blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 blaöið - n, ,,, Braggablús HAUSTIÐ 1946 GENGU TV ANDI 0G RUPLANDI UIV NUTU AÐSTOÐAP Það var haustið 1946 að Magnús Aðalsteinsson, Hörður Valdimars- son og Þórarinn Sigurðsson komu sér saman um að fara í yfirgefið her- skálahverfi í Fossvogi og taka það- an einhver verðmæti. Magnús fékk lánaðan vörubíl til fararinnar og ók honum. Eftir að þeir komu í her- skálahverfið fóru þeir í þrjá ólæsta skála í hverfinu og tóku þaðan þrjá olíukynta baðvatnsofna, þrjú súrefn- ishylki og eitt element úr lofthitara. Þýfið fluttu þeir heim til Harðar. Herði og Magnúsi tókst að selja ofnana fyrir 1200 krónur sem þeir skiptu á milli sín. Nokkru síðar fór Hörður í skála- hverfi við Einarsstaði - en búið var að yfirgefa skálana - og hafði það- an með sér klósettskál og fór með heim til sín. Á svipuðum tíma fóru Magnús, Hörður og Þórarinn í Tríp- ólíkamp en þá var herinn við það að yfirgefa hverfið og komust þeir inn í ólæstan verkstæðisskála. Þaðan höfðu þeir á brott með sér varahluti í bíla. Varahlutina fluttu þeir heim til Harðar. Þeim tókst að selja þýfið fyrir 1100 krónur og af því fékk Þór- arinn 300 krónur, hinu skiptu Hörð- ur og Magnús jafnt á milli sín. Þeir fóru aftur í Trípólíkamp. Nú voru aðeins Hörður og Magnús að verki. Þeir komust inn í sölubúð hersins en hurðin var læst með hengilás sem þeir sneru í sundur. í búðinni fundu þeir peningakassa sem þeir tóku. Þeir fóru með kass- ann niður í fjöru og brutu hann upp. í honum reyndist vera á þriðja hundrað dollara sem þeir skiptu á milli sín. Þeir hentu kassanum í sjóinn. Þeim fannst vel hafa tek- ist til, höfðu samband við Þórarin og ætluðu að fara strax aftur og freista þess að komast yfir frekari verðmæti. Þegar þeir vöktu Þórar- in var klukkan milli tvö og þrjú að nóttu. Þórarinn var reiðubúinn og þremenningarnir áttu greiða leið í sölubúðina. Þar tóku þeir útvarps- tæki, tóbak, sápu, nokkrar reykjar- pípur og fleira. Góssinu skiptu þeir milli sín. Haldið áfram Þeim hafði tekist að stela talsverð- um verðmætum frá hernum og því lá beinast við að halda áfram. Her- inn var við það að yfirgefa Camp Knox en þangað fóru Hörður og Magnús um nótt. Þeir klipptu gat á girðingu og komust inn á svæðið. Þeir fóru rakleiðis að íshúsi sem var læst með hengilás sem þeir sneru i sundur. Þeir tóku með sér þaðan tvo kassa af kjöti og tvo af eplum. Þeir sáu að auðvelt myndi að stela meiru og fóru enn og aftur heim til Þórar- ins og sögðu honum frá því hvað þeir hefðu verið að gera. Þórarinn var til- búinn til að taka þátt i að stela meiru en nú hafði hann ekki bíl. Hann fór til Hinriks Ragnarssonar og bað hann að aðstoða sig og félaga sína við að flytja varning sem þeir höfðu keypt af hermönnunum. Hinrik féllst á það. Hann lagði bílnum við girðinguna og beið þar meðan hinir þrir sóttu varninginn; nokkra kassa af kjöti, smjöri, eplum og pylsum. Ránsfengnum skiptu þeir á milli sin en sannað er að Hinrik vissi ekki annað en að það sem hann flutti hefði verið keypt. Hörður og Magnús létu sér ekki nægja að brjótast inn í herhverfinu. Þeir fóru að bakdyrum sölubúðar Mjólkursölunnar í Garðastræti 17. Þar plokkuðu þeir smárúðu úr hurðinni og náðu þannig að seilast í smekklásinn og opna hurðina. Þegar inn var komið leituðu þeir verðmæta en fundu ekki annað en skiptimynt, rétt um 200 krónur. Hörður fór svo eina ferðina enn í Camp Knox. Hann fór inn í ólæst- an skála í hverfinu og tók þaðan olíudreifara og hafði með sér heim. Nokkru síðar þegar Hörður hafði fengið húsnæði í Camp Knox til af- nota kom honum og Magnúsi saman um að fara inn í skála í hverfinu og taka þaðan annan olíudreifara sem þeir vissu að var þar í sambandi við olíukyntan gufuketil. Þeir fóru að skálanum, opnuðu lúgu og rifu burt vírnet sem var fyrir. Hörður fór inn og losaði olíudreifarann en Magnús stóð vörð. Þeim tókst að selja dreifar- ann fyrir 8000 krónur. Hörður og Magnús fóru einnig í sjúkraskála í Camp Knox og tóku þaðan tvo loft- hitara og tíu karboratora. Magnús fór enn eitt skiptið i Camp Knox, nú til að stela olíudreifaranum úr elda- vélum. Eftir að hafa losað þá frá elda- vélunum setti hann þá út fyrir girð- inguna. Hann fékk Þórarin til að aðstoða sig við flutningana þaðan. Magnús lét aftur til sín taka fáein- um dögum síðar og aftur stal hann olíudreifurum. Þórarinn fékk nú Hinrik með sér í flutningana. Magn- úsi tókst að selja alla olíudreifarana nema einn, sem Hinrik fékk fyrir viðvikið. Með borvél í farangrinum Hörður og Magnús gerðu fleira en stela úr braggahverfunum. Eitt sinn fóru þeir inn um opinn klósett- glugga á húsi Mjólkursamsölunnar við Sörlaskjól. Þeir leituðu verðmæta en fundu ekki aðra peninga en skipti- mynt, sem þeir tóku ekki, heldur höfðu með sér tíu pakka af smjöri og nokkuð af brauði. Um svipað leyti fóru Hörður og Magnús að skipaafgreiðslu við Tryggvagötu. Útidyrahurðin var úr krossviði. Þeim tókst að gera gat á hana og teygja sig í smekklásinn. Þegar þeir komu inn sáu þeir pen- ingaskáp og það ólæstan. Engir pen- ingar voru í skápnum en nokkuð af orlofsmerkjum sem þeir tóku, að verðmæti 407 krónur og 25 krónur sem þeir fundu í skrifborðsskúffu. Ekki leið nema vika þar til Hörður og Magnús voru enn komnir af stað en þá brutust þeir inn í trésmiðju í Mjölnisholti. Þeir komust inn með því að spenna upp glugga og smugu inn um hann. Þeir brutu upp tvær skrifstofuhurðir og fundu á annarri skrifstofunni umslag með pening- um. 480 krónur voru í umslaginu. Ekki leið á löngu þar til þeir voru aftur á ferð. Nú brutust þeir inn i Pípuverksmiðjuna á Rauðarárstíg 25. Þeir komu vel búnir til verks, höfðu með sér borvél sem þeir notuðu til að bora göt á hurð og dyrastaf í kring- um smekklásinn. Þannig tókst þeim að opna dyrnar og komast inn. Þeir fundu 1200 krónur í peningum en auk peninganna tóku þeir fern skæri, lindarpenna og skíðablússu. Viku eftir innbrotið í Pípuverk- smiðjuna brutust þeir inn í Hús- gagnavinnustofu Hjalta Finnboga- sonar & co i Einholti 2. Fyrst ætluðu þeir sér að fara inn um lúgu á bak- hlið hússins. Þeir voru með borinn með sér og reyndu hvað þeir gátu að opna hlerann með bornum en tókst ekki að komast inn. Þá fóru þeir að aðaldyrum fyrirtækisins þar sem þeir spenntu upp hurðina með skrúf- járni. Rammgert geymsluhóf var í fyr- irtækinu en þegar starfsmenn fóru hafði þeim láðst að læsa hólfinu og áttu því Hörður og Magnús greið- an aðgang að því. Þar fundu þeir peningakassa sem í voru 12 þúsund krónur í peningum. Þeir brutu upp skápa og skrifborð en fundu ekki fleira verðmætt, nema Magnús tók með sér lítið og gamalt teppasnifsi. Næstu nótt brutust þeir inn í neta- gerðina Neptún við Skipholt. Þar fundu þeir ekkert sem þeir ágirntust þrátt fyrir talsverða leit. Tóku barnagrindur Næsta innbrot Harðar og Magn- úsar var aðeins fáeinum dögum síðar en þá brutust þeir inn í hús Bílasmiðjunnar við Skúlagötu. Þeir byrjuðu á að leita fyrir sér á efri hæðinni og tókst að komast inn í tvö læst skrifstofuherbergi. í ann- arri skrifstofunni fundu þeir um- slag með einhverju af peningum en í hinu var læstur, eldtraustur pen- ingaskápur. Þeir vissu að niðri voru logsuðutæki og Hörður kunni með þau að fara. Þá fóru þeir niður og sóttu tækin. Með þeim tókst þeim að opna skápinn og tóku úr honum peninga. Alls náðu þeir um tvö þús- und krónum. Fáeinum nóttum síðar brutust þeir inn í trésmiðjuna Víði. Þar brutu þeir upp skápa en fundu ekk- ert verðmætt. Til að fara ekki alls-1 lausir tóku þeir með sér tvær barna-1 grindur úr verslun fyrirtækisins. Ekki leið langur tími þar til I Hörður og Magnús brutust inn i I Almenna byggingarfélagið í Borgar-1 túni og höfðu borinn með sér. Þrátt fyrir mikla leit höfðu þeir ekki ann- að upp úr krafsinu en tuttugu kar- ton af sígarettum og átta kassa af vindlum. Reyndar tók Hörður lind- arpenna og vatnshitunartæki með sér og Magnús tók rafmagnsborð- klukku auk nokkurra handklæða. Þeir fóru síðan upp á næstu hæð en þar voru skrifstofur Helgafells. Þar var peningaskápur sem þeir hvolfdu og með kúbeini tókst þeim að rífa botninn frá. I skápnum voru þrjú þúsund krónur í peningum og orlofsmerki að sömu upphæð. Félagarnir gómaðir Viku síðar brutust þeir inn í geymsluskála í eigu Nefndar setu- liðsviðskipta sem var við Njarðar- götu. Þeir biðu þar til varðmaður yfirgaf skálann en fóru þá að hon- um og tókst að rjúfa gat á hann og komast inn. Þeir náðu um eitt þús- und krónum í peningum. Þar sem þeir voru að athafna sig heyrðu þeir í bíl og ályktuðu að vörðurinn væri að koma. Þeir tóku til fótanna en höfðu með sér peningakassa. Þeir þorðu ekki að hlaupa að bílnum sem Hörður átti og skildu hann því eftir. Þegar heim var komið opnuðu þeir peningakassann en hann var tómur. Þegar vörðurinn varð var við að brotist hefði verið inn hafði hann samband við lögreglu. Við vett- vangsrannsókn skoðaði lögregla bilinn og komst að því að vélin var volg. Við það féll grunur á Hörð. Hann var handtekinn og það varð til þess að Magnús var handtekinn og málið upplýstist. Hörður og Magnús voru í Hæsta- rétti dæmdir til fangelsisvistar í )rjú ár og fjóra mánuði. Hinrik í jriggja mánaða fangelsi og Þórar- inn i sex mánaða fangelsi.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.