blaðið - 28.10.2006, Page 36
• 3 6 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006
blaðiA
B Tilveran
tilveran@bladid.net
Ertu flökkukind?
Flestum finnst gaman að ferðast, hvort heldur sem er
Innanlands eða til útlanda. Fólk lítur á þaö sem tækifærl
til að brjótast úr viðjum hins hversdagslega og upplifa
eitthvað nýtt og spennandi. Ferðalögin eru auk þess nýtt
til frekari samskipta við fjölskyldu, eitthvað sem lítill tími
gefsttil í annríki vinnu og heimilisverka. Sumir eru nánast
- háðir ferðalögum og verða að fara eitthvað sem oftast. Út-
landið heillar þá og helst vilja þeir fara til útlanda mörgum
sinnum á ári, aö ógleymdum skemmtilegum ferðum innan-
lands. Hvað með þig, ert þú flökkukind?
1. ÞÚ ERT NÝKOMIN(N) ÚR GÓÐRI UTANLANDSFERÐ, ERT
ÞREYTT(UR) EN HAMINGJUSÖM/SAMUR. HVAÐ LÍÐUR LANGUR
TÍMI ÞAR TIL ÞIG LANGAR AFTUR TIL ÚTLANDA?
a) Það líða nokkrir mánuðir.
b) Yfirleitt þegar ég er á leið heim frá Keflavíkurflugvelli.
c) Ég vil helst ekki koma heim.
d) Það líður að minnsta kosti ár þar til mig langar aftur út.
2. HVERNIG LÍÐUR ÞÉR HEIMA HJÁ ÞÉR?
a) Mér líður vel þar en það þarf alltaf eitthvað að gera þar.
b) Langbest. Ég vil helst ekki fara þaðan.
c) Mjög vel.
d) Vel en ég sakna þess lítið þegar ég er í burtu.
3. HVE OFT FERÐU f FERÐALÖG, INNANLANDS EÐA UTAN?
a) Ég fer kannski í eina útilegu á ári eða svo. En sjaldnar til útlanda.
b) Ég fer í nokkur ferðalög innanlands á ári og reyni að fara til
útlanda að minnsta kosti þrisvar sinnum.
c) Ég fer til útlanda tvisvar á ári en oftar í ferðalög innanlands.
d) Ég ferðast nokkrum sinnum á ári, innanlands og utanlands.
4. HVERNIG FJÁRMAGNARÐU FERÐIR ÞÍNAR?
a) Yfirleitt bara með kreditkorti sem ég borga svo til baka þegar ég get.
b) Ég reyni alltaf að eiga pening fyrir farinu og hótelinu. Eyðslan fer
svo á kreditkortið.
c) Ég ferðast ekki nema ég hafi efni á því.
d) Því miður neyðist ég oftast til að nota kreditkort.
5. HVAR LÍÐUR ÞÉR BEST?
a) Á flakki, að versla og skemmta mér.
b) Með góðum félögum og fjölskyldu minni. Staðurinn skiptir ekki máli.
c) Ég vil helst annaðhvort vera á ferðalagi, á leiðinni í ferðalag eða
að skipuleggja ferðalag.
d) Heima hjá mér í faðmi fjölskyldu.
6. ERTU MEÐ YFiRVIGT ÞEGAR ÞÚ KEMUR HEIM ÚR FERÐALAGI?
a) Ég reyni að forðast það.
b) Nei, af hverju ætti ég að vera með það?
c) Já, því miður.
d) Já, í nánast hverri einustu ferð. Mér finnst svo gaman að versla.
7. HVAÐ VAR STYSTA FERÐ ÞÍN TIL ÚTLANDA?
a) Dagsferð.
b) Helgarferð.
c) Vikuferð.
d) 3-4 dagar.
8. TIL HVERS FERÐASTU?
a) Til að kynnast fleiri löndum.
b) Því það er skemmtilegt og fróðlegt.
c) Ég veit það ekki, ég fæ bara eitthvað út úr því.
d) Það er ótrúlega gaman og oft er hægt að gera góð kaup.
Teldu saman stigin:
1. a)2 b)3 C)4 d)l
2. a)3 b)1 c) 2 d)4
3. a) 1 b) 4 c) 3 d) 2
4. a)4 b)2 c)1 d)3
5. a)3 b) 2 C) 4 d)1
6. a) 2 b)1 c)3 d) 4
7. a) 4 b) 3 c) 2 d) 1
8. a) 1 b)2 C) 4 d) 3
0-10 stig:
Þaö er deginum Ijósara að þú kannt best við þig
heima hjá þér þar sem þú veist hvar allt er og við
hverju er að búast. Það er ánægjulegt að líða vel
heima hjá sér en stundum getur heimilið orðið að
nokkurs konar fangelsi öryggisins. Það er gott að
finna til öryggis en það er líka nauðsynlegt að finna
einstaka sinnum til óöryggis, þó ekki væri nema til
aö vinna bug á því. Haltu áfram að njóta þess að
vera heima hjá þér en læröu lika að njóta þess að
ferðast einstaka sinnum. Með nýju umhverfi fæðast
nýjar víddir og hugmyndir.
11-17 stig:
Þú kannt bæði vel við þig heima hjá þér og þú
hefur ánægju af því að ferðast. Það lítur þvl út fyrir
að þú hafir fundið hinn gullna meðalveg sem er
svo vandrataður. Þú passar llka upp á að eiga fyrir
ferðalðgum þinum og leggur ekki af stað fyrr en allt
ertilbúið og skipulagt.
Það má alveg stökkva af stað stundum, óundirbú-
in(n) og með kreditkortið eitt að vopni. Hver veit
nema það gæti orðið skemmtilegt eða óvenjulegt
ferðalag, þrátt fyrir að vera óllkt þlnum fyrri ferða-
lögum.
18-24 stig:
Þú hefur gaman af þvl að ferðast og gripur hvert
tækifæri sem gefst til þess að stökkva I flugvélina, I
lestina eða I bllinn. Þú lætur hvorki kostnað, vinnu
né annað stoppa þig þegar þú ert ákveöin(n) hvert
skal fara. Ákvörðunarstaöurinn skiptir ekki alltaf
máli heldur frekar það að vera á ferðinni. Það er gott
og blessað en þú þyrftir kannski að njóta þess að
vera heima hjá þér annað slagið. Lífið þarf ekki að
vera þrungið spennu og llfi til að vera skemmtilegt.
25-32 stig:
Það er vægt til orða tekið að kalla þig flökkukind
því þú ert það og meira til. Þú vilt helst alltaf vera að
ferðast. Nú er þetta er jafnvel farið að hafa áhrif á llf
þitt og starf. Það finnst öllum skemmtilegt að ferð-
ast en þetta má ekki verða að þráhyggju. Skoðaöu
ástæður þfnar fyrir þvi að ferðast, getur verið að þú
sért að reyna að forðast einhvern veruleika heima
við eða kannski hversdaginn sjálfan? Hversdagslegt
Iff getur vissulega orðið hefbundið og leiðinlegt en
á sama tíma er það nauðsynlegt. Ferðalögin verða
svo miklu skemmtilegri ef þau eru tilbreyting I stað
þess að vera enn eitt ferðalagið.
BaseCamp auglysir, fyrir hönd Rikisutvarpsins-Sjonvarps, eftir
lögum til þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007.
Þátttökueyðublað og reglur keppninnar er að finna á heimasíðu
Ríkisútvarpsins www.ruv.is/songvakeppnin og á heimasíðu
BaseCamp www.basecamp.is
Höfundar skili lögum til BaseCamp, Nethyl 2a, 110 Reykjavík,
eigi síðar en 16. nóvember 2006.
Nanari upplysingar veittar hjá BaseCamp
í síma 5 610 610 eða í vefpósti info@basecamp.is
HBaseCamp
SJONVARPIÐ