blaðið - 23.08.2006, Qupperneq 19
blaóið MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006
27 -
Fjörug veisla
Skreyttu borðið i barnaatmælinu
með þvi að statia öllum iítlu sætu
tuskudýrunum i miðjuna.
Falleg bollastell
Bollar,
Debenhams Eitt doppótt
og dúllulegt frá Debenhams.
Ekta til að bera fram kakó
eða kaffi latté.
Mörgum til mikillar gleði virðist naumhyggjustefnan vera óðum að hverfa
úr stofum landsmanna og við er tekin hlýlegri og rómantískari stemmning.
Antíkverslanir eru í kjölfarið orðnar vinsælli en áður og stóru hönnunar-
húsin setja á markaðinn rómantískari og kvenlegri vörur. ( Debenhams
býðst nú meira úrval af heimilisvörum í gamaldags stíl og í verslunni
Laura Ashley er úrvalið af slíkum vörum ávallt gott, enda hefur hún haldið
þessari stefnu óbreyttri í gegnum aðra tískustrauma. Hjá Fjólu í Antikhús
inu á Skólavörðustíg er hægt að finna frumgerðirnar, eða hluti sem eru
fyrirmyndir þeirrar hönnunar sem hönnuðir keppast nú við að *»
framleiða og svo má vitaskuld fara á ýmsa markaði hér-
lendis og erlendis til að finna húsgögn og aukahluti
sem gera allt meira kósí. Kannski er það líka
orðið tímabært, því um leið og daginn tekur
að stytta færist yfir okkur ákveðin værð ijyP* 1S
sem kallar á heitt kakó í bolla, púðakúr Æt,.
og kósí lýsingu í stofunni. íMÍHkY^
Laura Ashley Rósótt og sætt
frá Lauru Ashley. Takiö eftirþvi
hvernig bollarnir hanga á krókum,
klæðningunni innan á hillunni og
doppótta dúknum sem lagður hefur
verið yfir hilluna. Þetta var algengt
i gamla daga og þótti skynsamleg
leið til að hlífa hillunum.
Antikhúsið Danska Rósen-
borgarstellið sem var framleitt
allt þar til seinni heimstyrjöld-
inni laukárið 1945. Þetta er
fágætt stell en þykir afar fallegt.
margret@bladid. net
Laura Ashley Fallegir
púðar íjarðlitum eöa IJós-
um og léttum bláum litum
frá Lauru Ashley sem aldr-
ei hefur vikið. frá rómantí-
kinni í hönnun sinni.
Debenhams Fallegir
,gamlir“ silfurkertastjak-
ará náttborðið, borstofu-
borðið eða bara eldhús-
borðið á morgnanna.
Notalegir púðar
Antikhúsið Ljósakróna
frá árinu 1930 með
fimm skálum úralabasti,
en alabast er tálgaður
sápusteinn.
Debenhams Dökkir og
mynstraðir, rósóttur út-
saumur og nokkrir litríkir
og fallegir til að lífga
upp á skammdegið.
Antikhúsið
Gamall oliu-
lampi sem búið
er að breyta
í venjulegan
rafmagnslampa.
Lampinn er sið-
an 1880.
Antikhúsið Fland-
saumaðir púðar sem
einhver hefur setið
með í kjöltu sér upp
úrseinna stríði i Dan-
mörku.
Laura AshleyÆV/nfýra-
legur lampi á grænum
glerfæti með fallegum
útsaum i skerminum.
V.
Trjáumhirða fyrir haustið
Lúsafaraldur í grenitrjám
Nú fer senn að líða að hausti og
garðyrkjumenn og konur byrjaðir
að pakka saman hrifum, skóflum
og fleiru sem tilheyrir þessu nota-
lega tómstundagamni sem það er að
yrkja garðinn sinn. En hvað skyldi
vera hægt að gera til að hann komi
sem best undan vetri?
„Það fyrsta sem mér dettur í hug er
að slá ekki grasið of snöggt í síðasta
slætti sumarsins. Þetta verndar gras-
ið yfir veturinn og hlífir því við mosa-
myndun," segir Jónas Freyr Harðars-
son, garðyrkjufræðingur. „Svo er
mjög mikilvægt að kíkja á grenitrén
í garðinum og athuga hvort að eldri
nálar séu farnar að taka á sig rauðan
lit og hvort það sé komin lús. Ég hef
tekið eftir því undanfarið að Sitka
lúsin er komin af stað og heilu lund-
irnir farnir að eyðileggjast. Ég hef í
raun ekki séð annað eins. Þessi lús
barst hingað til lands í kringum 1960,
eða eitthvað fyrr. Kom með innfluttu
greni og jólatrjám frá Norðurlöndun-
um sem voru seld í Fossvogsstöðinni
í Fossvogi. Fyrir þremur til fjórum ár-
um síðan fór þessi lús mjög illa í trén.
Svo hélt hún sig til hlés undanfarin
ár en virðist aftur vera að leggja til
atlögu núna,“ segir Jónas alvarlegur i
bragði. „Ef vetur eru mildir þá er allt-
af mikil hætta á þvi að hún skjóti upp
kollinum í kjölfarið."
Hvað er hœgt að gera efmaðurfmn-
urþessa lús á trjánum ígarðinum?
„Þá er bara að úða með Permasect
eða fá sérfræðinga til að gera það.
Sérfræðingar eru vanalega betri
valkostur þar sem trén eru oft mjög
há og erfitt að ná yfir þau öll. Hvað
varðar fyrirbyggjandi aðgerðir þá er
yfirleitt ekkert annað hægt að gera en
að skoða trén vel og úða svo strax og
eitthvað kemur í ljós.“
Er eitthvað fleira gott sem er hcegt
að gera fyrir garðinn áður en frostið
skellurá?
„Já, þegar laufin falla er gott að búa
um plöntur og skýla þeim viðkvæm-
ari fyrir veðri og vindum. Til dæm-
is er gott að setja jarðveg og lauf að
stofninum til að varna því að það
drepist niður í rót. í raun á aldrei að
henda laufum því þau gagnast vel til
að hlífa jarðvegi.
Það er fínt að raka þeim bara í og
yfir beð þar sem þau svo brotna niður
yfir veturinn. Hvað varðar viðkvæm-
ari tré sem eru sígræn þá er gott að .
búa til svona „indíánatjald" í kring-
um þau til að hlífa þeim og eins getur
verið sniðugt að setja eitthvað styrkj-
andi upp við viðkvæma stilka svo að ’
þeir brotni ekki,“ segir Jónas Freyr að
lokum.
margret@bladid.net