blaðið - 21.10.2006, Blaðsíða 36

blaðið - 21.10.2006, Blaðsíða 36
• 36 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006 blaöiö „Það er mest gefandi þegar boðskapurinn sem við ernm að setja út í þjóðfélagið er góður við höfum gamaii að því að taka að okkur verkefni sem leiða gott af scr“ x nouywoi Islenskar systur gera auglýsingyfmeð Bill Clinton Uti er fallegur haust- morgun og Laugaveg- urinn að vakna til lífsins. Birna Pálína Einarsdóttir segist vera aðeins fyrr á ferðinni en hún er vön þar sem hún sé enn þá á öðrum tíma, enda hefur hún ferðast yfir nokkur tímabelti frá heimili sínu í Los Angeles. Hún er hér á landi í stuttu stoppi að sinna ýmsu vegna heimildarmyndarinnar, Suður- landið, sem þær systur eru að vinna að. „Ég var á frumsýningu á Mýrinni í gærkvöldi og því aðeins þreyttari en venjulega." Hún hrósar myndinni sem hún segir að hafi verið vel gerð í alla staði, spennandi og haldi áhorf- andanum allan tímann. Lóa Auðunsdóttir hitti Birnu yfir kaffibolla í morgunsárið til að for- vitnast um störf fyrirtækis hennar og systra hennar Elf Films í glamúr- borginni Hollywood. Með Clinton í ferilskránni Elf films er ungt kvikmynda- gerðarfyrirtæki sem starfrækt er í kvikmyndaborginni Los Angeles. Nýjasta verkefni fyrirtækisins er gerð auglýsingar sem skartar Bill Clinton í aðalhlutverki. Clinton hefur ekki gert margar auglýsingar á ferli sínum og þykir það mjög sér- stakt að hann taki slíkt verkefni að sér. Auglýsingin er fyrir málstað sem gengur undir slagorðinu yes on 87 og snýst um ákvæði sem kosið verður um í ríkisstjóra kosn- ingum Kaliforníufylkis í nóvember. Ákvæðið snýr að því að skattur verði lagður á innflutta olíu í ríkinu og á þar af leiðandi að draga úr notkun á olíu sem orkugjafa og þannig draga úr mengun í fylkinu. Elf films var stofnað fyrir þremur árum og er rekið afþremur íslenskum systrum, Birnu Pálínu, Guðrúnu Ág- ústu og Helenu Einarsdætrum. Fyrir- tækið hefur unnið að ýmsum ólíkum og spennandi verkefnum á sviði aug- lýsinga og kvikmyndagerðar sem og þær eru að vinna að íslenskri heim- ildarmynd um Suðurlandið, sjóslys sem átti sér stað á jólanótt 1986. ' Systrasamstarf Birna er glæsileg og íslensk í út- liti með sítt ljóst hár og hún gæti vel leikið hlutverk álfkonu í bíómynd en kannski tengir blaðamaður hana ósjálfrátt við álfa þar sem hún rekur fyrirtæki með því nafni. En hvernig kom nafnið til? „Við trúum á álfa og álfar eiga sér sterkar rætur í menningunni. Okkur fannst það vel við hæfi þar sem helstu einkenni álfa eru að þeir vilja leika sér, gera spennandi og skemmtilega hluti og fara sínar eigin leiðir.“ Skrif- stofur fyrirtækisins eru í Westwood í Los Angeles sem er alveg við Santa Monicu. „Þetta er lítið og vel rekið fyrirtæki. Við erum ekki með nein látalæti og látum verkin tala sínu máli,“ segir Birna. Birna rekur fyrirtækið með systrum sínum. Fyrirtækið stofn- uðu þær fyrir þremur árum eftir að Birna lauk námi frá California State University en þaðan lauk hún MBA gráðu. Birna sér um almennan rekstur fyrirtækisins og einnig er hún framleiðandi á verkefnunum. Helena er einnig í hlutverki framleið- anda og Guðrún Ágústa er leikstjóri og klippari. Að jafnaði starfa auk þeirra systra þrír aðrir klipparar og aðstoðarmenn hjá Elf films, en þegar viðameiri verkefni liggja fyrir ráða þær til sin fleira fólk tímabundið. „Við erum mjög samrýndar systur " og við vinnum vel saman. öll svona vinna krefst mikillar samvinnu og það er gott að hafa þá sem maður treystir best næst sér eins og í okkar tilviki," segir Birna um samvinnu þeirra systra. Mörg verkefni í gangi „Það hefur gengið vonum framar að byggja fyrirtækið upp en það tekur alltaf tíma að byggja upp fyrir- tæki í þessum bransa. Okkur hefur reynst auðvelt að fá verkefni. Guðrún var búin að skapa sér nafn innan aug- lýsingabransans þarna úti og er mjög hæfileikaríkur leikstjóri. Hingað til höfum við aðallega verið að gera auglýsingar, bæði leikstýrt og séð um eftirvinnsluna. En við erum líka í þróunarvinnu fyrir kvikmyndir og erum í samstarfi við stóran framleið- enda. Það eru spennandi verkefni í bígerð.“ Birna vill ekki tjá sig nánar um þau verkefni þar sem hún segir að ekkert sé öruggt í þessum bransa fyrr en byrjað er að taka og þó mikil vinna hafi verið lögð í undirbúning þá sé aldrei neitt öruggt. „ Auglýsing fyrir góðan málstað Talið berst að nýjasta verkefni þeirra systra; auglýsingunni með Bill Clinton í aðalhlutverki. Auglýsingin var tekin þegar Clinton hélt ræðu um Prop87 í UCLA og er unnin uppúr þeirri ræðu. Námsmenn gistu á gras- flötinni fyrir utan fyrirlestrasalinn þar sem Clinton flutti ræðunni til að tryggja sér sæti Auglýsingin er ein af mörgum í herferð sem fyrirtækið hefur unnið að. Auglýsingin með Clinton var tekin til sýninga í byrjun vikunnar og hefur fengið milda spilun á sjón- varpsstöðvum y tra og góðar viðtökur. Birna segir að það sé mjög ánægju- legt að taka þátt í gerð þessarar her- ferðar þar sem hún sé fyrir góðan málstað. Samtökin sem standa fyrir henni kallast Prop87 og beita sér fyrir að ákvæði um skattlagningu á innflutta olíu verði innleidd í Kali- forníu. Samtökin vonast til að með skattlagningunni verði olíunni skipt út fyrir umhverfisvænni orkugjafa og draga þannig úr mengun í ríkinu. „Þessi leið hefur reynst vel í Brasilíu til dæmis og ef þeir geta gert þetta þá á Kalifornía að geta það líka. Fólk vill hreinna loft og nýja orkugjafa,“ segir Birna en málstaðurinn er þeim systrum hjartans mál „Við erum að vinna með áhrifa- miklu fólki og aðalbakhjarl auglýs- ingaherferðinnar er auðkýfingur- inn Steven Bing sem fólk kannast kannski við úr slúðurfréttum en hann er barnsfaðir leikkonunnar Elisabeth Hurley. Við unnum náið með Steven og hans fólki sem var mjög gefandi þar sem þarna er fólk á ferðinni sem vill og getur gert miklar breytingar. Á Islandi erum við vön pólitískri umræðu hist og her en það á ekki við í Los Angeles þar sem umræðan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.