blaðið - 05.01.2007, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR ÍLJANÚAR 2007
blaöiö
matur
Jólagjöfin í ár
Ein vinsælasta jólagjöfin í ár var
svokölluð isgerðarvél og kannski .
ekki að furða, því að ísinn er
jafnan vinsæll eftirréttur á mörgum
heimilum. Isgerðarvélar hafa verið
vinsælar á íslandi undanfarið ár og
vinsældirnar eru ekki síst tilkomnar
vegna þess að í vélinni er hægt að
búa til hollan ís, til að mynda úr jóg-
úrt. Fyrir þá sem vilja ísinn feitan
og góðan er líka hægt að búa til
dýrindisís og hér er til að mynda
uppskrift að einum slíkum.
Jarðarberjaís
• 3 eggjarauður, hrærðar
• 250 ml mjólk
• 500 ml rjómi
• 100 g sykur
• 2 bollar af jarðarberjum
• 1 tsk. vanilludropar
• 'A tsk. salt
Setjið jarðarberin í skál og maukið
þau ásamt 50 g af sykri. Setjið til
hliðar. Blandið eggjarauðunum,
mjólk, restinni af sykrinum og salti
saman í pott. Hitið blönduna upp
án þess að hún sjóði en hrærið
allan tímann í pottinum. Setjið
blönduna í skál og setjið inn í ís-
skáp í allt að þrjá tíma, hrærið af og
til í blöndunni. Þegar blandan hefur
kólnað má bæta rjómanum og van-
illudropunum við. Blöndunni er svo
bætt við jarðarberjablönduna sem
er síðan sett í ísgerðarvélina.
t
Heimatilbúinn ís
Þrátt fyrir að jólunum Ijúki senn
er ekki þar með sagt að allar
kræsingarnar fái að fjúka. Holl-
ustuæði gríþur landann brátt, rétt
eins og venjan er eftir jólin og því
ekki seinna vænna að njóta góðs
matar. Hér er einföld uppskrift að
jólaís sem fengin var úr bókinni
Jólahefðir'eftir Nönnu Rögnvaldar-
dóttur.
• 6 eggjarauður
• 50 g sykur
• 50 g púðursykur
• Vz lítri rjómi
• 1-2 msk. sérrí eða 1 tsk.
vanilludropar
• 100 g saxað súkkulaði,
til dæmis Toblerone
• 50 g pekanhnetur eða valhnetur,
saxaðar
Eggjarauður, sykur og púðursykur
þeytt mjög vel saman. Rjóminn stíf-
þeyttur og blandað saman við með
sleikju. Bragðbætt með sérríi eða
vanilludropum eftir smekk. Súkku-
laði og hnetum blandað gætilega
saman við með sleikju. Sett í form
og fryst. ísinn má bera fram með
súkkulaði og/eða karamellusósu.
Súkkulaðisósa
150 g dökkt súkkulaði
100 ml rjómi
2 msk. Ijóst síróp
1 tsk. vanilludropar
Allt sett ípott, hitað rólega og
hrært stöðugt á meðan. Sósan er
borin fram heit eða volg.
Afsakanir
Á morgun er þrettándinn sem þýðir að jólunum er að Ijúka.
Það er því ekki seinna vænna að dýfa sér ofan í konfektkass-
ann, svona rétt á meðan við erum löglega afsökuð.
Alvöruappelsínur
Gleymið ekki appelsínunum (hollustunni í janúar.
Appelsínur eru ekki Para bragðgóðar heldur eru
þær ríkar af kalki og C-vítamini.
matur@bladid.net
&
Þóra Tómasdóttir:
„Ég elda yfirleitt ekki
neitt nema þad sé
uppskrift frá Jamie
Oiiver. Það sem
er svo frábært við
matargerðina hans
er að það þarf ekki
að fylgja henni alveg
eftir heldur er þetta
svolitið frjáls aðferð."
Þora Tomasdottir eldar oft pasta
Fer eftir Jamie Oliver
„Sumir segja að ég gæti verið dug-
legri að elda en ég elda nokkrum sinn-
um í viku,“ segir Þóra Tómasdóttir
dagskrárgerðarmaður. „Yfirleitt elda
ég pastarétti og það er bara út af því
að það tekur svo stuttan tíma. Reynd-
ar er ég farin að færa mig upp á skaft-
ið og var til dæmis mjög nýstárleg og
flippuð um hátíðarnar en þá eldaði
ég hreindýr, önd og humar. Öndin
var mjög flókin en hún heppnaðist
vel. Ég gerði öndina eftir uppskrift
frá Jamie Oliver en ég elda yfirleitt
ekki neitt nema það sé uppskrift frá
Jamie Oliver. Það sem er svo frábært
við matargerðina hans er að það þarf
ekki að fylgja henni alveg eftir held-
ur er þetta svolítið frjáls aðferð. Ég
kíki stundum í bækurnar hans þeg-
ar ég elda pasta og nota þá eitthvað
svipað og hann notar.“
Pastauppskrift frá Gísla Marteini
Þóra segir að grunnurinn að pasta-
réttunum sem hún eldar sé fenginn
frá Gísla Marteini Baldurssyni borg-
arfulltrúa. „Uppskriftin hefur verið
þróuð í allar áttir og er til í ýmsum
útfærslum. Grunnurinn er pasta
sem er rétt soðið og svo er góð ólífu-
olía og sítrónusafi til helminga velgt
á pönnu. Ofan í þá blöndu er sett
hvítlauksrif og rauður chili-pipar
en passa þarf upp á að steikja hvít-
laukinn ekki alveg. Pastað er síðan
sett ofan í pönnuna og fersk stein-
selja of fullt af parmesan osti þar
ofan á. Þetta er mjög góður grunnur
og út á hann má setja hvað sem er,
kjöt og alls konar grænmeti. Þetta
er fersk og góð uppskrift sem Gísli
Marteinn gaf mér einhvern tímann
og ég hef eldað hana vikulega síðan.
Hann býr hana oft til þegar hann
kemur heim af skemmtunum en ég
geri hana frekar þegar ég kem heim
úr vinnunni," segir Þóra og hlær.
Sakna þess að fá ekki rjúpur
Þóra segir að sér finnist gaman að
elda þegar hún hefur nægan tíma og
er ekki að koma þreytt heim seint á
kvöldin. „Ég elda meira núna þvi
litla barnið mitt er að verða svo dug-
legt að borða. Uppáhaldsmaturinn
minn er tvímælalaust rjúpur en því
miður var engin nógu góð skytta í
fjölskyldunni til að bjarga mér með
rjúpur um jólin. Ég saknaði þess
mikið en þetta eru þriðju jólin sem
ég fæ ekki rjúpur. Þetta er mjög sorg-
legt og það verður eitthvað að gerast
í þessum rjúpnastofni til að ég fái
rjúpur í jólamatinn,“ segir Þóra og
bætir við að þessa dagana sé hún í
öflugu heilsuátaki. „Það er manískt
heilsuátak á mínu heimili um þess-
ar mundir og mikil samkeppni. Ég
stend mig mjög vel á þriðja degi og
er búin að vera dugleg að hlaupa."
svanhvit@bladid.net
Fljótlegt
Janúar er jafnan sá mánuður þeg-
ar fólk tekur heilsuna föstum tökum
og borðar hollan mat. Það er mis-
jafnt hve lengi slikt líferni endist en
fyrstu dagar mánaðarins einkennast
sérstaklega af fiski og öðrum hollari
mat enda fólk komið með nóg af feit-
um sósum, reyktu kjöti og öðrum há-
tíðarmat. í nútímasamfélagi er ekki
nóg að maturinn sé hollur heldur
þarf hann líka að vera fljótgerður. 1
þessari ljúffengu fiskuppskrift, sem
tekur einungis 35 mínútur að elda,
eru einungis 580 kaloríur á skammt
ásamt 10 grömmum af fitu og 44
grömmum af prótíni.
Þorskur með papriku og iauk
fyrir tvo
Hráefni:
• Salt
• 1 Vz bolli skeljapasta
og hollt
• 1 matskeið ólífuolía
• 1 lítill laukur, þunnar sneiðar
• V2 litil rauð paprika,
þunnar sneiðar
• Vz lítil gul paprika, þunnar sneiðar
• 1 hvítlauksrif, smátt skorið
• Va tsk. fenníkufræ
• 1 dós niðurskornir tómatar í safa
• 1 þorskflak eða annar mildur
hvítur fiskur
• % tsk. salt
• Steinselja
• Svartur pipar
Aðferð:
Látið vatn, salt og olíu í stóran
pott og hitið þar til vatnið fer að
sjóða. Bætið pastanu við og eldið
eins og leiðbeiningar segja til um.
Hitið olíu í pönnu þar til hún er
orðin heit. Bætið lauk, papriku, hvít-
lauk og fenníkufræjum í olíuna, eld-
ið í 5 mínútur eða þar til grænmetið
er orðið mjúkt. Hrærið reglulega í
pönnunni og bætið tómötum og saf-
anum við og hitið upp að suðumarki.
Lækkið hitann og leyfið matnum
að krauma í fimm mínútur. Setjið
þorskinn ofan á tómatblönduna í
pönnunni. Kryddið þorskinn með
salti og pipar. Setjið lokið á pönnuna
og leyfið að krauma í 8-10 mínútur,
hellið sósu yfir þorskinn annað slag-
ið. Setjið pasta á disk og þorsk ásamt
sósu ofan á.