blaðið - 28.10.2006, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaðið
Egill Ólafsson sendi
nýlega frá sér geisla-
diskinn Miskunn dal-
fiska þar sem hann
syngur eigin lög við
eigin texta. Hann
hefur einnig gefið
út fyrstu ljóðabók sína. Hún ber
titilinn Kysstu kysstu steininn og
textinn er bæði á íslensku og þýsku
en Claudia J Koestler sá um þýsku
þýðinguna. „Ég hef verið að yrkja
lengi, frá því ég gat dregið til stafs.
Fram að þessu hafa þetta verið skrif
fyrir skúffuna,“ segir Egill. „Mun-
urinn á því að yrkja ljóð og skrifa
söngtexta er að í seinna tilvikinu
fæðist lagið yfirleitt fyrst og síðan
textinn. Stemningin og formið á lag-
inu sjálfu kallar eftir orðunum og
því er gjarnan málið að fylla inn í
það form. Ljóðið er orð sem maður
setur á hvíta örk. Ég tek samt eftir
því að ljóðatextinn minn er yfirleitt
sönghæfur. Sennilega stafar það af
því að ég hugsa taktbundið.“
Um hvað eru Ijóðinþin?
„Allt milli himins og jarðar. Oftar
en ekki eru þetta samræður við
sjálfan mig, heimspekilegar vanga-
veltur þar sem taóismi krælir á sér
og eitthvað er um kaldhæðnislega
orðaleiki."
Yrkirðu ekkert um ástina?
„Jú, svo er hún þarna líka. Ástin
er uppistaðan í lífinu. Drifkraftur-
inn. Stóra aflið. Inntakið í lífi hvers
og eins er að elska og vera elskaður.
Allir menn vakna til þess og sofna
frá því.“
Er ástin það fallegasta sem til er?
„Ég get tekið undir að hún sé það
fallegasta sem til er en um leið er
hún það erfiðasta sem menn glíma
við. Ástin er stöðugt áleitin. Hún er
sífellt að krefja menn um afstöðu,
uppgjör, framhald og ræktarsemi.
Hún er krefjandi eins og sjálft lífið,
hún er lífið og í beinu framhaldi
kemur svo listin.“
Listin er leiðarvísir
Hvert er mikilvœgi listarinnar í
þínum huga?
„Ég held að allir menn hugsi stöð-
ugt um hlutskipti sitt í lífinu og
hvernig þeir hagi lífi sínu best og
fylli það merkingu fyrir sjálfa sig
og aðra. Ég held að ekkert sé jafn
læknandi og nærandi og listin
þegar kemur að þessum mikilvægu
spurningum. Við förum í leikhús,
speglum okkur í því lífi sem við
sjáum lifna á sviðinu og hefjum um
leið samræður við okkur sjálf, sem
oftar en ekki eru um þessar stóru
spurningar. Það sama gerist þegar
við stöndum frammi fyrir myndlist
sem hreyfir við okkur, við upplifum
okkur sjálf á nýjan hátt, sjáum
okkur sjálf í öðru ljósi þegar best
lætur og eigum því betur með að
átta okkur á eigin lifi. Við speglum
okkur í listinni, fáum oftast svör og
það sem er mikilvægast, við þjálf-
umst í því að ræða við okkur sjálf
um hvernig lífið geti orðið betra,
það er viðræða sem er öllum sið-
menntuðum mönnum í siðmennt-
uðum samfélögum lífsnauðsynleg.
„Ástin er stöðugt áleitin.
Hún er sífellt að krefja menn um
afstöðu, uppgjör, framhald og
ræktarsemi. Hiín er krefjandi eins
og sjálft lífið, hún er lífið og í
beinu framhaldi kemur svo listin.
Sjóntækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumælinga
Greiðslukjör
í allt að 36
mánuði
§Gleraugað
Bláu húsin við Faxafen
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is
(visa/euro) Engin útborgun