blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 30
30 ■ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006 blaðið íþróttir ithrottir@bladid.net Atletico á eftir Reyes Spænskir fjölmiölar greindu frá því i gær að Atletico Madrid væri komið i kapp- hlaupið um að fá Jose Antonio Reyes. Spánverjinn ungi hefur verið orðaður við Real Madrid i langan tíma og hefur hann lýst því yfir að hann sé með heimþrá og vilji leika með liði í heimalandinu. Atletico Madrid er sagt tilbúið að bjðða betur en Madridingar, sem eru sagðir hafa gert átta milljóna punda tilboð i Reyes. — Toppliðið og spútnikliðið Sig- urvin Ólafsson íharöri baráttu við Keflvíkinga á dögunum My„rf/Srem> Logi Ólafsson spáir í íslandsmótið: Betri fótbolti ■ Hatrömm barátta ■ Brýnt að fjölga liðum Eftir Björn Braga Arnarsson bjorn@bladid.net Logi Ólafsson, fyrrum landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, á von á geysi- hörðum fallslag fjögurra liða en er ekki í vafa um að FH-ingar verði íslandsmeistarar þriðja árið í röð. „Ég tel fremur litlar líkur á því að það verði einhver sem ógni FH á toppnum og ég held meira að segja að þeir muni klára þetta mjög bráð- lega,“ segir Logi en bætir við að styrkleikamunurinn á Hafnarfjarð- arliðinu og andstæðingum þess hafi þó minnkað. „Tölurnar tala auðvitað sínu máli en það má þó segja að leik- irnir hafi verið jafnari í ár en í fyrra, mér fannst þeir hafa meiri yfirburði þá. Hvort það er vegna þess að þeir séu slakari eða hin liðin betri skal ósagt látið," segir Logi. FH-ingar hafa átt erfiðara upp- dráttar í framlínunni í ár en síðustu tvö tímabil en Logi er á því að það séu varnarmenn íslandsmeistaranna sem hafi verið stoð og stytta liðsins. ,Mér finnst varnarleikurinn hjá FH- ingum sterkari núna en áður og það er kannski helst hann sem hefur fært þeim þessa stöðu á töflunni því þeir skora minna í ár en í fyrra. Liðið er mjög þétt og ég held að þeir verði í engum vandræðum með að landa þessum titli.“ Af liðunum sem koma næst á eftir segir Logi ómögulegt að segja til um hver þeirra séu líklegust til að hreppa Evrópusætin. „Það geta nú flestöll önnur lið í deildinni keppt um næstu sæti, nema þá kannski Akurnesingar og Vestmannaeyingar. Valur og Kefla- vík eru kannski líklegust til þess og KR þarf heldur ekki að vinna neitt marga leiki til þess að koma sér í góða stöðu líka,“ segir Logi sem er á því að Suðurnesjaliðið hafi verið spútniklið sumarsins. „Keflvíkingar hafa spilað ágætis fótbolta og eru með vel mannað lið. Það má kannski segja að þeir hafi komið mest á óvart því að menn bjuggust frekar við því fyrir mót að Valur, ÍA og KR yrðu þarna fyrir ofan.“ Vantar Eyjahjartað? Logi er á því að baráttan verði öllu meiri í suðurhluta stigatöfl- unnar. Hann segir að þrátt fyrir að ÍBV sé í erfiðri stöðu á botninum sé of snemmt að útiloka að liðið geti bjargað sér fyrir horn. „Eyjamenn unnu góðan heimasigur á Grind- víkingum á dögunum og Heimir Hallgrímsson, þjálfari þeirra, sagði að ef það væri eitthvert Eyjahjarta í þessum mönnum þá gætu þeir komið til baka á endasprettinum og bjargað 12018 •r 15. I UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA fim. 24. ágúst kl. 18:00 KR - IBV fim. 24. ágúst kl. 18:00 ÍA - Keflavik fim. 24. ágúst kl. 18:00 Grindavik - Víkingur sun. 27. ágúst kl. 17:00 FH - Breiðablik sun. 27. ágúst kl. 18:00 Fylkir - Valur 13. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA mið. 30. ágúst kl. 18:30 Keflavlk - Valur mið. 30. ágúst kl. 18:30 KR - Þór/KA mið. 30. ágúst kl. 18:30 Breiðablik - Fylkir mið. 30. ágúst kl. 18:30 FH - Stjarnan Tryggöu þér miða á betra veröi á landsbankadeildin.is eða ksi.is 'V- - Landsbankinn Banki llra landsmanna í 120 ár sér. En ég hjó einmitt eftir þessari setningu hjá Heimi því að það eru nú svo sem ekki margir Eyjamenn eftir í liðinu og kannski ekki hægt að búast við því að menn sem koma frá svört- ustu Afríku fæðist með Eyjahjarta. En kannski hafa þeir smitast eitthvað af heimamönnum. Ég vona allavega að iBV komi og hristi aðeins upp í þessari botnbaráttu núna í lokin," segir Logi. Hann kveðst hafa síður átt von á því að ÍA yrði í botnbaráttunni en segir að þó séu ákveðin atriði sem vanti upp á hjá liðinu. „Þetta er óvænt staða sem Skagamenn eru í því að þeir eru með gott fótboltalið og góða knatt- spyrnumenn innan sinna vébanda. En Akkilesarhæll þeirra er kannski samsetningin á hópnum. Það vantar sterka pósta í einhverjar stöður og þá skortir stöðugleika. Fótboltalið þarf að vera skipað mismunandi týpum en þeir eru mjög líkir. Skagamenn hafa löngum verið þekktir fyrir að hafa stóra og stæðilega menn í sínum röðum en þeim er ekki til að dreifa núna. Þetta er frekar lágvaxið lið og þeir eru ekki sterkir í loftinu eins og þeir hafa verið oft áður. Það er þó alls ekki loku fyrir það skotið að þeir geti bjargað sér á síðustu metrunum. Þetta getur orðið virkilega hatrömm barátta milli þessara fjögurra neðstu liða og eins eru Fylkir og Víkingur ekki alveg sloppnir úr hættunni." Greinilegar framfarir Menn hafa löngum deilt um gæði íslenskrar knattspyrnu og borið hana saman við það sem áður var. Logi segist ekki vera í nokkrum vafa um að knattspyrnan hér á landi hafi tekið stórstigum framförum. „Máli mínu til stuðnings get ég nefnt eitt dæmi. Ég fór með fyrrum sam- starfsmanni mínum, Arne Erlandsen sem þjálfaði með mér Lilleström á sínum tíma, að horfa á leik FH og Fylkis á dögunum. Arne var hér mikið að skoða leikmenn á árunum 1999-2001 en hefur ekki komið síðan og það er kannski frekar að marka álit slíkra manna en okkar sem horfum á alla leiki. Hann sagð- istmerkjagreinilega að mildar fram- farir hefðu átt sér stað og ég er alveg sammála því,“ segir Logi „Fótboltinn er einfaldlega orðinn allt öðruvísi. Hér áður fyrr vorum við með menn í vörninni sem spörk- uðu boltanum bara í þá átt sem þeir sneru og voru stundum svo heppnir að snúa í átt frá eigin marki. íslenskir knattspyrnumenn eru orðnir miklu betur spilandi í dag og það er allt önnur ásýnd á íslenskum fótbolta. Ég þakka það fyrst og fremst höllunum og betri aðstæðum til æfinga, en ekki síður því að menn eru farnir að þjálfa af miklu meiri þekkingu en áður.“ Brýnt að fjölga í 12 lið Islenskir knattspyrnumenn fara í síauknum mæli utan í atvinnu- mennskuna og vilja margir meina að gæði íslandsmótsins hafi minnkað sökum þess. Logi er ekki á því máli. „Auðvitað væri Islandsmótið ennþá betra ef allir þessir menn sem eru erlendis væru að spila heima. En þetta hefur sína kosti líka. Við fáum betri fótboltamenn til þess að skipa ís- lenska landsliðið, enda segir það sig sjálft að menn sem æfa við bestu að- stæður og hafa þetta að lífsviðurværi verða miklu betri en ef þeir væru hérna heima. Neikvæða hliðin er kannski sú að það eru komnir of margir út- lendingar í mörg liðanna. Starfsum- hverfið í fótboltanum í Evrópu í dag er reyndar þannig að það er mikið af útlendingum alls staðar og það er ekkert öðruvísi hér. En hér er hins vegar oft á tíðum verið að flytja inn menn sem eru ekki góðir og lítið skárri en ungu mennirnir sem eru á varamannabekknum. Maður vill þá kannski frekar sjá þá fara inn á völl- inn,“ segir Logi. “Ég hef lengi verið talsmaður þess að Qölga liðum í deildinni. Þetta langa undirbúningstímabil er ekki mannbætandi - keppn- istímabilið er styttra en und- irbúningstímabilið og það er svolítil þversögn í því. Ég er í miklu sambandi við útlönd og þaðan fæ ég ávallt þá gagnrýni að það sé ekki hægt að búa til góða og skemmtilega deild semerbara skipuð 10 liðum. Að mínu mati á að fjölga í 12 lið og það með hraði.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.