blaðið - 21.10.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006
-4
LHUGHRDHLSHÖLL 21. 22. OHTÓBER 2006
-f-P.VvÚy\j ÍA ÍSLANDSMÓT
Merkiö tryggir
6 af hverjum 7 konum vita hvaö virkar
Ég er'sJ°T
Fáanlegt hiá
öiium betri apótekum landsins
TAKTU ÞESSA
HELGI FRÁ FYRIR ÞIG!
I WWW.ISLANDSMOT.IS
3 S: 534 7010 ■ INFO@ISLANDSMOT.IS
Það hefur aldrei verið eins
auðvelt að fjarlægja bletti á
lófum eftir brúnkumeðferð.
Orange Palms Preventor
fjarlægir allan lit án þess að
erta húðina og skilur hana
eftir hreina, slétta og
silkimjúka.
Notaðu það með uppáhalds
brúnkukreminu þínu til að
fá fullkomna og flekklausa
sólbrúna húð.
.“RANGE PALMS'
preventof
Útsölustaðir Hagkaup og Debcnhams
ÞORBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR. FYRIRLESARIÁ KONAN.
mm
Appelsínugulir lófar úr sögunni
FLEKKLAU S AR HENDUR
ÞRÁTT FYRIR BRÚNKUMEÐFERÐ
tíska
tiska@bladid.net
Kynþokki
Stelpur! Ekki spara flottu nærfötin fyrir
sérstök tækifæri. Klæðist þeim hvort
sem það er miðvikudagur eða laugardag-
ur, hvort sem þið eruð einhleypar eða i
sambandi. Það er alltaf gaman að finna
kynþokkann hríslast um sig.
blaöið
Eva Dögg dregur kostinafram
Klæðaburður er sjónhverfing
Mikilvægasta flíkin
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir: „Rétt stærð af
brjóstahaldara getur grennt þig um fimm kiló
og hækkað þig um 5 sentímetra. Það er því
lykilatriði að vera í réttum brjóstahaldara og
að mínu mati er brjóstahaldarinn mikilvægasta
flíkin."
mynd/Frikki
Fæstar konur eru fullkom-
lega ánægðar með líkama
sinn, þeim finnst þær hafa
of þykk læri, of mörg auka-
kíló, stuttar lappir og svo
mætti lengi telja. Með réttum klæða-
burði og sniðum er auðveldlega hægt
að klæða slíka vankanta af sér þann-
ig að hver kona líti nær fullkomlega
út. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, stílisti
og markaðsfulltrúi, hefur ráðlagt ein-
staklingum og hópum um ímynd og
fataval og hún segir að klæðaburður
sé hálfgerð sjónhverfing. „Með réttu
fötunum geturðu grennt þig, hækkað
þig, minnkað rassinn og svo framveg-
is. Það eiga ekki allir að líta út eins
og Cindy Crawford en þetta snýst um
að draga fram það besta hjá hverjum
og einum. Tíska líðandi stundar á að
vera til viðmiðunar en maður á ekki
að fylgja henni í einu og öllu.“
Of stórt eða of lítið fitar konur
Eva Dögg segir að það fyrsta sem
hver kona þarf að gera er að meta
sjálfa sig og líkama sinn á raunsæjan
hátt. „Það er engin okkar með um-
málin 90-60-90, það er ekki til. Hver
og ein okkar ætti að skoða líkama
sinn, hvernig við erum í laginu og
íhuga hvernig við getum lagt áherslu
á kostina og falið gallana. Fataskápur-
inn skiptir mjög miklu máli og kon-
ur ættu að fara í gegnum fataskápinn
sinn þvi í honum er margt sem má
nýta. Auk þess geta rétt innkaup
breytt lífi okkar,“ segir Eva Dögg og
bætir við að gott sé að taka mjög góða
vinkonu sína með í bæinn að versla.
„Það er líka gott að hafa vinkonuna
við hendina þegar farið er í gegnum
fataskápinn. Aðalatriðið er að kaupa
flík sem passar fullkomlega því of
stór flík eða of lítil flík fitar okkar og
það vill enginn."
Brjóstahaldarinn er mikil-
vægasta fllkin
Rannsóknir sýna að konur líta lík-
ama sinn óraunsæjum augum og Eva
Dögg tekur undir það. „Maður vakn-
ar á morgnana og segir sjálfum sér
að maður sé ljótur. Þetta er eitthvað
sem ég myndi aldrei sætta mig við að
vinkona mín segði við mig en samt
segi ég það við sjálfan mig. Við ætt-
um að skammast okkar fyrir að tala
svona við sjálfar okkur og við þurf-
um að breyta þessum hugsunarhætti.
Svo eru margar konur sem ætla að
taka sig í gegn þegar þær eru orðn-
ar ríkar, búnar að fara í lýtaraðgerð,
fara í megrun eða börnin eru farin
af heiman. Þetta er rangur hugsanar-
háttur.“ Eva Dögg segir að auk þess
sé stór hópur kvenna sem er í rangri
stærð af brjóstahaldara. „Rétt stærð
af brjóstahaldara getur grennt þig
um fimm kíló og hækkað þig um 5
sentímetra. Það er því lykilatriði að
vera í réttum brjóstahaldara og að
mínu mati er brjóstahaldarinn mik-
ilvægasta flíkin “
Eva Dögg féllst á aö deila með
lesendum nokkrum góðum ráðum
en flestar fyrirspurnir sem hún fær
frá konum snúast um stór brjóst
og stóra rassa.
eva@tiska.is
STÓR BRJÓST:
Rúllukragabolir geta gert það að
verkum að brjóstin virðast mun
stærri en þau eru.
Mjóir hlýrar á kjólum og hlírabolum
gera það aö verkum að brjóstin og
axlirnar virka enn stærri.
Víðir bolir með háu hálsmáli
gera það að verkum að þrjóstin
virðast endalaus og einstaklingur-
inn virðist því þéttari.
Passa þarf að jakkar séu ekki
hnepptir upp í háls og séu of
stuttir því þá virðist kona enn
brjóstameiri og kassaleg að ofan.
V-hálsmál hentar konum með stór
brjóst vel því slíkt hálsmál skiptir
brjóstunum þannig að þau virka
ekki eins og ein risaheild.
STÓRRASS
Buxur sem eru háar upp í mittið
og þröngar henta ekki fyrir konur
sem eru með stóran rass.
Fellingar framan á buxum fletjast
út ef afturendinn er stór.
Stutta jakka þarf að varast, sérstak-
lega þá sem ná niður á miðjan
rass.
A-línu pils og kjólar sem er snið sem
lítur út eins og A (útsniðið) hentar
ekki konum með stóra rassa.
Tískuvika í Los Angeles
Undanfarna viku hefur verið margt um manninn í Los Angeles enda lauk tískuvikunni þar nýverið.
Allir helstu hönnuðir í heiminum voru á staðnum og sýndu vor og sumarlínuna fyrir árið 2007. Eins
og venjulega þustu líka helstu stjörnur kvikmyndaheimsins til Englaborgarinnar til að skoða nýjustu
tískuna, syna sig og sjá aðra. Á pöllunum mátti sjá að litrík, falleg og kvenleg tíska verður í hávegum
höfð næsta sumar, það verður mikið um kjóla, hefðbundin form og skemmtilegar nýjungar.
Klassískt
Hrein og tær klassík einkenndi
sumarlínu Gianni Versace með
fallegum formum, klassískum
sniðum og jarðbundnum litum.
Vivienna Westwood stend-
ur alltaf fyrir sínu og hér
má sjá eilítiö rokkaðan og
fallegan stfl.