blaðið - 26.01.2007, Page 15
blaðið
LÍFLAND
Hækka verð á kjarnfóðri
Lífland mun hækka verð á kjamfóðri um fjögur
prósent og tekur hækkunin gildi 1. febrúar næst-
komandi. Ástæða verðhækkunarinnar er sögð
vera hækkun á verði hráefnis til fóðurgerðar
auk hækkunar á aðflutningsgjöldum.
EIMSKIP
Hækka afgreiðslugjald um 24 prósent
Eimskip hefur ákveðið að hækka gjaldskrá sína fyrir flutninga
um 4,5 prósent, frá og með 1. febrúar næstkomandi. Afgreiðslu-
gjald mun hækka úr 129 krónum í 160 krónur, eða um 24
prósent. Olíuálag mun hins vegar lækka úr 3,74 prósentum í
2,68 prósent vegna lækkunar á olíuverði.
FÖSTUDAGUR 26.
NOKIA
Skilar methagnaði
Finnska farsímafyrirtækið Nokia skilaði tæplega 1,27 milljarða
evra hagnaði á fjórða fjórðungi síðasta árs. Þetta er nítján
prósenta aukning samanborið við sama tímabil árið 2005.
Nokia hefur aldrei skilað meiri hagnaði og má aðallega rekja
tekjuaukninguna til vaxtar markaðar á Indlandi og í Kína.
JA<. 2007 15
ngja á Indlandi:
Dg átu börnin
íkamshlutar fundust í holræsi
Nithari-drápin Málið
hefur vakið mikla
athygli og reiðin hefur
meðal annars beinst
að lögreglu sem sök-
uð er um vanrækslu.
af barnaklæðum á heimilinu.
Mennirnir eru grunaðir um
að hafa nauðgað og myrt fjölda
barna og skorið líkin í sundur að
því loknu. Indverskir fjölmiðlar
hafa greint frá því að Koli eigi
að hafa viðurkennt að hafa lagst
með líkum barnanna til að svala
kynferðislegum þörfum sínum
og lagt suma líkamshluta barn-
anna sér til munns. Við yfir-
heyrslur hefur hann sömuleiðis
lýst yfir sterkri löngun til að
myrða á nýjan leik.
Ibúar í hverfinu þar sem Pand-
her bjó segja að rúmlega fjörutíu
börn hafi týnst í nágrenninu síð-
ustu tvö árin og krefjast sumir
foreldrar fórnarlambanna að
mennirnir tveir hljóti dauða-
dóm. Allt frá því að mennirnir
voru handteknir hafa íbúar í
borginni staðið mótmælavakt
fyrir utan heimili mannsins.
Mikil reiði ríkir á Indlandi
vegna málsins, sérstaklega í
garð lögreglunnar sem sökuð
er um vanrækslu og að hafa
hunsað fjölmargar og ítrekaðar
ábendingar um týnd börn á
síðustu árum. Lögregla er talin
hafa brugðist skyldum sínum,
þar sem flest hinna týndu
barna komu úr fátækum fjöl-
skyldum. Fyrr í mánuðinum var
um tíu lögregluþjónum vikið
frá störfum vegna málsins og
í kjölfarið tók alríkislögreglan
við rannsókn málsins.
Eftir Atla l'slefsson
atlii@bladid.net
Fjölmenni lögfræðinga og mót-
mælenda réðst á indverskan
kaupsýslumann og aðstoðar-
mann hans fyrir utan dómshús
í grennd við Delí á Indlandi
í gær. Mennirnir hafa verið
kærðir fyrir morð á nítján
konum og börnum, en óttast er
að sú tala kunni í raun að vera
hærri. Málið hefur vakið mikla
athygli og reiði almennings á
Indlandi.
Kaupsýslumaðurinn Mon-
inder Singh Pandher missti með-
vitund í árásinni, en mennirnir
voru báðir fluttir á sjúkrahús og
er ástand þeirra sagt vera stöð-
ugt. Fjölmiðlar sýndu myndir
frá árásinni á mennina í gær,
þar sem rifið var í hár auk þess
sem hnefahögg og spörk dundu
á sakborningunum. Á myndum
sést einnig hvernig lögregla
reynir eftir fremsta megni að
vernda þá fyrir frekara ofbeldi.
Pandher og Surendra Koli,
aðstoðarmaður hans, voru
handteknir í lok desember síð-
astliðins eftir að höfuðkúpur og
líkamshlutar fundust í holræsi
fyrir utan heimili Pandhers
í Nithari, úthverfi Delí. í kjöl-
farið hófst mikil leit í húsi og
garði kaupsýslumannsins þar
sem mikið magn líkamsleifa
fannst. Auk þess fannst talsvert
Slökkviliö höfuðborgarsvæöisins:
Bæklingar á sjö tungum
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
hefur gefið út bæklinga þar sem
fjallað er um grunnatriði eldvarna á
átta tungumálum. Auk íslensku eru
leiðbeiningarnar á ensku, spænsku,
taílensku, rússnesku, pólsku, lithá-
ísku og serbnesku og var það Alþjóða-
húsið sem sá um að þýða efnið.
Markmiðið með útgáfu bæk-
linganna er að koma upplýsingum
til innflytjenda og útlendinga
sem starfa hér á landi í lengri eða
skemmri tíma. Að sögn Jóns Viðars
Matthíassonar slökkviliðsstjóra var
útgáfa efnisins löngu orðin tímabær.
,í könnun frá Brunamálastofnun
kemur fram að brunavarnir hjá Is-
lendingum eru ekki góðar og þær
eru einna slakastar á höfuðborgar-
svæðinu. Ef eitthvað er hallar á er-
lenda gesti hvað eldvarnir varðar
og svo eru einnig þjóðir sem vita
ekki hvað reykskynjari er þar sem
það tilheyrir ekki þeirra menn-
ingu. Við vitum að eldvarnir sem
kosta lítið geta bjargað svo miklu og
þess vegna förum við út í að gefa út
þessa bæklinga til að ná til sem allra
flestra," segir Jón Viðar.
Samgöngumál til betri vegar:
Vestfirðir lagaðir
Skrifað hefur verið undir samn-
ing um byggingu vega og brúa á
Vestfjörðum sem hljóðar upp á
milljarð króna. Er samningurinn
einn sá stærsti sem Vegagerðin
hefur gert að undanförnu.
Það voru verktakafyrirtækin
KNH ehf. og Vestfirskir verktakar
ásamt Sturlu Böðvarssyni sam-
gönguráðherra og Vegagerðinni
sem gerðu samninginn en sam-
kvæmt honum munu þrjár brýr
rísa; í Mjóafirði, Reykjafirði, og við
Vatnsfjarðarós. Þá mun bundið slit-
lag liggja frá Bolungarvík til Hólma-
víkur eftir Djúpveginum svokall-
aða en einnig verður bundið slitlag
lagt milli Reykhólasveitar og Stein-
grímsfjarðar. Bílferðin milli Isa-
fjarðar og Reykjavíkur þá leiðina
verður þá heilum 42 kílómetrum
styttri en leiðin um Strandir og
Holtavörðuheiði, sem ætti að gleðja
margan Vestfirðinginn.
Landhelgisgæslan:
Fjórða þyrlan komin
Landhelgsigæslan hefur loks
fengið fjórðu þyrluna senda til
landsins, en töluverðar tafir
urðu á komu hennar frá London
þar sem hún var í yfirhalningu.
Hefur þyrlan, sem kom til lands-
ins í fyrradag, hlotið nafnið
TF-EIR.
Georgs Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að
þyrlan komi til með að nýtast
vel enda sé hún sérhæfð til björg-
unar- og leitaraðgerða. Hann
segir að með tilkomu nýju þyrl-
unnar standi vonir til að fram-
vegis verði ávallt tvær vélar til
taks í það minnsta. Á hann von
á því að vélar Gæslunnar ráði
við öll möguleg tilfelli sem upp
kunna að koma.
Muuga-máliö dregst á langinn:
Kostnaður óljós
Sigurður Valur Ásbjarnar-
son,bæjarstjóri Sandgerðis,
hefur fengið nóg af sjónlýtinu
Wilson Muuga og vill skipið burt
sem fyrst. Sandgerðisbær hefur
sett lögfræðinga í málið og segir
Sigurður óásættanlegt að skipið
verði þarna mikið lengur.
„Þessi fjara er á náttúruminja-
skrá og fuglalífið þarna er ein-
stakt. Við sættum okkur ekki
við að skipið fái að sitja þarna
til lengdar án þess að nokkuð
verði gert. Okkur er í raun sama
hver ber ábyrgð á kostnaði við
hreinsun og niðurrif, við viljum
bara að hjólin fari að snúast
svo lausn fáist sem fyrst," sagði
Sigurður.
Samkvæmt dr. Guðmundi Sig-
urðssyni, prófessor við lagadeild
Háskólans í Reykjavík, bera eig-
endur skipsins, Nesskip, aðeins
takmarkaða ábyrgð í málinu.
,íslensku siglingalögin virðast
standa lögum um verndun hafs
og stranda framar hvað þetta
varðar. Því þurfa Nesskip, eða
tryggingafélagið öllu heldur, að-
eins að greiða þá upphæð sem
nemur hreinsuninni, um 70
milljónir, þó vitað sé að kostn-
aðurinn við að fjarlægja skipið
sé mun hærri. Tryggingafélagið
getur aðeins farið eftir þeim
reglum sem gilda í hverju landi,
sem er svo sem skiljanlegt. Það
er í raun ósamræmi laganna sem
þarna er við að sakast,“ segir dr.
Guðmundur.