blaðið - 23.08.2006, Page 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagurehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
s
Omar
og Kárahnjúkar
Eftir að hafa varið einum degi með Ómari Ragnarssyni við Kárahnjúka
eru nokkrar spurningar uppi. Til dæmis, hvað rekur mann einsog Ómar til
að leggja allt það sem hann gerir? 1 hvaða tilgangi gerir hann þetta? Og má
vera að margt af því sem hann nefnir sé með þeim hætti sem hann segir?
Hver er ávinningurinn af virkjuninni? Og er það kannski svo að verið sé að
fórna minni hagsmunum fyrir meiri?
Ómar Ragnarsson er einstakur maður, það vita allir íslendingar. En að
sjá hann með eigin augum í þessu sérsaka hlutverki er ekki síður merkilegt
en það sem hann sýnir. Áhöld eru uppi um hvort er merkilegra, landið sem
verður sökkt eða Ómar.
Það er merkilegt að ganga um væntanlegan botn á uppistöðulóninu. Vissu-
lega fer þar fallegt land undir vatn, land sem alltof fáir hafa séð, snert eða
fundið ilminn af. Einstaklingurinn verður lítill og máttvana í hugsunum
sínum þegar hugsaði er til þess sem framundan er. Barátta þeirra sem hafa
barist gegn Kárahnjúkavirkjun er merkileg og hún mun sigra, ekki þó á
Kárahnjúkum. Andstaðan verður eflaust til þess að hægar verður farið í nán-
ustu framtíð. Það getur bara ekki verið sjálfsagður réttur núlifandi kynslóða
að endurtaka hina tröllsegu framkvæmd við Kárahnjúka. Svar þjóðarinnar
verður einfalt nei.
Aftur að Ómari. Ekki er nokkur í vafa um ást hans á landinu. Ást hans á
landinu hefur fangað hann svo mikið að hann fórnar flestu fyrir hugsjónina.
Það er einstök upplifun að sjá og vita að hann heldur meira og minna til á há-
lendinu, sefur þar í gömlum bílskrjóðum og er boðinn og búinn til að kynna
fyrir okkur afleiðingar Kárahnjúkavirkjunnar.
Ómar er ekki einn um að benda á stórtækar afleiðingar virkjunarinnar.
Hann gerir það með kröftugri hætti en flestum öðrum er unnt að gera. Hitt
er annað að stjórnmálamenn hafa ráðið ferðinni, þeir ákváðu Kárahnjúka-
virkjun, en um leið og þetta er sagt er nokkuð víst að þeim mun ekki veitast
eins létt að ráðast í annað eins. Barátta Ómars Ragnarssonar og fleiri sér til
þess. Virkjunarsinnar keppast við andstæðinga við að kynna málstað sinn.
Eftir að Landsvirkjun bauð ritstjórum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins
og Seðlabankastjóra í sérstaka ferð að Kárahnjúkum sendi Ómar opið bréf
og bauð nokkrum völdum einstaklingum í kynnisferð. Síðan hefur Lands-
virkjun sent boð til þeirra sem ekki fóru í fyrri ferðina, en eru á gestalista
Ómars. Landsvirkjun býður ekki allt, þeir sem þiggja verða að borga tutt-
ugu þúsund krónur vegna kosntaðar við flug. Þess vegna þótti þeim sem
þetta skrifar ekki annað við hæfi en borga Ómari það sama og Landsvirkjun
verður greitt. Vonandi að aðrir geri það líka. Kynnisferðin er að frumkvæði
Ómars.en má ekki vera alfarið á hans ábyrgð og á hans kostnað. Það er ekki
sanngjarnt.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavfk
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: (slandspóstur
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
Vh'i AVt'.
www.markisur.com
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
14 I ÁLIT MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 blaðið
Menntaráð klofið í tvennt
Sem kunnugt er, hefur hin nýja
minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar í borginni reitt
hátt til höggs og klofið ménntaráð
í tvennt. Þessir sömu flokkar voru
þráspurðir að því fyrir kosning-
arnar í vor hvort eitthvað slíkt væri
á döfinni, en þá var því neitað. Þeir
gátu víst ekki séð það fyrir að staðan
yrði þannig eftir kosningar að það
yrði að búa til nýja stöðu formanns
einhvers fagráðs fyrir einn fulltrúa
Sjálfstæðismanna.
Flaustursleg vinnubrögð
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar höfðu ekki fyrir því
að færa rök fyrir þeirri ákvörðun
sinni að kljúfa menntaráð í tvennt.
Það komu eindregnar óskir um fag-
leg rök fyrir ákvörðuninni, en þeim
var ekki sinnt, heldur voru einhver
rök tínd til eftirá um að það þyrfti
að sinna yngstu börnunum í borg-
inni vel. Reyndar var það helsta rök-
semdin til skamms tíma að mennta-
ráðið væri alltof fjölmennt og þess
vegna væri æskilegt að skipta því
upp.
Þá má nefna hvernig staðið var
að verki við umfjöllun um þessa
mikilvægu ákvörðun. Búið var að til-
kynna kjörnum fulltrúum í mennta-
ráði að þeir þyrftu ekki að reikna
með fundi fyrr en 21. ágúst, en síðan
var boðaður fundur með tölvupósti
með tveggja daga fyrirvara á föstu-
degi fyrir Verslunarmannahelgi!
Það er sagt að boðun fundarins hafi
verið lögleg, en er ekki hæpið að
ætlast til þess að fulltrúar í mennta-
ráði lesi tölvupóstinn sinn og séu
yfirhöfuð í tölvusambandi áþessum
tíma, fyrst þeir áttu ekki að reikna
með fundi? Óskir um frestun
fundar voru einnig virtar að vettugi.
Það er í hæsta máta óeðlilegt og afar
ólýðræðislegt að afgreiða svona mik-
ilvægt mál með þessum hætti.
Margrét K. Sverrissdóttir
Sameinað ráð reyndist vel
Æskilegast er að byggja þróun
skólastarfs á því sem gefur góða
raun. Reynslan er ólygnust og það
var almenn ánægja meðal fagstétta
með sameinað mennta- og leikskóla-
ráð enda nýttust þekking og reynsla
beggja skólastiga mjög vel við stefnu-
mótun í ráðinu.
Ein mikilvægasta og jákvæðasta
breytingin á liðnum árum er sú að
leikskólar hafa þróast í fyrsta skóla-
stigið og það er ákaflega mikilvægt
að hafa samfellu og samvinnu í
fyrirrúmi varðandi stefnumótun á
mörkum skólastiga leik- og grunn-
skóla. Það var líka á þeim hugmynda-
fræðilega grunni sem sameinað
menntaráð var sett á laggirnar á
sínum tíma og við hljótum að krefj-
ast svara við því hvaða hugmynda-
fræði liggur að baki þeirri ákvörðun
að slíta það sundur - ef hún er þá
fýrir hendi. Við þurfum að sjá til-
gang með þessum breytingum, ef
einhver er.
Fagstéttir hundsaðar
Enn hefur ekki farið fram nein fag-
leg umræða í menntaráði um þessa
ákvörðun og álit fagstétta, kennara
í leik- og grunnskólum, jafnt sem
foreldra hefur verið hundsað. Leik-
skólastjórar stóðu fyrir fjölmennum
fundi í Ráðhúsinu fyrir skemmstu
til að ræða þessi mál við kjörna full-
trúa borgarbúa. Sá fundur var eig-
inlega neyðarúrræði þessa faghóps
til að reyna að koma skoðunum
sínum á framfæri við þá sem völdin
hafa. Enþarvarsemfyrr, talaðfyrir
daufum eyrum og skilaboð valdhaf-
anna voru þau að þetta yrði svona af
því það væri þegar búið að ákveða
það. Oghananú.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
F-lista,frjálslyndra.
Klippt & skorið
Ekki eru allir vissir um það að útgáfa
Nyhedsavisen í Oanmörku muni ganga
jafnauðvelda og að var stefnt, ekki síst
eftir að sumir hluthafar Dags-
brúnar héldu að sér höndum,
þannig að félagið mun aðeins
eiga fimmtung í hinu nýja
blaði. En ritstjórinn David
Trads er hvergi banginn,
hlær að samkeþpninni og lofar væntanlegum
lesendum stórfenglegustu fjölmiðlabyltingu
sem um getur. Áform hans, athugasemdir og
djúpar hugsanir má lesa á bloggi, sem hann
heldur úti á avisen.dk, en sá vefur á að verða
helsti fréttavefur Danmerkur þegar fram líða
stundir. En hann er þó ekki yfir það hafinn að
leita ráða hjá tilvonandi lesendum og spyr:
„Hvernig tryggi ég að avisen.dk (og þar með
Nyhedsavisen) verði sá danskra fjölmiðla þar
sem varnargarðar elítunnar verða rifnir niður
og allar skoðanir eru jafngildar?"
Pólitísk viðtöl Helga Seljan á NFS vekja
jafnan athygli og það átti líka við um
samtal, sem hann átti við þau Stein-
grím J. Sigfússon, formann Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs, og Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur, fornann
Samfylkingarinnar, á mánu-
dagskvöld. Uppleggið var hin
hnífjafna staða Samfylking-
arinnar og vinstrigrænna í
nýlegri skoðanakönnun Gall-
ups og klippari gladdist vitaskuld þegar þau
Helgi og Ingibjörg Sólrún vitnuðu í dálkinn
um að í stað turnanna tveggja væri nær að
tala um parhúsið á vinstri vængnum. Það, sem
þó vakti mesta athygli, voru vangaveltur um
kosningabandalag vinstriflokkanna. Þau Solla
og Grímur vildu að vísu ekki játa að búið væri
að mynda það, en staðfestu að þau hefðu rætt
saman og að kosningabandalag væri athyglis-
verður kostur.
etta gagnkvæma daður mun hafa farið
misvel í flokksmenn formannanna.
Grasrót vinstrigrænna telur fráleitt að
ræða við endurskoðunarsinnana í Samfylking-
unni, ekki síst eftirað Ingibjörg Sólrún gaf til
kynna að stóriðjustefna flokksins yrði grafin í
kyrrþey og upp yrði vakin náttúruverndar-
stefna, sem vinstrigrænir
telja hreina hræsni.
Innan Samfylkingar-
innar voru menn engu
hressari með þetta tal
og mun verulegur kurr i
þingflokknum. Varafor-
maður flokksins, Ágúst
Ólafur Ágústsson, mun hafa verið ómyrkur
í máli um afstöðu sína til slfks hjals í upphafi
kosningavertíðar.
andres.magnusson@bladid.net