blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 45

blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 45
blaðið LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 45 Skjár einn, mánudag klukkan 21.00 Upprisa hetjanna Pættirnir Heroes hafa svo sannarlega hitt í mark hjá heimsbyggðinni og eru vinsældir þáttanna með ólíkindum. (þáttunum er fylgst með hópi fólks víðsvegar um heim sem áttar sig á því að það hefur yfirnáttúrulega hæfileika. Örlögin leiða fólkið saman á endanum en fyrst verður þetta fólk að átta sig á því hvort þessir hæfileikar eru blessun eða bölvun. í þætti kvöldsins er komið að skólahátíðinni hjá Cla- ire og pabbi hennar reynir allt sem hann getur til að stöðva illmennið sem er á eftir dóttur hans. Nathan hefur uppi á málverkinu sem Peter þarf til að bjarga klappstýr- unni og um leið heiminum. Mohinder fær aftur áhuga á rannsóknum föður síns og Micah reynir að bjarga Niki. Á meðal leikara í þáttunum eru Ali Larter, Greg Grunberg, Masi Oka, Hayden Panettiere og Milo Ventimiglia. Stöð 2, sunnudag klukkan 21.10 Skelfilegur sólarhringur Spennuþættimir 24 eru marg- faldir Golden Globe- og Emmy- verðlaunaþættir og nú snýr Jack Bauer aftur f sjöttu þáttaröðinni sem sögð er sú mest spennandi til þessa. Hvað varð um Jack eftir að honum var rænt af kínversku sendisveitinni? Hvert var farið með hann? Og hvernig kemst hann undan? (sjöttu þáttaröðinni hefst enn einn örlagaríkur sólarhringurinn (lífi mikilvægasta leyniþjónustu- manns og hryðjuverkasérfræð- ings heimsins og enn og aftur er öryggi bandarísku þjóðarinnar og framtíð mannkynsins í hans höndum. í kvöld reynir á fjölskylduhollustu Jacks og Morris fær slæmar fréttir um ættingja sinn. Sem fyrr er það Islandsvinurinn og glaumgos- inn Kiefer Sutherland sem fer með hlutverk Jacks Bauer sem er án efa einn harðasti nagli sem sést hefur á sjónvarpsskjánum. Þættirnir eru stranglega bannaðir börnum. Sirkus, sunnudag klukkan 22.00 Borist á banaspjót Behind Enemy Lines er spennumynd í hæsta gæðaflokki sem gerist á stríðshrjáðu landsvæði Balkanskagans. Siglingafræðingurinn Leslie Reigart og félagi hans Stackhouse eru skotnir niður af óvinum og handteknir. Þeir sæta harðri meðferð og virðast ekki eiga afturkvæmt. Yfirmaður þeirra leggur allt í sölurnar til að bjarga þeim en innan hersins eru ekki allir jafn skilningsríkir þegar kemur að slíkri aðgerð. Þá hefst hörð barátta upp á líf og dauða þar sem spennan er allsráðandi Með aðalhlutverk fara Owen Wilson, Gene Hackman og Gabriel Macht. Myndin er stranglega bönnuð börnum. Stöð 2 bíó, mánudag klukkan 22.00 Einu sinni var í Mexíkó Once Upon a Time in Mexico er sannsögulegur spennuhasartryllir þar sem græðgi og hefnd eru í fyrirrúmi. Eiturlyfja- kóngurinn Barillo áformar að steypa ríkisstjórninni í Mexíkó og taka völdin. En það eru mörg Ijón á veginum. Hinn spillti Sands, erindreki banda- riskra stjórnvalda, er einn andstæðinga hans og fær El Mariachi til að skerast [ leikinn. Sá ferðast um með gítartösku sem hættir til að villa mönnum sýn. El Mariachi er nefnilega sérfræðingur í að ryðja mönnum úr vegi. Myndin skartar flottum byssubardögum, spreng- ingum og fögrum fljóðum, það gerist varla betra. Með aðalhlutverk í myndinni fara margir af flottustu leikurum Hollywood en þar nægir að nefna leikara á borð við Antonio Banderas, Salma Hayek, Johnny Depp, Mickey Rourke og Evu Mendes. Myndin er stranglega bönnuð börnum. Miðasala i sima 551 1200 og á www.leikhusid.is iheilsa gott BARNA VIT Náttúfulcg vítamin og steinefni fyrir börn til aö tyggja cöa sjúga 120 toflur Bragðgóðar vítamíntöflur fyrir börn og unglinga “^heilsa ?am i\Y nensa ^oA\icr -hafðu það gott |[wö.^d]| Þarftu að koma jafnvægi á blóðsykurinn? Zhena s Gypsy Tea er góð leið til þess TILBOÐ 20% afsláttur hjá næsta söluaöila Englatár - www.englatar.is - 551 8686 áföstudögum ■ Landsbankinn I tilefni 120 ara afmælis Landsbankans fá Námufétagar 35% afslátt af miðaverði á allar sýningar gegn framvísun Námukortsins. þ.l()f)LF.lKHl SID Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeili sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.