræga saga Bram
Stoker hefur oft veriö kvikmynduö
og bókin kemst á lista Penguin yfir
bestu hrollvekjur sögunnar.
Sögur neöan
jaröar
Laugardaginn 12. ágúst kl:16:00
opna nokkrir listamenn frá
ýmsum löndum sýningar sínar í
Nýlistasafninu.
Pétur Már Gunnarsson frá íslandi
, Johann Maheut frá Frakklandi og
Toshinaro Sato frá Japan standa
saman að sýningunni Sögur
neðan jarðar.
Annar hluti sýningarinnar mun
fara fram í Frakklandi 2007 og
munu þá fleiri íslenskir listamenn
slást með í förina.
Pétur Már Gunnarsson hefur
haldið fjölda sýninga hér á landi
og erlendis. Hann stundaði nám
við Listaháskóla íslands og við
Listaakademíuna í Vínarborg. Um
skeið var hann stjórnarformaður
Nýlistasafnsins.
Johan Maheut starfar í París og
hefur sýnt víða um heim. Hann
vinnur fyrst og fremst með inn-
setningar og Ijósmyndir.
Toshinari Sato stundaði nám við
listaháskólann í Tókýó og við lista-
háskólann í Grenoble í Frakklandi.
Hann hefur sýnt víða um heim og
nú síðast í Masataka Hayakawa
galleríinu í Tókýó.
Sýning þeirra stendur til 3. sept-
ember
Afturelding í
stærsta bóka-
klúbb Þýskalands
Það besta í klassíkinni
Bertelsmann bókaklúbburinn
í Þýskalandi aetlar að gefa út
Aftureldingu eftir Viktor Arnar
Ingólfsson en bókin kom út fyrir
skömmu hjá Verlagsgruppe
Lubbe og náði hátt á metsölulist-
ann þar í landi.
Viktor Arnar hefur átt góðu gengi
að fagna í Þýskalandi og útkoma
Aftureldingar í bókaklúbbnum
er enn eitt dæmi um að vegur
hans þar fari vaxandi. Áður
hefur komið út hjá Bertelsmann
Flateyjargáta eftir Viktor, en
sú bók hefur verið þaulsetin á
þýskum metsölulistum. Bertels-
mann bókaklúbburinn er einn sá
stærsti í Þýskalandi og útgáfa í
honum þýðir mikla útbreiðslu á
bókinni og ómetanlega kynningu
á höfundinum.
Viktor Arnar ætlar að fylgja eftir
velgengni sinni í Þýskalandi og
mun í haust taka þátt í glæpa-
sagnahátíðinni Mord am Hellweg.
Hátíðin er tvíæringur og kynnt
sem stærsta alþjóðlega glæpa-
sagnahátíðin í Evrópu.
Fangaflutningar
til Alcatraz
menningarmolinn
Á þessum degi árið 1934 var hópur
fanga sem taldir voru stórhættulegir
umhverfi sínu fluttir til eyjunnar
Alcatraz við San Francisco flóann.
Fangarnir voru þeir fyrstu sem gistu
Alcatraz fyrir utan herfanga sem þar
voru fyrir frá þeim tíma er þar var
herfangelsi. Fleiri hópar fanga voru
fluttir þangað seinna í mánuðinum,
þar á meðal var A1 Capone. Árið 1934
var Alcatraz breytt í fangelsi með
svo öfluga öryggisvörslu að útilokað
átti að vera að flýja þaðan. Á þeim
árum sem Alcatraz fangelsið var í
notkun reyndu nokkrir tugir fanga
að flýja þaðan en ekki er vitað til
að nokkrum hafi tekist það. Menn
voru annaðhvort skotnir á flótta eða
drukknuðu í sjónum. Einum manni
tókst að synda í land en var hand-
tekinn þar sem hann lá örmagna á
meginlandinu. Árið 1962 flúðu þrír
menn frá Alcatraz en ekkert er vitað
um afdrif þeirra. Líklegast er að þeir
hafi drukknað en ekki er útilokað
að þeir hafi náð landi og farið huldu
höfði eftir það. Robert F. Kennedy
dómsmálaráðherra lét loka Alcatraz
fangelsinu árið 1963. Árið 1972 var
fangelsið opnað almenningi og rúm-
lega milljón manns heimsækja það
ár hvert.