blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 6
6 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 blaöið Þjófnaður: Uppgjöri stolið af pítsusendli Stolið var uppgjöri sem pítsu- sendill hjá Dominos hafði undir höndum í gær upp úr eitt. Samkvæmt lögreglunni var taska sem sendillinn hafði undir höndum hrifsuð af honum og komst þjófurinn undan. Atburð- inn átti sér stað á Dominos í Kringlunni. Engar hótanir voru viðhafðar né var ofbeldi beitt. Þjófurinn er ófundinn og málið í rannsókn. íslenskir stjórnendur: Sinna vinnu r * ru i frnnu Fjórðungur íslenskra stjórn- enda getur aldrei slitið sig frá vinnunni þótt hann sé í fríi. Þetta eru niðurstöður könn- unar sem VR gerði meðal um 1.300 stjórnenda á íslenskum vinnumarkaði. „Fjórðungur svarenda í könn- uninni segist alltaf sinna vinnu- tengdum verkefnum þegar hann er í fríi, svo sem að svara sím- tölum og tölvupósti, og rúmlega þriðjungur til viðbótar segist oft sinna vinnunni í fríinu. Tveir íslendingar 1 haldi í Brasilíu fyrir fíkniefnasmygl: íslendingur var tekinn með tvö kíló af kókaíni ■ Búinn að vera í brasilísku fangelsi í tvo mánuði ■ Annar sloppinn úr gæsluvarðhaldi Hlynur Sigurðarson Tveir Islendingar hafa verið teknir iBrasilíu við smygl á fíkniefnum, annar við með kókaín og hinn með hass. Eftir Val Grettisson valur@bladid.net íslenskur maður var handtekinn í Brasilíu fyrir að vera með tvö kíló af kókaíni á sér. Maðurinn sem er 23 ára gamall var handtekinn 9. júní síðastliðinn og situr í brasilísku fangelsi. Samkvæmt lögreglunni var maðurinn handtekinn á vegi á umferðarmiðstöð í Eunápolis í Ba- hia-fylki sem er í norðvesturhluta Brasilíu. Hann var á leiðinni til Salvador sem er- höfuðborg Bahia- fylkis. Lögreglan stöðvaði hann við venjubundið eftirlit og fundust þá fíkniefnin. Óvenju hreint efni Maðurinn sem heitir Hlynur Sig- urðarson og er 23 ára gamall sagði í yfirheyrslum að hann hefði fengið fíkniefnin frá ókunnugum manni. Hann átti að afhenda öðrum manni í Salvador kókaínið og sagð- ist hann ekki þekkja þann mann heldur. Lögreglan segist ekki trúa sögu hans vegna þess að kókaínið sem hann hafði undir höndum var óvenjulega hreint og því verulega verðmætt. Því fannst þeim ólík- legt að ókunnugur maður hefði treyst honum fyrir svo miklum fíkniefnum. Hlynur hefur verið ákærður fyrir fíkniefnasmygl og situr í brasilísku fangelsi. Ekki liggur fyrir hvort búið er að dæma hann en utanrík- isráðuneyti Islands segist hafa vitn- eskju um málið. Kókaínið sem Hlynur var tekinn með Tveir Islendingur eru í fangelsum í Brasilíu. Kominn úr gæsluvarðhaldi Á sunnudaginn var 29 ára gamall maður handtekinn á alþjóðlega flug- vellinum Guarlhos fyrir að reyna að smygla 12 kílóum af hassi í hátal- araboxi. Maðurinn hefur verið nafn- greindur á brasilískum vefmiðlum og heitir Ingólfur R. Sigurz. f gær var hann fluttur úr gæsluvarðhaldi í fangelsið „Centro de Detenc^áo Pro- visória 11“ sem er i bænum Guarlhos í Sao Paulo. Þar mun hann verða í 15 daga þar til rannsókn lýkur og svo mun hann verða dæmdur af dóm- stólum í Brasilíu. Ekki er vitað um aðbúnað Ingólfs en hann mun hafa fengið verjanda á vegum ríkisins. Ingólfs getur beðið fangelsisvist frá 4 til 25 ára. Yfirleitt eru viðurlög við slíkum brotum 3-15 ár en vegna þess að Ingólfur reyndi að smygla fíkniefnum inn í landið þá þyngist refsiramminn. Lögmenn - Lögkvinnur Mig vantar aðstoð við fyrirhuguð málaferli mín gegn Framsóknarflokknum og Jóni Sigurðssyni, til ógildingar á formanns- kosningunni fyrir dómstólum. Ég bauð mig fram til formanns með lög- mætum hætti, og er í Framsóknarflokknum. En framboð mitt var sett til hliðar, og þrætt fyrir að ég væri í framboði. Þeir sem vilja aðstoða mig, hafið samband í síma 551-7767. Lúðvík Gizurarson hrl. mmmmaMmammmmmmmmmmmmammmmmmmtmmmummmmummmmmmmmm Samskipti: Baulað með enskum hreimi Breskir málfræðingar telja að miklar Iíkur séu á því að kýr bauli með ólíkum hreimi eftir því í hvaða landshluta þær hafast við. Þeir ákváðu að rannsaka málið sökum þess að kúabændur í Somerset á Eng- landi hafa haldið því fram að kýrnar þeirra hafi sérstakan hreim. Þrátt fyrir að venjulegir borgarar greini ekki muninn þá hefur kúa- bændur á Bretlandseyjum lengi grunað að það sé ekki sama baulið í kúnum þeirra og að sérstakur hreimur einkenni einstakar hjarðir. John Wells, sem er prófessor í hljóð- fræði við Lundúnaháskóla, kynnti sér málið og rannsakaði kýrnar í Somerset. Hann staðfestir staðhæf- ingar bændanna og segir kýrnar hafa öðruvísi framburð en aðrar kýr á Bretlandseyjum. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Wells að þetta sé ekki óþekkt fyrir- brigði í dýraríkinu og segir hann til að mynda vel þekkt að blæbrigða- munur sé á tísti staðbundinna fugla. Lögreglumenn: Reglum fylgt viö handtökur Landssamband löreglumanna segir að umfjöllun um störf lögreglumanna við framkvæmd skyldustarfa, meðal annars við Kárahnjúka, hafi verið einsleit og til þess fallin að draga úr trú- verðugleika fagstéttarinnar. „Við framkvæmd lögreglu- starfa ber stundum við að valdbeiting verði nauðsynleg. Er þess þá jafnan gætt að vandlega sé farið að reglum og í samræmi við þær valdheimildir.” Þjóðskrá: Má ekki fá gesti til sín „Því miður þá færð þú ekki leyfi til að koma í heimsókn til okkar,” segir Erla Kristín Halls- dóttir, starfsmaður Þjóðskrár, eftir að blaðamaður Blaðsins óskaði eftir því að fá að kíkja í heimsókn og forvitnast nánar um ófullnægjandi umsóknir atvinnurekenda um kennitölur útlendinga. „Erindið var borið undir ráðuneytisstjóra dómsmálaráðu- neytisins og hann veitti ekki heimild fyrir þessu,” segir Erla en bætti við: „Við erum hins vegar ánægð með að fjallað sé um þann fjölda umsókna sem ekki er í lagi og álagið hjá okkur er mikið.” Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust ekki skýringar hjá Þorsteini Geirssyni, ráðuneyt- isstjóra, áður en Blaðið fór í prentun.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.