blaðið

Ulloq

blaðið - 26.01.2007, Qupperneq 6

blaðið - 26.01.2007, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 blaftið i ! Áttuvon á gestum? f NAUTI ERUM VIÐ BESTIR GRENSÁSVEGI 48 • SÍMI 553 1600 KAUPÞING Kaupþing eignast hlut í Notio INNLENT Kaupþing Bank og Fram Invest í Færeyjum hafa eignast 98,5 prósenta hlut í færeyska fjárfestingarfélaginu Notio. Fram kemur á fréttavefnum skip.is að þetta hafi gerst eftir að bank- inn og Fram Invest keyptu 66 prósenta hlut Sparikassagrunns- ins og hlutafélagsins 14 i Notio. Hæstiréttur íslands: Sýknað í Baugsmáli ■ Saksóknara líkt viö fjósamann ■ Nýtt mál á dagskrá Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Hæstiréttur sýknaði í gær fjóra aðila í Baugsmálinu, af þeim sex ákæru- liðum sem eftir stóðu af uppruna- legri ákæru í málinu, og staðfesti nið- urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Samkvæmt dómsuppkvaðningu á allur áfrýjunarkostnaður málsins að greiðast úr rikissjóði og eru þar með talin málsvarnarlaun verjenda hinna ákærðu sem nema samtals rúmum tveimur milljónum króna. Jón Ásgeir og Kristín Jóhannes- börn voru ákærð ásamt endurskoð- endunum Stefáni Hilmari Hilm- arssyni og Önnur Þórðardóttur. Rannsókn málsins hófst árið 2002 og var 32 ákæruliðum af 40 vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í sept- ember árið 2005. Hæstiréttur stað- festi þessa niðurstöðu í október sama ár en Sigurður Tómas Magnús- son saksóknari hélt áfram með þá ákæruliði sem eftir voru. „Við flutning málsins í Hæsta- rétti í síðustu viku viðhafði hann [Sigurður] mjög ósmekkleg og ómakleg ummæli um mig og líkti mér við fjósamann sem stæli mjólk- inni úr kúnum sem honum væri treyst fyrir“, segir í yfirlýsingu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. „Sýknu- dómur Hæstaréttar í dag [gær] leiðir á hinn bóginn í ljós að það er hann sjálfur, Sigurður Tómas, sem er hinn eiginlegi fjósamaður í mál- inu. Hann situr í forinni sem þeir Haraldur Johannessen og Jón H.B. Snorrason skildu eftir sig þegar þeir hrökkluðust frá málinu." Gestur Jónsson, hæstaréttarlög- maður og verjandi Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, sagðist hafa átt von á þessari niðurstöðu. „Ég hef haft sannfæringu fyrir því að þessi niðurstaða hlyti að verða. Þetta er gríðarlega stór áfangi í þessu máli því að með þessu er endanlega afgreidd ákæra sem var gefin út 1. júlí árið 2005. Það má segja að þessi Hæstaréttardómur sé endir þess máls.“ „Niðurstaðan kemur mér ekk- ert á óvart“, segir Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður, verjandi Kristínar Jóhannesdóttur. „Um- bjóðandi minn hefur haldið fram sakleysi sínu alveg frá því að rann- sókn málsins hófst og nú er þessu máli lokið.“ Aðalmeðferð hefst í öðru máli 12. febrúar en þá verða teknir fyrir 18 af 19 ákæruliðum sem sérstakur saksóknari fór af stað með. Búið er að vísa einum ákærulið frá þannig að eftir standa ákæruatriði sem varða bókhaldsbrot og brot gegn ákvæðum hlutafélaga. Samkvæmt Gesti er krafist sýknu af öllum ákæruliðunum í þessu máli. Fjögur af þessum sex ákæruat- riðumsneruað meintumlögbrotum við gerð ársreikninga Baugs á ár- unum 1998 til 2001 en eitt þeirra að innflutningi á tveimur bílum til landsins á árunum 1999 og 2000. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari: Sakborningar njóta vafans „Ég tel forsendur dómsins vera mjög traustar og rökstuöninginn vandaðan. Niðurstöðu héraðsdóms er algjörlega snúið við og forsendur um lánveitingar eru byggðar á öðrum skilgreiningum. Ákaeru- valdið er mun sáttara við þennan dóm þó svo ekki sé hægt að fallast á hann að öllu leyti. Til dæmis er fullsannað að ólöglega var staðið að innflutningi bifreiðar á vegum Jóns Ásgeirs og honum var kunnugt um það. Hann er hins vegar látinn njóta vafans þar sem ekki sé fullsannað að mistökin hafi ekki verið gerð af starfsmönnum fyrirtækisins. Hinir ákærðu njóta almennt vafans og við því er ekkert að segja þar sem okkar rétt- arríki byggir á því. Sakborningar eiga að njóta skynsamlegs vafa. Dóm- urinn mun hafa áhrif á fram- vindu mála og almennt tel ég dóminn hafa skýrt mjög vel inntak ársreikningalaga. Hugsan- lega liggur þarna ábending til löggjafar- valdsins um að skilgreina og skýra þann lagabókstaf betur því hann er mun þrengri en fyrirmyndirnar í nágrannalöndunum. Minnsti hluti málsins er búinn og fyr- irliggur endanleg niðurstaða. Að- alhluti málsins, bókhaldsbrot og fjárdráttur, er eftir. Engu að síður tel ég þetta geta haft fordæmisgefandi áhrif á það sem koma skal, með hvaða hætti treysti ég mér ekki til að segja nákvæmlega. Ég er ekki endilega viss um að þetta auki líkurnar á sýknudómi í stærri lið-

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.