blaðið - 23.08.2006, Qupperneq 30
38
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 blaöið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hefði Leoncie hlotið náð fyrir augum þínum? yy.
„Tja, hún er náttúrlega alveg stórkostleg. Hún er æðislegur laga-
smiður enda lagið Ast á pöbbnum ógleymanlegt. Manni leiðist
allavega ekkt að horfa a hana.
Elínlwrg Halldórsdóttir væntan-
legur dómari i X-Faktor á Islandi.
Leoncie reyndi að heilla dómara
upp úr skónum í breska þættinum
X-Factor. Dómurunum fannst hins
vegar ekki mikið til hennar koma.
Hlaupið í jakkafötum
með skjalatösku
Smáborgarinn
HAUSTIÐ ER
AÐ KOMA!
Sumarið er senn á enda og víst
er að margir eiga eftir að sakna
þess. Þrátt fyrir að sumarið í ár
standi varla undir nafni er það
jafnan uppáhaldstími margra
Islendinga. Smáborgarinn er ekki
í þeim hópi og því fagnar hann
haustinu ákaft. Haustið er einmitt
uppáhaldstími Smáborgarans og
hann á erfitt með að leyna tilhlökk-
uninni. Það er bara eitthvað við
haustið, eitthvað óútskýranlegt
en samt svo yndislegt að hjartað f
Smáborgaranum titrar við tilhugs-
unina. Helst myndi hann vilja að
það væri haust allt árið um kring.
Smáborgarinn veit ekki nákvæm-
lega hvað það er við haustið
sem er svona sérstakt. Kannski
er það rómantíkin í loftinu þegar
laufblöðin falla á götur bæjarins.
Kannski er það myrkrið sem um-
Kannski er það myrkrið
sem umvefur borgina
líkt og hlýtt faðmlag.
vefur borgina líkt og hlýtt faðmlag.
Kannski eru það litirnir í umhverf-
inu sem eru sjaldnar fallegri en á
haustin. Kannski eru það teppin,
púðarnir og kertin sem einkenna
mörg heimili á þessum árstíma.
Kannski er það bara haustið sjálft.
Reyndar breytist Smáborgarinn
líka í skapinu á haustin, hann
verður íhugull, angurvær og hugsi.
Svona er Smáborgarinn skrýtinn.
Samt veit Smáborgarinn ekki af
hverju haustið skiptir hann svona
miklu máli. Ekki kynntist hann
ástinni sinni um það leyti, missti
ástvini eða eignaðist börn. Smá-
borgarinn á ekki einu sinni afmæli
á þessum tíma en samt sem
áður vekur haustið upp þessar
kenndir. Mikið væri Smáborgarinn
til í aá eiga afmæli á haustin, þá
hefði hann kannski afsökun fyrir
þessari vitleysu í sér. Þess vegna
er Smáborgarinn harðákveðinn í
því að gifta sig að hausti til, það
kemur raunar ekkert annað til
greina enda rómantískasta árs-
tíðin. Smáborgarinn getur því ekki
annað en horft hamingjusamur
til framtíðarinnar, haustið er að
koma!
Þeir voru ekki allir í íþróttagall-
anum keppendurnir í hlaupunum
sem fóru fram á Menningarnótt.
Um svipað leyti og um það bil tíu
þúsund manns tóku þátt í Reykja-
víkurmaraþoninu í hinum ýmsu
vegalengdum kepptu nokkrir
einstaklingar í hlaupi skrifstofu-
mannsins.
Junior Chamber á íslandi stend-
ur að hlaupinu sem er að erlendri
fyrirmynd. Keppendur í hlaupinu
verða að hlaupa í skrifstofufatnaði,
jakkafötum eða drögtum, með
skjalatösku í annarri hendinni
og farsíma í hinni. Að auki verða
keppendur að klára veitingar sem
þeir fá á leiðinni og sýna tómt
matarílátið þegar í mark er komið.
Þátttakendur voru hvort tveggja fé-
lagar í JCI og starfsmenn nokkurra
erlendra sendiráða í Reykjavík.
,Þetta byrjaði á Menningarnótt
fyrir fimm árum,“ segir Bernharð
S. Bernharðsson, formaður Menn-
ingarnæturnefndar JC á íslandi.
,Þessi hugmynd kemur frá Eist-
landi en hefur farið víðar. Ég veit
að það hefur verið hlaupið svona í
Wall Street og skilst að það sé gert
reglulega.”
Bandaríski sendiráðsstarfsmað-
urinn Max Schexnyder sigraði í
hlaupi skrifstofumannsins þetta
árið. Hann hljóp kílómetra langa
vegalengdina á fjórum mínútum
og 23 sekúndum. Schexnyder lætur
sér ekki nægja að hlaupa í Hlaupi
skrifstofumannsins heldur hefur
hann líka hlaupið í Reykjavíkur-
maraþoninu.
Bestum árangri í kvennaflokki
náði Svava Lind Jóhannsdóttir sem
hljóp á fimm mínútum og 34 sek-
úndum. „Þess má geta að bróðir
hennar og móðir tóku einnig þátt
í hlaupinu og settu þannig pressu á
heimilsföðurinn á næsta ári,“ segir
Bernharð S. Bernharðsson, formað-
ur menningarnæturnefndar JCI.
Hann segir að til greina hafi komið
að veita þeim sérstök verðlaun fyr-
ir fjölskylduþátttöku en ekki hafi
þó orðið af því að þessu sinni.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 3 6 5 1
7 4 9 2 3
5 3 7 8
3 7 9 6
8 7 9 2
5 9 3 2
9 8 2
5 6 4
2 8 3 7 4 6 5 1 9
7 4 9 1 8 5 2 3 6
5 6 1 9 2 3 4 7 8
3 2 7 4 5 9 6 8 1
6 9 5 2 1 8 7 4 3
4 1 8 3 6 7 9 2 5
8 7 4 5 9 1 3 6 2
9 3 6 8 7 2 1 5 4
1 5 2 6 3 4 8 9 7
10-26_________________________________________€> Jim Unger/dlst. by United Media, 2001
Má bjóða þér leiðbeiningabæklinginn?
HEYRST HEFUR...
Hér í Blaðinu
var í fyrri viku
greint frá því að frú
Dorrit Moussaiev
hafi að eigin frum-
kvæði ekki þegið dagpeninga á
ferðum sínum með forsetanum
erlendis, en það mun engan veg-
inn einsdæmi um maka æðstu
embættismanna. Frú Halldóra
Eldjárn mun þannig ekki hafa
þegið neina dagpeninga og
hið sama má segja um Ástríði
Thorarensen, eiginkonu Dav-
íðs Oddssonar...
Hitt er svo annað mál að í
fréttinni var greint frá því
að frú Dorrit hefði fylgt bónda
sínum í 18 ferðum erlendis frá
árinu 2004 og fylgdi
listi frá skrifstofu
forsetans yfir þær.
Þar vekur nokkra
athygli hversu títt
herra Ólafur Ragnar Gríms-
son ferðast vestur um haf til
ótilgreindra viðræðna við
þarlenda mógúla í viðskiptum
og stjórnmálum. Nú er ekki til
þess vitað að forsetaskrifstofan
reki eigin utanríkisstefnu, en í
stjórnarráðinu kannast menn
ekki við að forseti sé að reka
erindi fyrir ríkið á slíkum
fundum vestra. Gárungarnir
segja hins vegar málið einfalt;
forsetinn sé að undirbúa sína
eigin mjúku lendingu þegar
hann yfirgefur Bessastaði...
Ovænt og ömurlegt hálfsárs-
uppgjör Dagsbrúnar er
þegar farið að draga dilk á eftir
sér, en tapið á fyrri
helmingi ársins
reyndist nema
einum og hálfum
milljarðikróna,
án nokkurs fyrirvara um að
afkomuspár hefðu verið fjarri
öllum sanni. I viðskiptalífinu
er um það rætt að Gunnar
Smári Egilsson, forstjóri
Dagsbrúnar, sé fallinn í ónáð
hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
sem mun þegar vera farinn að
svipast um eftir arftaka hans...
Ekki dugir það eitt þó
til. Rætt er um það að
tímabært sé að slíta í sundur
tengslin milli fjarskiptahluta
fyrirtækisins og fjölmiðla, svo
Og Vodafone fái að
dafna án dragbít-
anna í Skaftahlíð.
Þar mun Nýja
fréttastofan (NFS)
vega þyngst, en nú þegar mun
vera farið að rifa seglin veru-
lega þar á bænum. Iviðskipta-
lífinu horfa menn hins vegar
með mestum áhuga til þess að
Dagsbrún er farin að leysa upp
Kögun með miklu tapi, en Jón
Ásgeir Jóhannesson sjálfur er
sagður stýra brunaútsölunni...
Sú saga gengur fjöllum hærra
að skólayfirvöld á Akureyri
hafi sagt upp Snorra Óskars-
syni grunnskólakennara, sem
oft er kenndur við Betel, vegna
ummæla hans um samkyn-
hneigð og nazisma í viðtali
við Kastljós Ríkissjónvarpsins.
Mörgum gramdist ummælin,
en það er rangt að Snorri hafi
verið leystur frá störfum í
Brekkuskóla nyrðra...
andres.magnusson@bladid.net