blaðið - 24.10.2006, Page 19
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 31
Krataávarpið
Ég er hægrimaður þegar kemur
að markaðnum en vinstrimaður
þegar kemur að samfélaginu - ég er
jafnaðarmaður.
Frelsi á markaði skapar auð og
auður er afl þeirra hluta sem gera
skal. Kapítalismi er hins vegar ekki
trúarbrögð eins og hann nánast er í
Bandaríkjunum og nálgast að vera
hér á landi.
ísland hefur þokast hraðbyri í
átt að þvi að verða fimmtugasta og
fyrsta fylki Bandaríkjanna. Sam-
félag þar sem auðhyggja er allsráð-
andi og önnur gildi lítt í hávegum
höfð. Þar er misskipting auðs með
því mesta sem gerist í heiminum.
Misskipting auðs hefur stóraukist í
stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar,
svo mjög að við skipum þar forystu-
sæti í Evrópu ásamt með Bretum.
Sú hyldýpisgjá sem myndast hefur
á milli ofurlaunaðra og þorra al-
mennings er engu samfélagi holl til
frambúðar. Ég vil taka þátt í að brúa
þessa gjá og varðveita hið norræna
velferðarsamfélag á íslandi.
Ég vil ljúka því ætlunarverki
gamla Alþýðuflokksins að setja
skýrar leikreglur á markaði sem
koma í veg fyrir að æðstu yfirmenn
fyrirtækja geti skammtað sér ofur-
laun í formi kaupréttar eða bónusa,
til að koma í veg fyrir fákeppni, ein-
okun og til að tryggja að fjölmiðlar,
fjórða valdið, verði ekki í eigu ör-
fárra auðmanna.
Ég vil beita mér fyrir því að bæta
kjör hinna verst settu í samfélaginu,
svo sem öryrkja, aldraðra, einstæðra
mæðra og annarra láglaunahópa.
Það verður gert með úrbótum og ein-
földun á almannatryggingakerfinu
sem miða að því að afnema lífeyr-
isskerðingar. Það verður gert með
því að hækka skattleysismörk. Það
verður gert með því að lækka skatt-
byrði þessa hóps.
Ég vilvinna aðbreytingu áskattkerf-
inu er miði að því að skattbyrði hinna
ofurlaunuðu aukist til muna. Menn
auðgast af dugnaði eða heppni eða
hvoru tveggja. En ekki má gleyma því
að enginn verður auðugur í einrúmi.
Samfélagið sem við búum í gerir íbú-
unum kleift að auðgast. Hinum auð-
ugu ber því réttmæt skylda til að láta
meira af hendi rakna til samfélagsins
og almennrar velferðar.
Ég vil hvetja til nánara samstarfs
við ríki Evrópu, á sviði efnahags-
mála, stjórnmála og varnarmála.
Ég vil þoka íslandi nær Evrópu og
evrópskum gildum. Að mínu mati
erum við Islendingar Evrópumenn,
ekki Bandaríkjamenn.
Ég vil segja upp varnarsamn-
ingnum við Bandaríkin og byggja
varnir landsins á samstarfi innan
NATO og við þjóðir Evrópu.
Ég vil taka þátt í því að fella nú-
verandi ríkisstjórn sem hefur í
valdatíð sinni rekið landið eins og
hverja aðra sjoppu í einkaeign. Rík-
isstjórn sem afhent hefur eignir
þjóðarinnar á silfurfati fáeinum út-
völdum samkvæmt helmingaskipta-
reglu. Ríkisstjórn sem markvisst
hefur fært Island í átt til auðhyggju
frá samfélagshyggju, til að mynda
með því að auka skattbyrði hinna
lægstlaunuðu og minnka skattbyrði
hinna ofurlaunuðu. Ríkisstjórn sem
skilur ekki inntak hugtaksins sjálf-
bær þróun, sem hefur kollvarpað
efnahagslegum stöðugleika með
ofuráherslu á erlendar fjárfestingar
í áliðnaði án þess að gera lágmarks-
kröfu um arðsemi orkusölu. Rík-
isstjórn sem skilur ekki nauðsyn
þess að varðveita þjóðareign á nátt-
úruauðlindum. Ríkisstjórn sem
tekur ákvarðanir án samráðs við
eigin flokksmenn eða Alþingi og
atar hendur Islendinga blóði með
blindum og glórulausum stuðningi
við árás Bandaríkjanna og Breta
á Irak og hefur þar með stofnað ör-
yggi okkar fslendinga í mikla hættu.
Eg vil viðreisn stjórnmála á ís-
landi þannig að stjórnmálamenn
ísland hefur
þokasthrað-
byri íáttað
því að verða
51. fylki
Bandaríkj-
anna
Umrœðan
Glúmur Baldvinsson
hafi styrk til að verja hagsmuni
þorra almennings gegn æ valda-
meiri auðklíkum. Hið pólitíska vald
er tilkomið fyrir stuðning borgar-
anna. Þess vegna þarf pólitíkin að
mynda mótvægi við auðvaldið.
Með því að auka reisn stjórn-
málanna vil ég ennfremur gera
pólitíkina skemmtilegri. Þar hefur
verulega skort á undanfarinn ára-
tug. Hannibal sagði eitt sinn: „Það
má fyrirgefa stjórnmálamönnum
margt, en
leiðinlegir“.
ekki það að vera
Höfundur er alþjóðastjórnmálafræð-
ingur og býður sig fram í 5. til 8. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar i Reykjavík
ELDHÚSIÐ KOMIÐ HEIM
OG SAMAN FYRIRJÓL!
... efgengið er frá pöntun íoktóber.
~ti
FULLKOMIN LÖGUN OG LEIKNI
20% AFSLÁTTUR
VEITTUR AF AEG
HEIMILISTÆKJUM
ÞEGAR KEYPTAR ERU
INNRÉTTINGAR FRÁ
HTH.
...... ■ , --- V..' ■ . i.'SglB
■^wsm
.
Glæsi eldhúsin
fráHTHeru
ekkieinsdýr
---- — ---------- og þau líta út
fyrirað vera!
- •
Í';
/M
é
'.:SíS
...þú færð það
aðeins betra!
Ef þið leitið að eldhúsinnréttingu, inréttingu í baðherbergið eða
fataskápum, sem sameinarfegurð og gegnheil gæði, ættuð þið
að skoða HTH.
Við bjóðum afar fgölbreytt úrval innréttinga í margvíslegum út-
færslum, svo þið ættuð að finna hjá okkur vandaða innréttingu,
sem hentar smekk ykkar og þörfum.
Þið fáið mikið fyrir peningana, því innifalið í verðinu er ráðgjöf
fagfólks við hönnun innréttingarinnar - allt eftir ykkar óskum.
Það er okkur sönn ánægja að kynna fyrir ykkur hina fjölbreyttu
möguleika, sem felast í lausnum HTH.
Lítið inn í glæsilegan sýningarsal okkar í Lágmúla 8 og
sjáið það allra ferskasta í hönnun eldhúsinnréttinga.
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 11-15.
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800