blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 17
o’j
• sir- • s»<v • %i • >3 t* • N>r* • >»
<v ctl/ c40 CtV/ c6u CC\J
Menningamótt í Reykjavík 18. ágúst2007
Hvað vittu gera
og hvar vittu vera?
Útiásjó?
Flugeldar - blikur á lofti...
A Laugaveginum?
’^'jl Ágötugleöinnar...
Menningarnótt í midborginni verdur haldin í tólfta sinn 18. ágúst næstkomandi.
Menningarnótt er hátíd sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman, hvort sem er úti á
torgum og götum midborgarinnar, íbakgördum eða söfnum, fyrirtækjum eðajafnvel heimahúsum.
Á Menningarnótt er stundum vandratað á milli þeirra mörg hundruð atriða sem íboði eru því
mikill fjöldi listamanna og annarra skapandi borgarbúa leggur hátíðinni lið með kröftum sínum.
Hiutverk Höfuðborgarstofu og stjórnar Menningarnætur er að halda utan um alla almenna skipulagningu
og leyfisveitingar, standa að útgáfu dagskrárrits og annarrar kynningar á viðburðum hátíðarinnar.
Til þess að hægt sé að tryggja að sem flestir borgarbúar með bestu hugmyndirnar komist inn ídagskrá
Menningarnætur 2007 er hér með auglýst eftir áhugasömum, frumlegum og hugrökkum
hugmyndasmiðum til að fylla inn í viðburðakort Menningarnætur sem hér er birt.
Umsóknir og tillögur um atriði á Menningarnótt sendist merkt „Menningarnótt 2007“
til Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2,101 Reykjavík, fyrir 1. júlínæstkomandi.
Einnig er hægt ad senda umsóknir rafrænt á verkefnisstjóra hátíðarinnar sif.gunnarsdottir@reykjavik.is.