blaðið - 24.10.2006, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaðið
Launakjör þingmanna
og ráðherra, allur pakkinn
í Blaðinu þann 20. október var
fjallað ítarlega um launakjör þing-
manna. Oft er rætt um sjálftöku þing-
manna þegar umræða um launakjör
þeirra ber á góma. Þar er átt við að
kjaradómur ákvarðar þingfararkaup
en þingmenn hafa að auki æði oft
með margskonar pukri og leynd
rennt í gegnum þingið margskonar
aukagreiðslum. Þær greiðslur sem
koma fram í Blaðinu segja einungis
hluta sögunnar, stór hluti kjara
þessara kjörnu fulltrúa ráðast af
sérstökum lífeyrisréttindum. Aðilar
vinnumarkaðarins hafa margoft bent
á að í umræðum sínum um launakjör
sleppi þingmenn ætíð að geta þeirra
lífeyrisréttinda sem þeir hafa búið
sér. Á vef SA í vor var birt ítarleg grein
eftir aðstoðarframkvæmdastjóra SA,
Hannes Sigurðsson hagfræðing, um
hversu verðmæt þessi réttindi væru.
Hér eru rifjuð upp nokkur helstu
atriðin.
Lffeyrir 70% af launum
I lögum um eftirlaun forseta Is-
lands, ráðherra, alþingismanna og
hæstaréttardómara segir að eftir-
launahlutfall fyrrverandi ráðherra
sé 6% fyrir hvert ár í embætti en
þó aldrei meira en 70% af ráðherra-
launum. Eftirlaunin fylgja ráðherra-
launum eins og þau eru á hverjum
tíma. Fyrrverandi forsætisráðherra á
rétt á sama hlutfalli eftirlauna og for-
seti íslands, sem er 60% af launum ef
hann hefur setið í embætti í fjögur ár,
70% ef árin eru fjögur til átta en 80%
ef árin eru fleiri en átta. Eftirlauna-
hlutfall fyrrverandi alþingismanns
er 3% fyrir hvert heilt ár þingsetu en
verður aldrei hærra en 70% af þingfar-
arkaupi. Eftirlaunin fylgja þingfarar-
kaupi eins og það er á hverjum tíma.
Fyrir hvert ár á þingi myndar þing-
fararkaup eftirlaunarétt sem nemur
14 þúsund krónum á mánuði í ævi-
langan, mánaðarlegan lífeyri sem
hækkar í takt við þingfararkaupið,
og hvert ár í embætti ráðherra skapar
lífeyrisrétt sem nemur 61 þúsund
krónum í ævilangan, mánaðarlegan
lífeyri. Álög á þingfararkaup mynda
einnig viðbótarlífeyrisrétt. Það þarf
vart að taka það fram að þessi lífeyris-
kjör myndast ekki með sjóðssöfnun,
eins og gerist hjá flestum öðrum
landsmönnum. Lífeyrisréttindin
á almenna markaðnum, þar sem
sjóðssöfnun og ávöxtun eigna ræður
því hversu hár ellilífeyririnn getur
orðið, eru mun lakari en þessi sérlög
um lífeyrisréttindi kjörinna fulltrúa
kveða á um. Sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði
verzlunarmanna með árslaun sam-
svarandi þingfararkaupi ávinnur sér
helmingi minni lífeyrisrétt en þing-
maðurinn, þ.e. sjö þúsund krónur í
ævilangan, mánaðarlegan lífeyri og
fjórðung miðað við ráðherrann.
Þingmenn eru með 3-4 sinnum
betri lífeyrisréttindi en aðrir
Það tekur þingmann rúm 23 ár
að komast í 70% hámark eftirlauna-
hlutfallsins og ráðherrann tæp 12
ár. Sé miðað við að þingmaður hefji
þingmennsku 41 árs þá nær hann
hámarksrétti til lífeyris, 330 þús. kr.
á mánuði, þegar hann verður 64 ára.
Sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði verzlunar-
manna ávinnur sér rétt til 168 þús.
kr. Hfeyris á sama tíma miðað við
nýjar reglur um aldursháða ávinnslu.
Miðað við jafna ávinnslu óháð aldri
ávinnur sjóðsfélaginn í Lífeyrissjóði
verzlunarmanna sér 187 þús. kr. rétt
til ævilangs, mánaðarlegs lífeyris.
Ráðherra sem hefur störf í embætti
53 ára og starfar í þrjú kjörtímabil
ávinnur sér lífeyrisrétt sem nemur
592 þús. kr. á mánuði ævilangt. Sjóðs-
félagi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna,
sem er jafngamall og með sömu laun,
ávinnur sér ævilangan lífeyrisrétt
sem nemur 56 þús. kr. á mánuði á
sama tíma.
Sé miðað við núverandi ævilíkur,
sem eru tæp 84 ár hjá körlum sem ná
65 ára aldri, 1% kaupmáttaraukningu
á ári, 3,5% ávöxtun eigna lífeyrissjóða
og 3,5% vexti til núvirðingar lífeyris-
greiðslna, þá má umreikna umfram
lífeyriskjör þingmanna og ráðherra
yfir í ígildi starfslokagreiðslu eða sem
ígildi launauppbótar, þá kemur fram
að umframlífeyriskjör þingmanna
má leggja að jöfnu við 23-35% mánað-
arlega launauppbót.
Umframlíféyriskjör ráðherra sem
gegnir embætti í þrjú kjörtímabil eru
ígildi 85-102 m.kr. starfslokagreiðslu
og 66-79% mánaðarlegrar launaupp-
bótar samkvæmt ofangreindum for-
sendum. Umframlífeyriskjör forsæt-
isráðherra sem situr í tvö kjörtímabil
eru enn meiri, þar sem þau eru ígildi
113 m.kr. starfslokagreiðslu eða 122%
launauppbótar. Þegar samið er um
laun á almennum markaði er ætíð
tekið mið af heildarlaunakostnaði fyr-
tmannaí
umræöu um
Umrœðan
Guðmundur Gunnarsson
irtækjanna. Þegar þingmenn fjalla
aftur á móti um sín launakjör fjalla
þeir ætíð einungis um lágmarks-
launataxta, þ.e.a.s. þingfararkaup
tæpa hálfa milljón kr. f raun eru laun
þingmanna um 1 millj. kr. á mán.
að jafnaði og laun ráðherra liðlega 2
millj. kr.
Ómakleg umfjöllun þingmanna
um almennu lífeyrissjóðina
Þingmenn hafa sett lög sem kveða
á um að ef almennir lífeyrissjóðir eigi
ekki fyrir skuldbindingum verði þeir
að skerða réttindi. Almennir launa-
menn hafa margoft bent á það sé ekki
réttlátt að þingmenn og sumir opin-
berir starfsmenn geti sótt vaxandi
örorkubyrði sinna sjóða í ríkissjóð á
meðan aðrir landsmenn verða að una
þeim lögum sem þingmenn settu því
að réttindi þeirra séu skert. I sumum
lífeyrissjóðumerbúið að skerðalífeyri
um ríflega 20% og ef ekkert verður að
gert verður að skerða enn meir.
Útgjöld lífeyrissjóða hafa aukist
gífurlega vegna mikillar fjölgunar
öryrkja og aukins langlífis. Örorku-
tekjurnar hjá lífeyrissjóðunum eru
afkomutengdar og eiga að tryggja
að sjóðsfélaginn hafi sambærilegar
tekjur og hann hafði fyrir örorkutapið,
en ekki hærri tekjur. Einn hópur í al-
mennum lífeyrissjóði getur ekki notið
meiri réttinda en reglugerðir kveða á
um, nema þá með því að taka það frá
öðrum. I þeim umræðum sem hafa
staðið yfir undanfarnar vikur snýst
málið um að það er verið að taka
um 400 - 500 millj. kr. frá ellilífeyr-
isþegum og færa það yfir í örorkubæt-
urnar. I þeim lífeyrissjóðum sem eru
þingmönnum þóknanlegir væri þessi
upphæð sótt í ríkissjóð. Mörgum of-
bauð hræsni ákveðinna þingmanna
þegar þessi mál voru tekin til um-
ræðu á Alþingi nýverið.
Höfundur er formaður
Rafiðnaðarsambands fslands
Veldu Ford. Við staðgreiðum gamla bílinn þinn
Þú veltir fyrir þér hvernig best er að losna við gamla bílinn. Brimborg
kaupir hann af þér staðgreitt" veljir þú bíl á góðu uppskerutilboði Brimborgar.
Þú losnar við allt umstang við að selja og lækkar þinn kostnað. ý
Komdu í Brimborg. Kynntu þér hvernig þú getur fengið þér
nýjan Ford á uppskeruverði. frJœnutx$*iv->'
brimborg
Öruggur stadur til aO vera á
vwwvforórá
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg flkureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.lord.is
* Brimborg og Ford áskilja sér rétt til
igi erlendra
'framleiðanda og Brimborgar er innitáliSri leigugreiðsluög allt að 60.000 km akstur á
yrirvara 1
ð við 1
Bdasamningur er
• greiðslur (39 mánuði sem ern háðar genai erlendra mynta og *ðxtum þeirra. Smur- 00 þjðnustueftirlit samfemt lerli
timabilinu. ” Staögreitt 45 dögum ettir alnendingu nýja bllsins. Nánari upplýsingar veita söluráðgjatar Brimborgar.
Rafgeymar ^
Dekkjaþjónusta
www.bilko.is
www.hasso.is
Car-rental / Bílaleiga
Vetrardekk - Heilsársdekk - nagladekk - loftbóludekk
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110