blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 35

blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 35
blaðið LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 35- helgin@bladid.net Eyjastemning í Smáralind Vestmannaeyingar leggja undir sig Smáralind í dag þar sem slegið verður upp sýningu undir yfirskriftinni „Eyjan okkar". Þar munu fyrirtæki í Vestmannaeyj-^ um kynna vörur sínar og þjónustu. Um kvöldið verður síðan brekkusöngur í Vetrargarðinum þar sem eingöngu listafólk frá Eyjum kemur fram. Raggi Bjarna og Eivör 4 Söngvararnir Ragnar Bjarnason og Eivör Pálsdóttir leiða sam- an hesta sína á tónleikum í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Þeim til halds og trausts verður stór hópur hljóðfæraleikara úr Sinfón- iuhljómsveit Islands og 60 manna kór, Selkórinn. Mynd/Eyþór Geisladiskur og tónleikar til styrktar Árna Ibsen Styrktartónleikar fyrir Arna Ibsen Kári Árnason tónlistarmaöur gefur út sinn fyrsta disk og heldur tónieika til styrktar föður sínum, leikskáldinu Árna Ibsen, í Þjóöleikhúsinu (Kassan um) í dag kl. 17. w-....... Enginn dinnerdjass Æ ári Árnason tónlistar- /i/ maður sendir frá sér A'* geisladiskinn Or skel I ' / ^ í dag og í tilefni útgáf- k/ %iunnar verður efnt til tónleika í Þjóðleik- 'Wj. húsinu (Kassanum) í xMag kl. 17. Allur ágóði af tónleikunum og sölu geisladisks- ins rennur í umönnunarsjóð Árna Ibsens, leikskálds og rithöfundar, en hann er faðir Kára. Úr skel er fyrsta plata sem Kári gefur út og á henni fær hann með sér einvala lið hljóðfæraleikara. Sjálfur leikur hann á trommur, Sig- urður Flosason leikur á altsaxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel. „Ég hef lengi ætlað mér að taka upp plötu með þessum mönnum enda höfum við spilað reglulega saman frá 2002,“ segir Kári. Ægir öllu saman Hver þeirra leggur til tvö lög á plötuna og segir Kári að hún verði frekar fjölbrey tt fyrir vikið. „Bakgrunnur okkar flestra er í djassmúsík og við höfum náttúr- lega alltaf verið að spila djass sam- an en það getur svo margt fallið ,Þetta er enginn dinner- djass. Það erkannski hægt að orða það þannig að það geti verið meiri kraftur í bandinu. “ undir djass. Þarna er hefðbundin djassballaða eftir Sigga og blús eft- ir Ómar sem er kannski ekki hefð- bundinn blús eins og flestir þekkja hann. Þarna er fönklag eftir mig og lag eftir Agga sem er dæmigert cool- djasslag. Það ægir öllu saman,“ segir Kári og bætir við að það hafi ekki verið markmið í sjálfu sér heldur hafi það gerst óvart. „Þetta er enginn dinnerdjass. Það er kannski hægt að orða það þann- ig að það geti verið meiri kraftur i bandinu. Það hefur þann mögu- leika að vera mjög kraftmikið og líka að fara mjög lágt. Þetta er mjög dýnamískt band,“ segir Kári. Til styrktar Árna Ibsen Allur ágóði af sölu plötunnar og tónleikunum í dag rennur í umönn- unarsjóð Árna Ibsens, föður Kára. „Hann fékk mjög slæmt heilablóðfall fyrir rúmum tveimur árum og er mjög veikur. Tilgangurinn er að búa til sjóð, einhvers konar fjárhagslegt öryggi sem gæti nýst honum. Hann hefur verið sjálfstætt starfandi í ein tólf ár núna og þessi sjóður verður eins konar baktrygging fyrir hann,“ segir Kári. „Áður en ég fór að taka upp þessa plötu velti ég fyrir mér hvað ég gæti gert við hana og til hvers ég ætti að gefa hana út. Það er svo sem nóg til af músík í heiminum og nóg til af góð- um plötum þannig að mér fannst það vera góður tilgangur að selja hana til styrktar honum og skapa sjóð í tengsl- um við það sem væri þá hægt að nýta honum til framdráttar,“ segir Kári sem er ánægður með að geta nýtt krafta sína með þessum hætti. „Ég bý líka svo vel að starfa með þessum mönnum og þeir eru tilbún- ir að koma svona ærlega inn í þetta. Þeir gefa alla vinnu sina á þessari plötu, koma með lög og taka enga greiðslu fyrir á tónleikunum. Það er ekkert sjálfsagt mál að menn geri þetta,“ segir Kári og bendir á að í Þjóðleikhúsinu hafi einnig allir verið af vilja gerðir enda vann faðir hans árum saman í leikhúsinu. einar.jonsson@bladid.net Landnámssýning opnuð á ný Landnámssýningin 871 +/- 2 í Að- alstræti 16 verður opnuð að nýju i dag en síðasta áfanga við forvörslu hennar hefur nú verið lokið. Á sýn- ingunni er miðlað fróðleik um lífið á landnámsöld og möguleikar marg- miðlunartækninnar nýttir með nýstárlegum hætti. Þungamiðja sýn- ingarinnar er rúst af skála frá land- námsöld sem fannst við fornleifa- uppgröft árið 2001. Rústin hefur nú verið forvarin og mun því væntan- lega varðveitast um ókomna tíð. Opið er alla daga frá kl. 10-17. Leiðsögn er á fimmtudögum kl. 12.15 og sunnudögum kl. 14 en á ensku á mánudögum og laugardög- um kl. 14. Hægt er að fá leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum eftir samkomulagi. Landnámsskálinn opinn Land- námssýningin i Aðalstræti 16 hefur veriö opnuö á ný. MyM. UM HELGINA Helena í hálfa öld Tónleikar í tilefni hálfrar aldar söngafmælis Helenu Eyjólfsdóttur verða haldnir í Salnum (Kópavogi annað kvöld kl. 20. Helena syngur ásamt úrvali íslenskra tónlistar- manna og söngvara. Sérstakir gestir verða Ragnar Bjarnason og Þorvaldur Halldórs- son. Tónleikar Emilie Simon Franski tónlistarmaðurinn Emilie Simon heldurtónleika í Háskóla- bíói í kvöld kl. 20. Tónleikarnir eru í tengslum við frönsku menningar- hátíðina Franskt vor á (slandi. Útgáfutónleikar Miriam Óskarsdóttir og Jakobs halda tónleika í tilefni útgáfu disksins „Þó hryggð sé í hörp- unni hér“ í Fella- og Hólakirkju í dag kl. 20. Flutt verða lög af disknum auk annarra laga. Tangó á Borginni Luca Lamberti, kennari í argent- ínskum tangó, verður með nám- skeið í Gyllta salnum á Hótel Borg á morgun. Um kvöldið kl. 21.15 verður haldin Milonga á sama stað. Dagur tónlistarskól- anna. Tónlistarskólinn á Akureyri heldur dag tónlistarskólanna hátíðlegan í dag með tónleikum í Ketilhúsinu. Dagskráin hefst kl. 11 og stendur fram eftir degi. Alls verða sex tón- leikar haldnir á klukkutíma fresti. Óskar Nemendatónleikar Nemendatónleikar Tónlistarskól- ans í Reykjavík verða í Norræna húsinu í dag kl. 14. Fluttar verða útsetningar á erlendum þjóð- lögum. Enginn aðgangseyrir. Náttúran í strengjum Hannes Guðrúnarson gítarleikari og Elísabet Waage hörpuleikari koma fram á tónleikum í Salnum í Kópavogi í dag kl. 13. 90's-parti Vinsælustu lög tíunda áratugarins fá að hljóma á skemmtistaðnum Nasa í kvöld þar sem DJ Kiki-Ow og Curver halda eitt af sínum frægu 90’s-partíum. *- Kvikmyndasýning í MÍR Rússneska kvikmyndin „Aum- ingja vesalings Páll“ verður sýnd í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105, á morgun, sunnudag, kl. 15. Myndin fjallar um valdatíma Páls fyrsta Rússakeisara sem tók við af móður sinni, Katrínu miklu, er hún lést 1796. Myndin er sýnd með enskum texta. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn um sýningu Hafþór Yngvason, safnstjóri Lista- safns Reykjavíkur, verður með leiðsögn um sýninguna Foss á Kjarvalsstöðum á morgun, sunnu- dag, kl. 15. t Bumban burt Átta vikna átaksnámskeið fyrir karla sem vilja ná árangri. Ný námskeið hefjast 5. mars. Við erum byrjuð að bóka nú þegar. HREYFI GREINING SJ Ú KRAÞJÁLFÚ N OG LÍKAMSRÆKT Höfðabakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is ® töf ramassSnn Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt Fyrir Ótrúlega góður árangur Svampur fylgir með Eftir Hreinsar, fægir og verndar samtímis. Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfrfu stáli, silfrl, áli, gulli, kopar, messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni ofl. ofl. Sölustaðir: Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup Verslanír Rönning - Miðstöðin Vestmannaeyjum Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Verkfæralagerinn Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.