blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 40

blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 40
LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 Ein af hverjum fimm klámmynd Bandaríkjamenn leigja rúmlega 800 milljónir klámmynda á DVD árlega. 3,6 milljaröar „venjulegra" kvikmynda eru leigöir út árlega sem þýöir að nánast ein af hverjum fimm útleigðum myndum er klámmynd. i blaðið Margir horfa á klám [ könnun sem gerö var í Bandaríkj- k unum árið 2002 viðurkenndi einn i af hverjum fjórum að hafa horft á klámmynd það ár. Asia Carrera er móöir, gáfnaljós og klámmyndaleikkona Hamingjusama klámstjarnan Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net ,Dag einn var ég beðin um að þjóna ber að ofan til borðs í einkasam- kvæmi fyrir íoo dollara laun. Það voru miklir peningar fyrir mig á þess- um tíma, svo ég samþykkti það. Ég drakk í mig kjark og áður en ég vissi af var ég dansandi uppi á barborði ásamt fatafellum sem ráðnar voru í samkvæmið. Ég græddi heilmikið á essu og kom heim með 300 dollara. g var gáttuð, aldrei á ævi minni hafði ég þénað jafn mikla peninga.“ Svona voru fyrstu skref Idám- stjörnunnar Asia Carrera inn í iðnað klámsins. í dag segist Carrera ham- ingjusöm móðir og á að baki farsæl- an feril í klámbransanum sem telur fleiri en 270 klámmyndir á síðastliðn- um þrettán árum. íslensk hystería I kjölfar fregna í fjölmiðlum um að hópur fólks úr klámiðnaðinum hygðist gista á Hótel Sögu varð mikil umræða hérlendis um klám. Allir stjórnmálaflokkar landsins, borgarstjórn, þjóðkirkjan, Stígamót og ýmiss félög fordæmdu það að halda ætti klámráðstefnu í Reykjavík og eftir mikinn þrýsting ákváðu eigendur Hótel Sögu að banna fólkinu á gista á hótelinu. Fáir risu upp kláminu til varnar. I DV í gær líkir Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, umræðunni við íslenska hysteríu. Svo virðist líka sem þjóðin hafi ekki endilega verið sammála viðbrögðum pólitíkusanna því könnun Fréttablaðsins sem birt var á þriðjudaginn sýnir að 61 prósent landsmanna taldi það ekki hafa verið rétt af Hótel Sögu að vísa gestum klámráðstefnunnar frá. Það er alveg ljóst að klámið á sýnar dökku hliðar en það er líka til fólk sem segist hamingjusamt með að starfa í klámbransanum. Klámstjarnan Asia Carrera er dæmi um það. Greindarvísitala upp á 156 „Ég átti mjög auðvelt með nám á mínum yngri árum,“ segir Carr- era á vefsíðu sinni í grein sem hún kallar „Af hverju ég er í klámbrans- anum jafnvel þó ég hefði getað gert hvað sem ég vildi“. „Foreldrar mín- ir vildu að ég færi í Harvard-háskól- ann og yrði læknir eða lögfræðing- ur. Ég vildi spila á píanó og hanga með vinum mínum.“ „Ég er í skemmtilegrí vinnu sem veitir mér tíma og fjármagn til að gera allt sem ég elska að gera, eins og að spila á píanó, teikna, skrífa og vinna að vefsíðunni minni“ Asia Carrera er með greindarvísi- tölu upp á 156. Hún er meðlimur í MENSA, sem eru alþjóðleg 100.000 manna samtök einstaklinga með greindarvísitölu sem aðeins 2 pró- sent geta státað sig af. „Ég var lokuð inni í herberginu mínu fyrir hvert B sem ég fékk á prófi og tuskuð til fyrir allt lægra en það,“ segir Carrera. „Foreldrar mín- ir trúðu á gamaldags strangar upp- eldisaðferðir og bjuggust við miklu af mér.“ Carrera strauk að heiman þegar hún var 17 ára gömul. Hún gisti þar sem hún gat og reyndi að vinna fyr- ir sér. Vinir hennar skutluðu henni í skólann og hún bað þá um að færa sér Dorritos-snakk að borða. Þann- ig var líf hennar þar til yfirvöld komu henni fyrir hjá fósturforeldr- um. Þaðan strauk hún þegar hún varð 18 ára. Sendi myndir af sér í klámtímarit Hún fékk vinnu á bar og var boð- ið að þjóna ber að ofan í einkasam- kvæmum, sem hún gerði. Ekki leið á löngu þar til hún var farin að starfa sem fatafella. „Ég vann sjö daga vikunnar, spar- aði að lágmarki 1.000 dollara á viku og fjárfesti í ýmsum sjóðum," segir Carrera. „Ég var orðin ein af hæst launuðu fatafellunum í New Jersey. Ég leitaði að leið til að fá meira borg- að og fann út að stelpurnar sem léku í klámmyndum og sátu fyrir í tíma- ritum fengu mun betur borgað en venjulegir „stripparar“ eins og ég.“ Carrera sendi myndir af sér í öll helstu klámritin á markaðnum og fékk á endanum boð um að sitja fyrir í tímaritinu Club. „Ég var send til ljósmyndara í New York sem end- aði með að taka myndir af mér í öll stærstu klámtímaritin," segir Carr- era. „Ég bað hann um að vísa mér á einhvern í klámkvikmyndabrans- anum og hann benti mér á Bud Lee, leikstjóra í Los Angeles.“ Hún hringdi í Lee sem bauð henni að taka þátt í gerð tveggja klámmynda. „Mér líkaði vel við að leika í þessum myndum,“ segir hún. Frá þessum degi hefur Asia Carrera leikið í fleiri en 270 klámmyndum, leikstýrt fjór- um og skrifað handrit að sex. Sjóður fyrir heimilislaus börn „Ég veit að sum ykkar halda að ég sé að sætta mig við minna en ég hefði getað orðið í lífinu,“ segir Carrera. „En ég hef aldrei verið ham- ingjusamari og ég lít ekki svo á að NEFÚÐI HÁLSTÖFLUR VERKJALYF FRUNSUKREM Það er engin ástæða til að láta sér liða illa. Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur. VLýf&heilsa Við hlustum! Vedavir krem er áhnfarikt tyf til meðterðar á fnrnsu af völdum Hetpes Simplex. Vectaw virtsar á ölkim stiQum frunsunnar frá sting eða æöasláttar til bBðni, I Vectavir er virka efnlð pendklávír sem stöftrar framgang veininnar. Vectavir er ællaö fullorönum og bómum eldri en 12 ára. Barið Vbctavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti 14 daga. Berid á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er, Dæmigert er að fríjnsa komi Iram ví ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli söl (t.d. á sklðum). Ekkiáaðnotalyfiðetaðáður hefur komið fram ofnæmi fyrir penaktðvír, famcklðvir eða ððrum inmhaldsefnum. Með Vectavir grar frunsan braðar, verkir mirmka og smllími styttist Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem böm hwrkl ná trl né sjá. Otrtvln nelúðlnn og nefdropamir innihalda xýtómelasölin sem vmnur gegn bölgu, nefsöflu og slimmyndun vegna kwfs og bráðrar bólgu i ermis- og kmnholum. Otrivin virkar fljðtl og áhrlfln vara í 6-10 klst. Otrivin getur vakfð aukaverkunum, s.s. ertingu í stímhúð og svtóatslftrrntngu Einnig ógieði og htfuðverk. Otrhnn má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Vaníð: Langtimanotkun Otrivin getur leitttil þurrks I nefsímhúð. Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæml fyrir xýfómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Kytmið ykkur vel leiðbeinlngar sem fyfgja lyfinu. Geymið þar sem böm hvorki ná til né sjá. Strepsk töflur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt mp. Þannig nést fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess bafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafla látin leysast hægt upp í munni á 2-3 Idst fresti. Lyfið þarf venjuiega að nota i 3-4 daga og stundum (allt að elna viku. Bnnig má leysa upp t -2 töflur i heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins hefur engin áhrtt á önnur lyf sem notuð eru samb'mis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgasf. Hver pakki af Strepsils innihetdur 24 munnsogstoflur, sem etu I hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar leiðbeiningar á Islensku um nolkun lyfsins, sem gott er að kynna sér vel. Geymið |ár sem böm hvorki ná 61 né sjá. Voltaren Ooto® (diklófenak kaíum) 12,5 mg töflur. Nrkaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpinu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugamarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfera sig við lækni áður en lyfð er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýnj, ibuprófen eða önnur bólgueyðandi iyf eða exu með astma eiga ekki að nota ttoltaren Ddo®. Notiö lyfið ekki á meögöngu nema f samráöi við lækni, en akfrei á siöasta Þnðjungi meðgöngu. Leitið ráða læKnis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önmff lyí. Lesa skai vanöega leiðbeiningar á umbúðum og fyfgiseðii. Geymið þar sem bðm hvorki ná 61 né sjá. X. V Lb I ■ ■ ■ Asia Carrera Klámstjarna með greindarvísitölu upp á 156. ég sé að „sætta mig við“ neitt. Ég er í skemmtilegri vinnu sem veitir mér tíma og fjármagn til að gera allt sem ég elska að gera, eins og að spila á píanó, teikna, skrifa og vinna að vef- síðunni minni.“ Þegar hún hættir kláminu segist hún ætla að einbeita sér að móðurhlutverkinu og verð- bréfamarkaðnum. „Eftir að ég dey mun ég skilja eftir mig hjálparsjóð fyrir heimilislaus börn svo að lítill hluti af mér mun lifa að eilífu,“ segir klámstjarnan, móðirin og gáfnaljós- ið Asia Carrera. áföstudögum blaði Auglýsingasíminn er 510 3744

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.