blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 17
blaöið
LAUGARDAGUR 3. MARS 2007
17
Hefur nóg
Nadia Katrín Banine er með glæsi-
legri konum á íslandi. Hún er einn
þriggja stjórnenda Innlits/Útlits á
Skjá einum, starfar sem flugfreyja
hjá Icelandair, sækir æfingar hjá Is-
lenska dansflokknum og sinnir sam-
býlismanni ásamt tveimur börnum.
Hún varð fertug á árinu. Er þetta
ekkert lýjandi?
„Jú, það getur verið það stundum.
Það eru aðallega langar flugfreyju-
vaktir sem taka á, en það gefur
manni líka frelsi inni á milli. Það
getur líka verið mikið stress að
breyta heilu íbúðunum á einum
degi einsog við gerum í Innlit/Útlit-
þættinum, en á móti kemur að það
er óskaplega gaman að vinna svona
skapandi starf. Síðan heldur maður
sér í formi með því að æfa með dans-
BLOGGARINN .
Af Framsókn...
„Framsóknarflokkurinn er fremur
ógeðfelldur þessa dagana. Hann
lætur eins og allt það vonda sem
rikisstjórnin hefur útdeilt þjóðinni
komi honum ekkert við; hann lætur
eins og hann sé nýtt og ferskt afl
í stjórnmálum, flekklaust og án
skuggalegrar fortíðar. Sorrí krakkar,
það verkar á mig eins og einhver sé
að æla ofan í kokið á mér. [...] Hvurn
djöfulinn sjálfan hefur þessi ómerki-
lega flokksdrusla verið að gera ann-
að með íhaldinu en að taka auðlindir
frá almenningi og einkavæða þær?
Ha? Framsókn verður að gera annað
og meira en að hreinsa kúkinn úr
bleiunni til að vera
sannfærandi í iðrun
sinni; hvernig væri
t.d. almennileg
píslarganga með
svipuhöggum og
öllu sömlu?"
Björgvin Valur
http://sludrid.blog-city.com
... Samfylkingu...
„Enn virðist Samfylkingin ætla að
raða dagskránni sinni í samkeppni
við flokksþing annarra flokka, þvert
gegn öllum hefðum sem hafa tíðk-
ast í islenskum stjórnmálum. Fyrst
fundaði kvennahreyfing flokksins á
sama tíma og Vinstri græn og um
helgina er efnt til fundar á morgun
og ókeypis bíósýningar í Háskólabíói
um sömu helgi og Framsóknarflokk-
urinn efnir til flokksþings síns. Frægt
er þegar orðið að Samfylkingin hefur
fært landsfund sinn og hyggst nú
halda hann sömu helgi og lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins fer fram,
eða um miðjan næsta
mánuð. Þetta heitir
væntanlega að
treysta tengslin og
byggja brýr milli
flokka á máli Samfylk-
ingarinnar."
... og Vinstri
grænum...
„Ekki er sopið kálið þótt íausuna sé
komið hjá Vinstri grænum. Eru þeir
ekki ísvipaðri stöðu og Borgaraflokk-
urinn og Þjóðvaki voru tveimur mán-
uðum fyrir skoðanakannanir á sinum
tíma? Ég man ekki betur. Það var nú
ekki mjúk lendingin hjá þeim flokkum,
sem „fóru með himinskautum" og
ég spái þvíað það gangi illa að opna
vinstri grænu fallhlífina næstu vikur.
Óskhyggja? Kemur í Ijós en ég mun
éta hattinn hennar Salóme Þorkels-
dóttur ef VG fær 24%
12. maí. Úthringing-
um var lokið þegar
landsfundurinn hófst
meö netlöggunni og
því öllu. Það verður
athyglisvert að sjá
Gallup-könnun-
ina í næstu viku.“
ij Pétur Gunnarsson
\ ' 1
1 http://hux.blog.is
fyrir stafni
flokknum á morgnana, það er ómet-
anlegt. Reyndar kitlar alltaf að stíga
á sviðið aftur og ég vona alltaf innst
inni að ég sé ekki alveg hætt í dans-
inum,“ segir Nadia.
Nadia Katrín var á listnámsbraut
í Iðnskóla Hafnarfjarðar. Hún segir
námið góðan undirbúning fyrir alla
hönnun.
„Þetta var alveg frábær skóli. Ég
hitti akkúrat á það sem hentaði mér
og ég man varla eftir að hafa tekið
frímínútur! Námið nýtist síðan vel í
því sem ég er að gera í Innliti/Útliti
en maður stefnir alltaf á meira nám,
það kemur bara betur í ljós síðar.“
Nadia er næstyngst úr hópi fjög-
urra systkina. Hún á ættir að rekja
til Marokkó en segist aldrei hafa
orðið fyrir aðkasti vegna þess.
„Nei, aldrei. Auðvitað fann maður
stundum að það væri horft á mann
og að maður væri öðruvísi en hinir
krakkarnir en mér var aldrei strítt
neitt að ráði. Ég hef einu sinni heim-
sótt Marokkó og fannst það æðislegt.
Ég hitti bróður pabba og fjölskyldu
hans, en ég hef aldrei hitt ömmu
mína í föðurætt. Hins vegar langar
mig mikið til að fara þarna út aftur,“
segir Nadia.
En aftur að hönnun. Finnst Nadiu
íslendingar ekkert of yfirborðs-
kenndir og hégómagjarnir?
„Við erum mjög nýjungagjörn auð-
vitað og fljót að tileinka okkur tækni
og tísku. Þetta hefur allt sína kosti
og galla en líklegast vinnum við að-
eins of mikið til þess eins að taka
þátt í lífsgæðakapphlaupinu. Það er
auðvelt að sogast inn í þessa hring-
iðu en fyrir þá sem minna hafa milli
handanna er vert að minna á að ekki
er alltaf nauðsynlegt að kaupa allt
nýtt. Stundum er hægt að staldra
við og endurnýta hlutina með smá
kænsku og handlagni,“ sagði Nadia
að endingu.
Tilbúinn fyrir
útivistarfólkið!
799 þús.
Afborgun á mánuði*
kr. 19.676
Suznki Swift 4x4
Á SUZUKI
...er lífsstíll!
r jU|]
j i
ÍLAR HF. f K *
mi 568 5100.