blaðið - 23.08.2006, Page 6
6IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 blaöið
Klerkastjórnin í íran:
Svarar tilboöi
stórveldanna
Klerkastjórnin í íran svaraði
loks tilboði stórveldanna um efn-
agslegar ívilnanir gegn því að
íranar láti af auðgun úrans. Ali
Larijani, aðalsamningamaður
klerkastjórnarinnar í deilunni
um kjarnorkuáætlun hennar,
gerði fulltrúum þeirra ríkja sem
standa að tilboðinu grein fyrir
svari stjórnvalda í Teheran í gær.
1 tilboðinu, sem var lagt fram
fyrr í sumar, er klerkastjórninni
boðið upp á samstarf varðandi
friðsamlega nýtingu kjarnorku
auk efnahagsívilnanna. Flest
ummæli ráðamanna í Teheran
undanfarið gefa til kynna að
klerkastjórnin sé ekki reiðu-
búin að láta af auðgun úrans og
þar af leiðandi kemur málið til
kasta öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í lok þessa mánaðar.
Lögreglan:
Fíkniefni
og innbrot
mbl.is Tvö fíkniefnamál komu til
kasta lögreglunnar í Reykjavík
i gær og fyrradag. Tveir voru
handteknir í því fyrra en lítil-
ræði af ætluðum fíkniefnum
fannst í bifreið þeirra. f seinna
málinu var einn handtekinn
eftir að smáræði af ætluðum
fíkniefnum fannst í bifreið hans.
Þá fór þjófur inn í tvö sum-
arhús, sem eru í byggingu, og
hafði verkfæri á brott með sér.
Lögreglan í Reykjavík segir,
að nokkuð hafi borið á því að
verkfærum sé stolið í sumar og
hvetur fólk til að ganga frá þeim
eins tryggilega og hægt er.
Sælkerafæða á íslandsmiðum:
Nýjar tegundir nema land
■ Suðlægar tegundir auka útbreiðslu sína við ísland ■ Rannsóknir á byrjunarstigi
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Á undanförnum árum hefur
hitastig sjávar hækkað og út-
breiðsla suðlægra fiskitegunda
hefur aukist til norðurs," segir
Karl Gunnarsson, sviðsstjóri
Hafrannsóknarstofnunar.
f fyrra greindist ný tegund af
rækju á íslandsmiðum sem algeng
er meðfram ströndum meginlands
Evrópu. Tegundin heitir sandrækja
og hefur lengi verið veidd til mann-
eldis víða í Evrópu. Á sama tíma
fer annarri tegund fjölgandi hér
við land, töskukrabbanum, sem
þykir herramannsmatur á veitinga-
húsum á meginlandinu.
„Þetta eru nytjategundir sem eru
borðaðar til dæmis í Danmörku,
Niðurlöndunum, Frakklandi og á
Bretlandseyjum. Útbreiðsla sand-
rækjunnar hér hefur verið könnuð
því henni svipar til útbreiðslu skar-
kolaseiða. Töskukrabbinn þykir al-
gjör sælkerafæða," segir Karl.
Aukninq í stofninum
Þór Ásgeirsson, sérfræðingur á
Hafrannsóknastofnun, hefur ásamt
Birni Gunnarssyni rannsakað út-
breiðslu sandrækjunnar hér við
land undanfarið ár. Komið hefur
í ljós að einstaklingunum hefur
fjölgað til muna og útbreiðslan er
orðin meiri.
„Þetta var í raun tilviljun því við
vorum að kanna vistfræði skarkola.
Þá tókum við eftir þessari rækju-
tegund en hún hefur aldrei verið
greind hér á landi áður. Hún hefur
fundist víða í Faxaflóa og Breiða-
firði en ekki á Norður- og Austur-
landi. Nýverið komumst við að því
að tegundina er einnig að finna
eftir suðurströndinni, alveg austur
fyrir Hornafjörð,“ segir Þór.
Samkvæmt tölum frá Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins er rækjan veidd
víða í Evrópu en á síðasta ári veidd-
ust þar tæplega 30 þúsund tonn.
„Þetta er allt á byrjunarstigi og
Vísindamenn Draga veiðarfæri
á milli sín urtdan Álftanesi.
Fundu nýja
rækjutegund
fyrir tilviljun.
Pór Áseirsson
sérfrœðingur hjá
Hafrannsókna-
stofnuninni
engin áform uppi um stofnmæl-
ingar að svo stöddu. Hvort að við
séum að horfa upp á nýjan nytja-
stofn við landið verður tíminn að
leiða í ljós,“ segir Þór.
Forvitnileg tegund
Jörundur Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði við Háskóla íslands,
hefur fylgst með breytingum á út-
breiðslu töskukrabbans hér á landi.
„Við höfum kíkt eftir þessari teg-
und og svo virðist sem hún sé að
festa hér rætur. Frístundakafarar
hafa bent okkur á þetta og í-kjöl-
farið hófust rannsóknir á stofn-
stærðinni. Krabbinn er mjög al-
gengur í Hvalfirði en okkur grunar
Krabbinn
getur orðið allt
að fimm kíló.
Jörundur Svavarsson
prófessor við
Háskóla íslands.
að hann sé að finna víða við Vestur-
land,” segir Jörundur.
„Samkvæmt heimildum þá fannst
eitt eintak hér á landi á fyrri hluta
síðustu aldar en þetta er forvitni-
leg tegund. Hún er mjög stór og
getur orðið allt að fimm kílóum að
þyngd."
Fjölmargir Islendingar hafa
bragðað á töskukrabbanum í út-
löndum en aðspurður segist Jör-
undur ekki hafa bragðað á stofn-
inum hér við land.
„Krabbinn er snöggsoðinn og
borinn fram í heilu lagi þannig að
brjóta þarf skelina og borða innan
úr henni. Norðmenn flytja út fleiri
hundruð tonn á ári og ef stofninn
SANDRÆKJA
« Crangon crangon
• Hrossarækjuætt
« Gráleit með dökkum þverröndum
■ Hámarkslengd 8 sm.
* Algengust við Faxaflóa og á Breiðafirði
TÖSKUKRABBI
- Cancer pagurus
• Krabbaætt
> Rauðbrúnn að ofan og Ijósleitur á kvið
■ Hámarksþvermál 30 sm.
■ Algengastur í Hvalfirði
hér við land nær kjörstærð er ekki
útilokað að úr yrði nytjastofn,"
bætir Jörundur við.
SÍÐUSTU DAGAR
ÚTSÖLUNNAR
Frábær 21 glra.24" drengja & stúlkahjól, létt
H Súludansari irsk fyrirtæki heita
'Æja að eyða ekki peningum ísúludans.
jjfjfl Áhyggjur er af fjölgun nektarstaða
I á Irlandi.
Leeh Walesa:
Hættur í
Samstöðu
Lech Walesa lýsti því yfir í gær
að hann hafi sagt sig úr verkalýðs-
samtökunum Samstöðu vegna
stuðning þeirra við núverandi
valdhafa 1 Póllandi. Walesa
var stofnandi samtakanna og
leiðtogi þeirra en þau léku veiga-
mikið hlutverk í falli kommún-
istans í Austur-Evrópu á níunda
áratug síðustu aldar.
t samtali við AP-fréttastofuna
sagði Wales að hann hafi ákveðið
að hætta í samtökunum eftir að
þau ákváðu að veita stjórnmála-
flokknum, Lög og Regla, og leið-
togum hans, tvíburunum Lech
and Jaroslaw Kaczynski, i síðustu
kosningum i Póllandi stuðning.
Tvíburabræðurnir gegna nú
embættum forseta og forsætisráð-
herra Póllands
írland:
Fyrirtæki sporna
við súludansi
Um fimmtiu írsk fyrirtæki hafa
skrifað undir skjal þar sem þau heita
því að eyða ekki fé á súlustöðum.
Ruhama, írsk samtök sjálfboðaliða
sem veita vændiskonum aðstoð og
hjálp, stóðu fyrir söfnuninni til þess
að vekja athygli á ömurlegum veru-
leika þeirra sem starfa við vændi
og nektardans. Samtökin telja að
flestir viðskiptavina nektardans-
staða séu menn úr viðskiptalífinu
sem hafi lítinn grun um nöturlegar
aðstæður þeirra kvenna sem starfa
á stöðunum.
Gerardine Rowley, talsmaður sam-
takanna, segir að fjölgun nektardans-
staða á Irlandi áhyggjuefni og óttast
að afleiðing hennar sé að almenn-
ingur telji að um eðlilega skemmtun
sé að ræða. Að sögn Rowley hafa
samtökin tekið eftir fjölgun kvenna
frá Austur-Evrópu sem hafa flust til
írlands til þess að starfa við nektar-
dans en endað I vændi.