blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 53
blaðið
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 53
Stöö 2 sun. kl. 19.15
Furðuleg lygasaga
Lemony Snicket's A Series of
Unfortunate Events er ævintýra-
leg gamanmynd með Jim Carrey
[ aðalhlutverki. Þegar þrjú vell-
auðug systkini missa foreldra
sína eru þau send til Ólafs greifa
en hann þolir ekki börn og er ein-
göngu á höttunum eftir pening-
unum þeirra. Myndin er byggð á
fyrstu þremur bókunum í hinum
vinsæla bókaflokki A Series of
Unfortunate Events eftir rithöf-
undinn Daniel Handler. Skemmti-
leg mynd fyrir alla fjölskylduna.
Skjár einn sun. kl. 20.40
Fýr í sokkabuxum
Robin Hood er bresk þáttaröð
fyrir alla fjölskylduna um hetj-
una Hróa hött, útlagann sem
rænir þá ríku til að gefa hinum
fátæku. Hann berst gegn
óréttlæti og kúgun og hjálpar
þeim sem minna mega sín.
Þessir þættir hafa slegið í gegn
í Bretlandi og fengið mikið lof
hjá gagnrýnendum. Nú geta
íslendingar fylgst með ævin-
týrum hins fagurleggjaða Hróa
og hans hýru sveina.
Sirkus mán. kl. 20.25
Kisulóra óskast
Stúlknasveitin heimsfræga
Pussycat Dolls leitar að nýjum
meðlimi í hljómsveitina í þáttaröð-
inni The Search for the Next Doll.
Þúsundir stúlkna sóttu um starfið
en aðeins nfu þeirra voru valdar
til áframhaldandi þátttöku. Stúlk-
unum níu er komið fyrir í (búð í
Los Angeles þar sem þær munu
ganga í gegnum stífar æfingar
og áskoranir. Það mun því verða
hart barist um það hvaða stúlka
fær að klæðast netsokkabuxum
á sviði með Kisulórudúkkunum.
Aðskildir tvíburar:
Mary-Kate freistar gæfunnar ein
Það er ekki á hverjum degi sem
tvíburasysturnar Mary-Kate og
Ashley Olsen taka að sér verkefni
hvor án annarrar en nú er allt útlit
fyrir að það muni breytast þar
sem Mary-Kate hefur tekið að sér
að leika í næstu þáttaröð hinna
vinsælu Weeds-þátta. Ashley
mun þar hvergi koma nærri.
Weeds-þættirnir fjalla um
húsmóður (sem leikin er af Mary-
Louise Parker) sem fer að selja
marijúana til að láta enda ná
saman og mun Mary-Kate fara
með hlutverk ungrar saklausrar
stúlku sem fellur fyrir syni
dópsalans.
Með þvf að taka þetta hlutverk
að sér er ungstirnið að reyna
að festa sig í sessi sem alvöru
leikkona en ekki bara sem
fyrrum barnastjarna og hún bíður
í ofvæni eftir þvf að geta hafist
handa. „Ég er hæstánægð að fá
að taka þátt í gerð þessara þátta.
Það er mikill heiður að fá að
vinna með svona hæfileikaríkum
leikurum og handritshöfundum."
Svo er bara spurning hvort þetta
hlutverk nær að skila henni
tilætluðum árangri því líklega
vill engin leikkona að sín verði
minnst fyrir hörmungarmyndina
New York Minute.
Háskólans á Bifröst eru komnir
í stjórnunarstarf innan 5 ára 5?
Háskólinn álSifröst er eirlf ,fcampus"-skólinh
í félagsvísindum á Íslanðí.
um allt námið
Stjórnenda- og leiðtogaskóli i hartnær 100 ár
70% útskrifaðra nemenda
■> • .P>, ^ __ . *.* •■-• •
Nemendur vinna raunhæf verkefni
Nær helnjingur nemenda dvelur
eitt fnisseri efíéndis t.d. í Kína.
Háskólinn á Bifröst býður upp á
mjög öflugt fjarnám. ^
' jf* , . i', *
4 : •;• . •.:•. 4 - jrr*:
.... -
Umsóknafrestur í grunnnám er til 10. júní 2007
Frekari upplýsingar:
www.bifrost.is
HASKOLINN A BIFROST
BIFRÖST UNIVERSITY
311 Borgarnes I Slmi 433 3000
Minnum á að við erum þegar farin að taka á móti umsóknum í allar deildir skólans.
Því fyrr sem þú sækir um, því meiri möguleika áttu á námsvist. Umsóknareyðublöð
eru á heimasíðu skólans, www.bifrost.is
Lagadeild
I lagadeild er boðið upp á viðskiptalögfræði
sem samsett er úr greinum lögfræði, fjármála
og viðskipta. Námið er afar hagnýtt og getur
verið góður undirbúningur fyrir atvinnulífið
eða frekara nám. Nemendur útskrifast með
BS gráðu I viðskiptalögfræði.
Viðskiptadeild
Alhliða viðskiptanám sem ætlað er að
búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu-
og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi. [ BS námi í
viðskiptafræði eru kennd öll helstu svið
stjórnunar, rekstrar og viðskipta.
Félagsvísindadeild
Deildin býður upp á grunnnám til BA í HHS
(heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði).
Grunnnám ( HHS er traustur undirbúningur
fyrir hvers kyns framhaldsnám á sviði hug- og
félagsvfsinda, til meistara- eða doktorsgráðu
og fyrir störf á alþjóðlegum vinnumarkaði.