blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 44
Fjölbreytt afmælis-
dagskrá
Laugardaginn 26. maí eru liðin
100 árfrá því Kleppsspítali tók
til starfa og af því tilefni verður
fjölbreytt afmælisdagskrá fyrir
almenning við Kleppsspítala. Al-
menningi verður boðið að koma
og skoða starfsemina og einnig að
skoða unglingageðdeild BUGL við
Dalbraut, meðferðarheimilið Laug-
arási 71 og deild 28 í Hátúni 10a.
Ljósmyndasýning
Lokasýning nemenda Ljósmynda-
skóla Sissu verður á laugardaginn
26. maí klukkan 16:00 að Hólma-
slóð 6 en í ár útskrifast 16 nem-
endur frá Ljósmyndaskólanum.
Undanfarin ár hefur sýningin
verið vel sótt og nemendur hafa
lagt hart að sér að gera sýning-
una sem glæsilegasta. Sýningin
stendurtil 3. júní, er opin alla daga
frá kl. 14-19 og aðgangseyrir er
ókeypis.
Sterkur, sterkari,
sterkastur
Keppnin um sterkasta mann
íslands fer fram í Vetrargarðinum
í Smáralind laugardaginn 26. maí.
Keppnin hefst klukkan 14:00 og
aðgangur er ókeypis.
Dýrin í Hálsaskógi sýnd í Elliðaárdal:
Dýrin í
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guömundsd.
svanhvit@bladid.net
Leikhópurinn Lotta mun frumsýna
barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í
Elliðaárdalnum á hvítasunnudag.
Boðið verður upp á tvær sýningar,
kl. 14 og 16. Bylgja Ægisdóttir er í
leikhópnum Lottu en hún segir að
sýningin sé skemmtileg fjölskyldu-
sýning sem allir ættu að hafa gam-
an af. „Þetta er skemmtileg og
litskrúðug sýning með skemmtileg-
um búningum. Við verðum með
einhverja leikmuni en ekki marga.
Leikararnir eru í mikilli nálægð
við áhorfendur sem er skemmtilegt
fyrir börnin auk þess sem þau geta
hitt dýrin eftir á. Það má því segja
að þetta sé hálfgert ævintýri fyrir
börnin,“ segir Bylgja og bætir við
að vitanlega sé sýningin líka sérstök
vegna þess að hún er utandyra. „Það
er mjög skemmtilegt að leika úti og
að upplifa leikritið úti við. Þetta er
einhvern veginn allt öðruvísi og allt
önnur stemning að vera úti í skógi,
hafa það huggulegt með teppi og sjá
dýrin í sínu villta umhverfi.“
„Leikaramir em í mikilli ná-
lægö við áhorfendur sem
er skemmtilegt fyrir bömin
auk þess sem þau geta
hitt dýrin eftir á.“
Mikið æft undanfarið
Leikhópurinn Lotta var stofnað-
ur síðastliðið haust og í honum er
hópur áhugaleikara. Bylgja segir að
ákvörðunin um að setja upp Dýrin í
Hálsaskógi í sumar hafi verið tekin
við stofnun leikhópsins. „Flest okk-
ar hafa verið í áhugaleikfélögum í
dágóðan tíma og okkur langaði að
gera meira úr þessu. Það er ekki
mikil starfsemi hjá áhugaleikfélög-
sínu villta umhverfi
Bylgja Ægisdóttir: „Þetta erein-
hvern veginn allt öðruvísi og allt
önnur stemning að vera úti ískógi,
hafa það huggulegt meö teppi og
sjá dýrin í sínu villta umhverfi."
um á sumrin og okkur langaði að
gera eitthvað á okkar eigin forsend-
um og eftir okkar eigin höfði. Það
er ekki verra að okkur finnst mjög
gaman að vera saman,“ segir Bylgja
og hlær. „Við höfum verið að æfa
mikið síðastliðinn mánuð, síðan
það varð minna að gera hjá áhuga-
leikfélögunum. Utan þess höfum
við hist reglulega í vetur til að skipu-
leggja sýninguna og undirbúa."
Útumalltland
Þeir sem missa af sýningunum
á sunnudag þurfa ekki að örvænta
þar sem leikritið verður sýnt á sama
stað á hverjum miðvikudegi í sumar.
„Við verðum víða í sumar, á ýmsum
hátíðum úti á landi auk þess sem
mörg fyrirtæki hafa bókað okkur á
fyrirtækisskemmtanir. Það verður
því nóg að gera,“ segir Bylgja sem
hefur verið að leika í nokkur ár. „Ég
hef leikið í áhugafélögum í nokkur
ár auk þess að sækja námskeið og
sumarskóla í leiklist. Svo er ég á
leiðinni til London í leiklistarskóla
í haust.“ Miðinn á Dýrin í Hálsa-
skógi kostar 1.500 krónur fyrir full-
orðna en 1.000 krónur fyrir börn
sem eru í fylgd með fullorðnum.
Það er hægt að kaupa miða á staðn-
um, í síma 699-3993 eða á síðunni
www.123.is/dyrinihalsaskogi.
lotrto.ls
• __ Partí Hressilegt hvita-
.... _ sunnuparti verður á Nasa
...........á sunnudagskvöldið þar
• • • Serr. Exos kemur medaí
annarsfram.
Ekta hvitasunnupartí
Það er af nógu að taka um hvíta-
sunnuhelgina enda virðist sem eitt-
hvað sé að gerast í hverju skúmaskoti.
Á Nasa verður glæsilegt hvítasunnu-
partí þar sem Exos og Plugg' d koma
fram en Exos og Plugg'd eru tvö af
ferskustu nöfnunum í íslensku dans-
senunni. Plugg'd verða með lifandi
tónlist og með þeim koma fram
tveir erlendir bongótrommarar til
að slá taktinn. Plugg'd samanstend-
ur af þremur plötusnúðum og tón-
listarmönnum sem hafa gert hvern
smellinn á fætur öðrum.
Mikil reynsla
Exos, eða Arnviður Snorrason, er
maðurinn á bak við útvarpsþáttinn
Techno.is og hefur gefið út 13 smá-
skífur og þrjár breiðskífur ásamt alls
kyns endurhljóðblöndunum. Allir
hafa þessir menn mikla reynslu og
ættu því að geta tryllt lýðinn á Nasa
næstkomandi sunnudagskvöld. Her-
legheitin hefjast kl. 23:00 og standa
fram á nótt. Fyrstu 100 gestirnir fá
mixdiska frá strákunum í Plugg'd
en forsala er hafin í versluninni All
Saints í Kringlunni. Miðinn kostar
1000 krónur.