blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 19
blaðið FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 i 19 Hótel Akureyri H ótel Akureyri er stór- glæsilegt fyrsta flokks hótel í hjarta Akur- eyrar. Þaðan er stutt í alla þjónustu sem og afþreyingu. Hótelið býður upp á vinalega og góða þjónustu og rólegt and- rúmsloft. Herbergin eru fallega innréttuð og mjög þægileg og hefur ekkert verið til sparað við hönnun þeirra. Mörg herbergj- anna státa af glæsilegu útsýni yfir Akureyrarpoll og eru þau afar hlý- leg. Herbergin eru öll með baðher- bergi, kæliskáp, síma, fjölrása sjón- varpi og öryggishólfi. A neðri hæðinni er rúmgóður morgun- verðarsalur ogsetu- stofa þar sem Glæsilegt morgunverðarhlað- borð er innifalið þegar borgað er fyrir gistingu. Þar finna allir eitthvað við sitt við hæfi, allt frá morgunkorni upp í nýbökuð rúnstykki og vínarbrauð og fer enginn svangur frá borði. Skammt frá hótelinu eru fjöl margir veitingastaðir, kaffihús og ölkrár. Einnig er hægt að kaupa áfenga sem og óáfenga drykki í gestamóttökunni. Margir af áhugaverðustu stöðum bæjarins eru í næsta nágrenni við hótelið og ýmis söfn innan seilingar. Hótel Akureyri er • '* staðsett í kyrrlátu og fallegu umhverfi með útsýni yfir Akureyrapoli, stein- snar frá miðbænum, Listagilinu, söfnum bæjarins og Lysti- garðinum. Leikhús bæjarins er nán- ast í næsta húsi, það er löngu orðið frægt um allt land og þó víðar væri leitað, og hafa sýn- ingar þess slegið rækilega í gegn. Nánari upplýsingar á www.hotelakureyri.is Hótel Selfoss rré' --B'" Hótel Selfoss var opnað þann í. júní 2002 og er því eitt nýjasta 4 stjörnu hótelið á Islandi. A hótelinu eru 100 herbergi sem eru öll með gervihnattasjón- varpi, síma, háhraða tölvutengingu, smábar, hárþurrku og öryggishólfi. Eins er hægt er að fá sent upp á her- bergi straujárn og straubretti. Hótelið er staðsett í hjarta Selfoss á bökkum ölfusár í fallegu umhverfi. Nálægð þess við marga helstu staði Suðurlands eins og Þingvelli, Geysi, Gullfoss, Kerið og Heklugerir það að ákjósanlegum gististað fyrir ferðalanga. Herbergin eru afar glæsileg. í her- bergjunum eru eitt eða tvö rúm, sjón- varp, sími, nettenging, sturta, bað, smábar og hárþurrka. Hótel Selfoss býður upp á frábæra aðstöðu til fundarhalda, og með tilkomu Selfossbíós bættust tveir fundar- og ráðstefnusalir við. Annar er 125 manna og hinn 55 manna. Á efri hæð hótelsins eru þrir fund- arsalir misjafnlega stórir en allir mjög vel útbúnir. Allar stýringar í sambandi við tæki, hljóð og ljós eru frá snertiskjám. f fundarherbergj- unum er góður tæknibúnaður eins og skjávarpi í lofti, þráðlaust inter- net, DVD spilari, myndvarpar, þráð- lausir míkrófónar, myndbandstæki og flettitafla. Hótelið aðstoðar við að útvega annan búnað sé þess krafist. Á Hótel Selfossi er að finna nýjan veitingastað. Þaðan er glæsilegt útsýni sem og mjög girnilegur matseðill bæði a-la-carte og fyrir hópa. Stórkostlegt útsýni og glæsi- legur arkitektúr er ekki allt sem veitingastaðurinn RiverSide hefur upp á að bjóða. Þar starfa frábærir matreiðslumenn og þjónar sem gera upplifunina ógleymanlega. Staðurinn hentar vel fyrir árshátíð- ina og fundarhöldin en eins er hann tilvalinn fyrir pör sem vilja skella sér í stutta ferð út fyrir bæinn og njóta rómantískra stunda í glæsilegu umhverfi. Nánari upplýsingará www.hotelselfoss.is HEREFORD S T E I K H Ú S Laugavegur 5 3l> • 101 Reykjavik 5 11 3350 • www.hcrcforcl.is Fimmtudaga til sunnudaga _____ Glæsilegur 3ja rétta matseðill á aðeins 5.200,-x^ apaiuaiw' 51 3350

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.