blaðið - 23.12.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006
blaðið
INNLENT
BYRGIÐ
Guðmundur kærður
Ólöf Ósk Erlendsdóttir hefur kært Guðmund
Jónsson, forstöðumann í Byrginu að því er
fram kemur á Vísi.is. Hann er sakaður um að
hafa misnotað aðstöðu sína og átt í kynferðis-
legu sambandi við skjólstæðinga sína.
WILSON MUUGA
Óvíst hve mikil olía er í skipinu
Unnið er hörðum höndum við undirbúning þess að
dæla olíu úr tönkum flutningaskipsins sem strandaði
við Sandgerði á þriðjudag. Hávar Sigurjónsson, hjá
Umhverfisstofnun, segir enn ójóst hversu mikil olía er í
tönkum skipsins og hversu mikið hefur lekið út.
SAMGÖNGUR
Fiug úr skorðum
Starfsmenn flugfélaga stóðu í ströngu í gær við að koma far-
þegum á áfangastað sem höfðu mátt bíða af sér veðrið á fimmtu-
dag. Flugsamgöngur hafa verið erfiðar vegna veðurs og var ófært
til Vestmannaeyja framan af degi í gær. Vonir standa til að engir
verði strandaglópar um jólin.
Eftirmál fjöldamorða í Haditha:
Akæra hermenn
fyrir morð
Átta bandarískir hermenn hafa
verið ákærðir fyrir að bera ábyrgð
á dauða 24 íraka í bænum Haditha
á síðasta ári. Meðal hinna látnu
voru 76" ára maður og þriggja ára
gamalt barn, en hermennirnir
sögðust hafa orðið fyrir árás
uppreisnarmanna.
Hermennirnir geta átt yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi. Fjórir her-
mannanna eru sakaðir um morð
af yfirlögðu ráði og aðrir fjórir
um að hafa gert tilraun til þess
að hylma yfir ódæðisverkið. Cond-
oleezza Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði í viðtali í gær
að þrátt fyrir mikið mannfall og
mikinn kostnað hafi stríðið í Irak
verið þess virði.
Stór pizza
með 2 áieggjum
Kr. 1.199
Opnunartimi:
Virka daga 16-22
Um helgar 12 - 22
TVÆR Á
2.000
oooTunc I Hækka#uþ>b
IrlNUO upp um einn
P I Z Z fl 9
r j. c. e- n | 5^,2345
Núpalind 1 Hverafoid 1-5 Reykjavikurvegi 62
Kópavogi Grafarvogi Hafnarfirði
byggt búiö
TOPP 10
VINSÆLUSTU
JÖLAGJAHRNAfl
A MEÐAN ÞU V
ERTAÐ HEIMANl
1. Robomop
gólfhroinpir
2. Síríus
Ijósakúia IDA
3. Breviilo
safapressa
4. George Fore-
man heilsugriil
5. Eva Solo
karafia
Gólfefni & þrif Höfn og Kaskó Keflavik
Jólin á Kárahnjúkum
Hangikjöt og sörur
í boði á fjallinu
Fjölskylduveislan fyrirfram Bóklestur og konfektát Kaþólsk messa
Snæfell i baksýn
Á Kárahnjúkum
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Kristín Björg Hilmarsdóttir, sem
starfað hefur sem móttökuritari
á heilsugæslustöðinni á Kára-
hnjúkum í rúm þrjú ár, ætlar að hafa
það notalegt á fjallinu um jólin.
„Ég mun halda aðfangadagskvöld
hátíðlegt með tveimur íslenskum
sjúkrabílstjórum og tveimur filipps-
eyskum hjúkrunarfræðingum. Við
ætlum að borða saman hangikjöt og
annað sem við höfum viðað að okkur
og svo skiptumst við á jólagjöfum.
Ég geri síðan ráð fyrir að hvíla mig,
horfa á sjónvarpið og lesa bækur. Ég
er með sörur að heiman og konfekt
og svoleiðis," segir Kristín og bætir
því við að glæsilegt hlaðborð verði
í matsal starfsmanna í hádeginu á
jóladag.
Á matseðlinum eru humarhalar,
reykturlax, síld, hreindýrapaté, sjáv-
arréttasalat, pastaréttir, nautakjöt
og svínakjöt og kökur og ávextir í
eftirrétt svo fátt eitt sé nefnt.
Jólin með fjölskyldunni hélt
Kristín hátíðleg í síðustu viku þegar
hún var heima í vikufríi. „Ég var
þá með fjölskylduna mína í jóla-
mat á föstudagskvöldi, börnin mín,
tengdabörn og barnabörn, og svo
var öll fjölskyldan í jólaveislu hjá
bróður mínum. Við tókum þetta
bara út fyrir fram,“ segir hún og
bætir því við að allflestir íslending-
anna á Kárahnjúkasvæðinu fari
heim yfir jólin nema þannig standi
á vöktum.
Sjálf verður hún í fríi yfir hátíð-
isdagana þótt heilsugæslan verði
að sjálfsögðu opin. „En þar sem ég
er flughrædd og alla veðra er von
ætla ég að vera um kyrrt hér. Þetta
verða önnur jólin mín hér og ég veit
að þetta verður ágætt. Börnin mín
eru uppkomin og koma til með að
hafa það gott með mökum sínum
um jólin.“
Híbýiin skreytt
Starfsmannahús
Sendír jóla-
kveðjur heim
Kristín Björg
Hilmarsdóttir
Á aðfangadagskvöld verður
kaþólsk messa á Kárahnjúkum.
Að sögn Kristínar hafa nunnur
og munkar komið þangað und-
anfarin ár til að messa þar sem
margir erlendu starfsmannanna
eru kaþólskir. Víða hafa verið
settar upp jólaskreytingar á svæð-
inu. „Og svo hafa auðvitað fjöl-
skyldur skreytt í húsunum sínum,“
greinir Kristín frá sem vonar að
lítið verði að gera hjá félögum
hennar á heilsugæslustöðinni yfir
hátíðarnar.
^JilUBÖÐ
www.eico.is
Skútuwogi B - Stmi 57D>1700
OplS « - Jft afla rfag* tff jéfa ag 10 - 12 » AWangarfag