blaðið - 23.12.2006, Page 36

blaðið - 23.12.2006, Page 36
36 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 blaöið 1UIUII1I ithrottir@bladid.net Skeytin inn Alfreð Gíslason, landsliðsþjálf- ari í handbolta, hefur valið nítján manna æfingahóp fyrir komandi átök liðsins í janúar. Liðið tekur þátt í LK Cup í Danmörku 5. til 7. janúar og leikur síðan tvo vin- áttuleiki gegn Tékkum 13. og 14. janúar. Hæst ber þó heims- meistaramótið í Þýskalandi þann 18. janúar. ísland er í riðli með Ástralíu, Frakklandi, og Úkraínu og þykir ljóst að erfiðustu viður- eignirnar verða gegn Frökkum og Úkraínumönnum. Blaðið fékk þrjá valinkunna hand- boltaspekinga til að segja álit sitt á vali liðsins: Fín breidd í liðinu Sigurður telur lands- liðið feiknarsterkt um þessar mundir og að sjaldan hafi svo mikil breidd einkennt hóp- inn. „Þettaergóður hópur sem mér líst vel á. Það eina er að það virðist skortur á öflugum rétt- hentum skyttum, og spurning hvort Guðjón Valur leysi skyttustöðuna og Logi detti í hornið í einhverjum tilfellum. Arnór fær eflaust ann- ars að byrja, en ef hann klikkar mun Markús Máni eflaust fá að spreyta sig og hann á alveg að geta stritt þessum liðum.“ Sigurður telur einnig að hugsanlega taki A1 freð aðeins 15 menn út og Hreiðar Guðmundsson og Sigfús Sigfússon sitji eftir. „Það getur komið sér vel að bíða og sjá, sérstaklega ef að menn detta í meiðsli, en annars velur hópurinn sig nokkurn veginn sjálfur." Arnór gæti blómstrað Þjálfari Akureyrar telur mögu- leika landsliðsins mikla einnig. Hann telur að Arnór Atlason muni og eigi að fá byrjunarstöðu sem Finnskar loðhúfur „v-.*. -frábær mmm RAMM Hafnarstræti 19l S(ml 551 1122 skytta og blæs á allt tal um að sú staða sé helsti veikleiki liðsins. „Arnór hefur gífurlegan skilning á leiknum. Hann er frábær sóknar- maður sem getur bæði skorað og spilað félaga sína uppi með frábærum linusendingum." Rúnar segir að hugs- anlega detti Sigfús Sigfússon úr liðinu og annaðhvort Hreiðar Guðmunds- son eða Björgvin Gústavsson mark- menn. Hann hefur þó trú á sínum manni í Akureyrarliðinu. „Hreiðar á að mínu mati heima í þessi landsliði. Hahn hefur jafnað sig ótrúlega vel af meiðslunum sem voru að hrjá hann og frammistaða hans gegn Stjörn- unni sannar það.“ Rúnar segir einnig að hugsanlega mætti • - f gefa yngri mönnum séns oJ v á kostnað atvinnu- manna sem lítið hafa spilað með sínum félagsliðum. „Jó- hann Gunnar Einarsson er feikiefnilegur, meðan Ásgeir Örn hefur ekki verið að fá marga sénsa hjá Lemgo. Ás- geir er auðvitað góður, en menn verða að vera í leikæfingu,“ sagði Rúnar að lokum. Eigum góða möguleika Viggó Sigurðsson, fyrir- rennari Alfreðs, segir ekkert koma á óvart í valinu að þessu Akureyringur og Dalvíkingur skara framúr á skíðum: Dagný Linda og Björgvin best Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík eru skíðamenn ársins samkvæmt vali Skíðasambands ís- lands. Vali sínu til stuðnings bendir skíðasambandið á góðan árangur þeirra beggja á Ólympíuleikunum í Tórínó í febrúar s.l. en þar urðu þau bæði í 23. sæti; Dagný í bruni og risa- svigi en Björgvin í svigi. Eftir að hafa verið frá keppni í nærri tvö ár sneri Dagný til leiks að nýju haustið 2005. Hún hefur átta sinnum náð að vera meðal tíu bestu á alþjóðlegum mótum undanfarið og kórónaði svo tímabilið með þre- földum Islandsmeistaratitli á Skíða- landsmótinu á Dalvík. Á síðustu tveimur mótum, í Lake Louis og Val d 'Isere hafnaði hún í 37. og 36. sæti. Björgvin hóf síðasta tímabil með því að verða Eyjaálfumeistari, en mótið fór fram á Nýja-Sjálandi og Ásralíu. Hann hefur 13 sinnum orðið meðal tíu efstu á alþjóðlegum mótum bæði í Evrópu og N-Ameríku. Einnig varð hann þrefaldur Islandsmeistari á Skíðalandsmótinu á Dalvík. Björg- vin hefur svo byrjað tímabilið á sigri á alþjóðlegu stórsvigsmóti í Noregi, og varð svo annar á samskonar móti, einnig í Noregi. Sannarlega glæsilegur árangur besta skíðafólks landsins. Sir Alex Fergusson mun fá talsverða peninga til leikmannakaupa í janúarglugganum samkvæmt Glazer-bræðrunum, eigend- um Manchester United liðsins. Talið er að Ferguson hafi úr um 25 milljónum punda að ráða á hverju ári, en í sérstökum „Súperstjörnutilfellum" muni hann fá alla þá peninga sem þurfi til, líkt og gerðist með ungstirnið Wayne Rooney sem keyptur var frá Everton á 28 milljónir punda árið 2004. Fellur um tvö sæti Samkvæmt nýjum styrkieikalista FIFA er kvennaiið íslands í 21. sæti og stendur i stað síðan i september. Liðið hefur þó failið um tvö sæti á árinu. Yfirmaður íþróttamála hjá franska knattspyrnulið- inu Marseille, Jose Anigo, hefur neitað staðfastlega þeim orðrómi að Svíinn síkáti, Sven- Göran Eriksson, muni taka við liðinu. Anigo segir að núverandi þjálfari liðsins, Albert Emon, hafi fullt traust sitt og annarra stjórnarmanna klúbbsins. Þrálátur orðrómur er uppi um að kanadískur milljarða- mæringur muni kaupa lið- ið og koma Sven-Göran í stjórastól- inn, en Anigo þverneitar því einnig. Javier Irureta hefur sagt af sér stjórnartaumunum hjá spænska knattspyrnuliðinu Real Betis eftir aðeins þrjá sigra i 15 leikjum. Liðið sigraði þó í síðasta kappleik gegn Tarrag- ona, en Irureta segist hafa tekið ákvörðun sína fyrir þann leik. Real Betis er sem stend- ur í 18. sæti spænsku deildarinnar en hefur gengið illa eftir að hafa selt sínar skærustu stjörnur, þá Joaquin til Valencia og Ri- cardo Oliveira til AC Milan. Lyfjaráð Ólympíunefndar Italíu birti í gær niðurstöð- ur úr lyfjaprófi sem tekið var eitir leik stórliðanna AC Milan og Roma 11. nóvember sl Þar kemur fram að Marco Borriello, 24 ára sóknarmaður AC Milan hafi fallið á umræddu lyíjaprófi. Talið er að Borriello hafi tekið inn efnið prednisol- one eða prednisone. Aganefnd knattspyrnusambands Ítalíu er með málið til rannsóknar og er Borriello kominn í tímabundið keppnisbann á meðan henni stendur. Þess má geta að Rómverj- ar unnu leikinn Markverðir: Roland Eradsze Stjörnunni, Birkir Guðmundsson Tus.Lubecke, Hreiðar Guðmundsson Akureyri Björgvin Gústavsson Fram. Aðrir leikmenn, Vignir Svavarsson Skjern, Logi Geirsson Lemgo, Sigfús Sigfússon Fram, Sigfús Sigurðsson Ademar Leon, Ásgeir Hallgrímsson Lemgo, Arnór Atlason FC Köbenhavn, Markús Michaelsson Val, Guðjón Val Sigurðsson Gummersbach, Snorri Guðjónsson GWD Minden, Ólafur Stefánsson Ciudad Real, Einar Hólmgeirsson Grosswallstadt, Ragnar Óskarsson Ivry, Alexander Petterson Grosswallstadt, Sverrir Jakobsson Gummersbach Róbert Gunnarsson Gummersbach. Tíff sinni. „Þetta er öflugur hópur sem á fullt erindi á stórmót. Áuðvitað detta einhverjir út, en þar sem ég hef ekki getað fylgst með deildinni heima get ég ekki tjáð mig um hverjir það verða. Ég hef heyrt af gagnrýni á Ásgeir Orn, en hann hefur verið að spila alla leiki síðasta mánuðinn þar sem Florian Kerman er meiddur, þannig að hann ætti að vera í ágætis formi,“ segir hann. „Roland hefur verið óheppinn með meiðsli á stórmótum, en við þurfum á góðri markvörslu að halda ef árangur á að nást. Það yrði plús ef hann gæti spilað með, við sjáum hvað setur,” sagði Viggó sem staddur var í Þýskalandi. LIÐIÐ ER SKIPAÐ ÞESSUM 19 LEIKMÖNNUM: Alfreö velur nitjan mannáihc Hópurinn ler öf lugur Góö niarkvarsla nauðsynleg Sterkt sóknarliö Breiddin góö

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.