blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 34

blaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 blaðið tíska ; Glamúr hjá Dior tiska@bladid.net irl Gamaldags glamúr í anda Hollywood var meginþráður í sýningu Dior sem þeir sýndu á tískuvikunni sem nú stendur yfir í París. Hugmyndasmiður Dior, John Galliano, hélt sínu striki og bauð upp á fallegan og glæsilegan klæðnað. Þar sem sterkir litir og efnismiklar flíkur voru allsráðandi og feldir í öllum stærðum og gerðum og litum léku stórt hlutverk. ÁJL Þröngir og stuttir Aðsniðnir og stuttir kjólar spila stórt hlutverk í vortískunni. Það er ekki allra að klæðast slíkum kjólum og þeir henta ekki sérlega vel íslenskri veðráttu. Þeir eru þó fallegir og gaman að skoða þá hvort sem maður kýs að klæðast þeim eður ei. Ásgrímur Már Friðriksson er fatahönn- uður og hefur meðal annars séð um að klæða Silvíu Nótt og nú síðast sá hann um búninga fyrir Eurovision. Hann hefur mikinn áhuga á öllu sem viökemur tísku. Þessa stundina er hann hrifinn af sterkum litum eins og rauðum, appelsínugulum og bleikum þegar kemur að fötum. Honum finnst einnig allskonar prjón mjög flott og leður og metaláferð. Ási velur hér það sem honum finnst fallegt og flott I dag. Jakkafatabuxur Ég er mjög hrifinn af því að vera í jakkafatabuxum við allskonar peysur og boli eða skyrtur og bara við hvað sem er, það er hægt að nota þær við allt. Ég keypti mér jakkaföt á Indlandi og ég nota buxurnar miklu meira en jakkann. Rauðu lakkskórnir Ég fékk þá nýlega I Kron og er ótrúlega hrifinn af þeim. Þeir a eru afskaplega fallega , rauðir og ég er hrifinn af jÆii&Wk lakkáferðinni. Þeir eru Wk ætlaðir til að vera spari en ég freistast stundum til að nota þá hversdags og IÍJPt væri alveg til í að eiga aukapar |fBp svo að ég eigi alltaf nýja og glans- I andi skó í skápnum. Mikka mús-peysan Peysa frá Ktz og hún er sniðin eins og Mikki mús, eyrun eru ermarnar. Þetta er æöisleg peysa og nánast safngripur og er ein af mínum gersemum enda kost- &***"* 1 aði hún sitt. Nýrnataskan Taska sem J|i| ég held mikið upp á núna. ÍH Hún erfrá As Fourog itaskan er I laginu eins og nýru og er í tveimur lögum. Taskan er líka alveg I þeim stíl sem ég er með æði fyrir núna. Rakspírinn Síðan er það YSL-rakspír- inn en ég er nýbúinn að finna þennan. Annnars hef ég alltaf átt erf itt með að finna rakspíra sem mér finnst henta mér. Þessi er mjög góður og allir §L ® mjög hrifnir af þessum ilmi. Ég set hann . m á mig hvenær J B, sem er við j jff- ymis tæki- færi. M aŒ* 1 til framtíðar Bókanir eru hafnar í þessi vinsælu átta vikna aðhalds- og lífsstílsnámskeið fyrir konur sem hefst 5. mars. HREYFI GREINING SJÚKRAÞJÁLFUN OG LÍKAMSRÆKT Höfðabakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is Landsbankinn Traustur bakhjarl fslenska dansflokksins Vöröu- og Námufélagar 50% afslátt á sýningar íd. ISLENSKI DAIMSFLOKKURI SYNIR ANNAÐ KVOLD SOFT DEATH OF A SOLITARY MASS eftir André Gingras IN THE NAME OF THE LANDeftir Roberto Oliván SÝNINGAR: 04.03 - 11.03 - 18.03 - 25.03 MIÐASALA: s. 568 8000 - www.id.is Harajuku Ohefðbundinn götustíll japanskra ungmenna Japanskur götustíll, mjög svo litríkur og áberandi, fær nafn sitt frá lestar- stöð nokkurri þar í landi, Harajuku, og svæðinu í kringum hana. Svæðið í heild sinni hefur verið samkomustaður jap- anskra ungmenna frá því snemma á 9. áratugnum en fljótlega fóru götulistamenn, tónlistarfólk og aðr- ir sem aðhylltust öfgafullan klæða- burð að setja mark sitt á það. 1 dag er svæðið eins konar suðupottur fyrir japanska unglingamenningu og -tísku. f kringum Harajuku-lestarstöð- ina hafa vestrænir verslunarrisar á borð við Gucci, Louis Vuitton, Chan- el og Christian Dior reist útibú og selja Japönum grimmt vörur sínar. Fleira má sjá á Harajuku-svæðinu en jaðartísku. í þeim flokki má nefna Yoyogi-garðinn sem samanstendur af 12.000 trjám af 365 tegundum. Þar voru Ölympíuleikarnir haldn- ir 1964, en þremur árum síðar var svæðið gert að almenningsgarði. Goth-lólítur og útklesst gerviblóð í hinum óhefðbundna Harajuku- götustíl ægir margs konar klæðum saman og einnig teljast leikrænir tilburðir, gríðarlegt magn málning- arvara og almennir stælar algerlega nauðsynlegir. Sem dæmi um móð- ins flíkur innan Harajuku-stílsins má nefna legghlífar í öllum regn- bogans litum, fjaðrir, afar stutt pils, hvers kyns feldi, hermannastígvél með þykkum botni og áfestanlega vængi. Oftar en ekki eru mörg lög af fötum notuð saman, þannig að úr verður íklæðanlegt listaverk. Marg- ar undirtegundir eru af götustíln- um og japönsku ungmennin sem aðhyllast hann leika sér að því að fara í eins konar hlutverkaleik. Svo- nefndar goth-lólítur og goth-þjón- ustufólk er sjáanlegt á hverju horni, „Hér gefur að líta goth- þjónustustúlku, hjúkrunar- fræðing og ónefnt kvendi í Harajuku-stílnum.“ hjúkrunarkonur í afar undarlegum vinnugöllum og hermenn, sveifl- andi skærbleikri blúnduregnhlíf sem er útklesst af gerviblóði væri ekki ólíklegt að rekast á. Þrautir Harajuku vegna íhaldssemi samfélagsins Harajuku-tískan hefur breiðst út frá Japan og ratað inn í fjölda versl- ana víða um heim auk þess sem tónlistarfólk hefur minnst á hana í lagatextum sínum og hampað. Hara- juku er allt í senn gerjunarmiðstöð tísku, sögufrægt svæði, lestarstöð, götustíll og holdgervingur hnatt- væðingar. Upp hafa þó vaknað spurningar þess efnis hvers vegna japönsk æska leggi þær þrautir á sig sem hinn undarlegi Harajuku- stíll hefur í för með sér. Einhverjir hafa nefnt að götustíllinn sé svar jap- anskra ungmenna við íhaldssemi i landinu. Að klæða sig í búninga og setja sig í ákveðin hlutverk er eins konar uppreisn æskunnar gegn sam- félagi sem miðar oft að því að steypa einstaklinga í sama mót. Um leið beinir stíllinn linsunni á afar heill andi hátt að fegurð og mikilvægi tjáningarfrelsis. Heillar tískuheiminn upp úr skónum Fatahönnuðurinn Christopher Kane vakti mikla athygli og fékk lof tískuheimsins fyrir nýjustu línu sína fyrir veturinn 2007 sem hann sýndi á tískuviku í London á dög- unum. Christopher Kane er ungur að árum, einungis 24 ára, en hann hefur þrátt fyrir það náð að heilla tískuelítuna upp úr fínu skónum sínum og meðal hörðustu aðdá- enda hans má nefna önnu Wintour, ritstýru ameríska Vogue, og Donatellu Versace. Það var einmitt Donatella sem styrkti fatalínu Kane sem hann gerði að útskriftarverk- efni sínu ög frá útskrift hefur hann verið Versace-tískuhúsinu innan handar. Kane þykir ein skærasta vonarstjarna breskrar fatahönnunar í dag og einn frumlegasti nýliðinn innan tískuheimsins. Kane sem kemur frá litlum bæ rétt fyrir utan Glasgow útskrifaðist frá Central St. Martins árið 2005. Hann hefur síðan þá unnið til margra verðlauna sem veitt eru í tískuheiminum og hefur sýnt tvær línur undir eigin nafni fyrir vorið 2007 og nú síðast haustið 2007. Sumarsýn Christophers Kane fyrir vor 2007 Línan einkenndist af stuttum þröngum kjólum sem minn- tu á kjóla sem Vercase hannaði við upphaf nfunda áratugar síðustu aidar. Kane valdi hressandi sterka liti eins og appelsínugulan, límónu- grænan og túrkís saman við Ijósa og daufa, brúna, lillaða og guia. Nýjasta fatalína Kane fyrir haust- ið 2007 íþessari línu sem hefuryfir sér ákveðinn miðaldastíl er áhersl- an á snið og ftott smáatriði. Glans- andi efni, steinar og gaddar íanda pönksins, áföst á flíkunum. Leður og flauel var efniviður Kane og eins og með fyrri línu sinni kynnti hann algjörlega nýja hluti til sögunnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.